Kylfingur - 01.05.2001, Síða 8

Kylfingur - 01.05.2001, Síða 8
um þannig að vel sé. Hann verður að geta veitt þeim sem fyrir eru einhverja þjón- ustu og ég verð að segja það eins og er, að það stefnir í óefni. Það verður að gera fleiri golfvelli, velli sem henta byrjendum og eldra fólki, fólki sem getur lil dæmis ekki spilað í Grafarholti. Ég er að tala um einfalda velli, í rauninni bara tún með þokkalegum flötum og teigum og slegn- um brautum. A þannig völlum geta menn lært hvemig á að leika og síðan komið á það sem við getum kallað alvöru velli. Það er svo mikilvægt að menn geti slegið með öllu settinu, notað dræverinn á teig og fundið boltann þó hann fari eitthvað út fyrir braut. Grafarholtið er til dæmis allt of erfiður völlur fyrir byrjendur. Menn eiga að geta slegið, fundið boltann, slegið aftur og svo koll af kolli, fengið eðlilegan gang í leikinn. Mér sýnist ástandið þannig að eitthvað í líkingu við þetta verði að gerast á næstu árum því fjöldinn í klúbbn- um er orðinn svo mikill miðað við þá að- stöðu sem við höfum.“ Bestu kylfingum GR hefur ekki tekist á undanförnum árum að verða alveg á toppnum þó sumir hafi komist í seilingar- fjarlægð við hann. Ætlar þú ekki að breyta því? „Jú, það er stefnan, en það tekur allt tíma. Það eru fjölmargir unglingar sem hafa æft vel í vetur og stelpurnar hafa ver- ið duglegar. Ég er að reyna að koma því inn hjá krökkunum að það eigi að vera gaman að spila golf og þó hlutimir gangi ekki alltaf eins og til var ætlast verða menn að geta nýtt það rétt og horfa á bjöitu hliðamar. Ég vil hafa léttleika í kringum golfið og þó menn einbeiti sér þá er hægt að hafa gaman af hlutunum. Menn einbeita sér inn í sig og með sjálfum sér, en eru léttir út á við. Það er ekki heimsendir þó allt gangi ekki að óskum og menn eiga ekki að bera sig saman við aðra því menn em jafn misjafnir og þeir eru margir. Það er bara til einn Tiger Woods.“ Aldrei of seint að byrja í golfi Undanfarin ár hefur orðið sannkölluð golfsprenging á Islandi og Nolan segir aukninguna miklu meiri hér á landi en annars staðar í Evrópu. Nýliðamir eru á öllum aldri sem sést best á því að hann er með nemendur frá fimm ára aldri til átt- ræðs. „Það er aldrei of seint að byrja, en það er ágætt að byrja fimm til sex ára,“ segir Nolan og leggur áherslu á að golf sé fyrir alla og það sé um að gera að prófa. Það eru til einhentir kylfingar, hálfblindir og þannig mætti lengi telja. „Hver og einn leikur með sínu lagi og hefur gaman af og ég legg mikið upp úr því að menn skemmti sér við að leika golf, það gerir íþróttina svo miklu skemmtilegri auk þess sem leikur manns lagast alls ekki við að vera í vondu skapi,“ segir Nolan. Hann leggur áherslu á að golf sé fyrir alla, menn muni að sjálfsögðu ná mis- langt í íþróttinni eins og gengur, en allir eigi að geta náð það góðum tökum á sveiflunni að hægt sé að hafa gaman af og hægt sé að spila sér til ánægju. Hann nefnir konu á miðjum aldri sem dæmi. „Hún byrjaði í vetur með hópi fólks. Hún hafði misst máttinn í hægri hendinni en mætti engu að síður og það tók hana nokkra tíma að ná að sveifla með annarri hendinni og halda bara við kylf- una ineð hinni, en þú hefðir átt að sjá hvað hún var ánægð þegar hún fann að Persónuleg þjónusta c o Sérbankaþjónusta Búnaðarbankans Verðbréfa er allt það besta sem við höfum að bjóða. Þjónustan er sérhæfð fjármálaþjónusta ætluð umsvifamiklum einstaklingum. Áhersla er lögð á )/ 1 BÚNAUARHANKINN V VERÐBRÉF 1 SÉRBANKAÞJÖNUSTA persónulega þjónustu þarsem hver ráðgjafi sinnir fámennum hópi viðskiptavina. Bein símanúmer og netfang tryggja greiðan aðgang að ráðgjafanum hvenær sem þörf er á. í Sérbankaþjónustu felst Fjárvarsla og Eignastýring verðbréfasafna með aðgangi að persónulegum ráðgjöfum á sviði fjármála, skattamála, lífeyris- og tryggingamála ásamt umtalsverðum sérkjörum og fríðindum. Þinn persónulegi ráðgjafi súnaSartanw™ v^sb-éf Hjá Búnaöarbankanum Veröbréfum Hafnarstræti 5 Beinn s(mi GSM slmi Netfang ]/ 1 BÚNAÐARBANKINN V VERÐBRÉF 1 SÉRBANKAt-JÓNUSTA Hafnarstræti 5 • sími 525 6060 • fax 525 6099 • www.bi.is • verdbref@bi.is 8 KYLFINGUR

x

Kylfingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.