Kylfingur - 01.05.2001, Síða 15
Skýrsla stjóraar GR
1. nóvember 1999 - 31. október 2000
Á starfsárinu létust 6 félagar í Golf-
klúbbi Reykjavíkur. Þeir voru:
Bjami Rögnvaldsson
Jón Thorlacius
Halldóra Einarsdóttir
Júlíus Ingibergsson
Valur Fannar
Öm Bjartmars Pétursson
Ég vil biðja fundarmenn að minnast
þessara látnu félaga með því að rísa úr
sætum.
Á starfsárinu skipuðu eftirtaldir stjóm
Golfklúbbs Reykjavflcur:
Gestur Jónsson, formaður.
Stefán Svavarsson varafonnaður og
ritari
Ómar Kristjánsson gjaldkeri.
Meðstjómendur vom:
Hilmar Karlsson, Jón Pétur Jónsson,
Peter Salmon. og Stefán Gunnarsson.
I varastjóm sátu:
Kristín Guðmundsdóttir, Ragnheiður
Lámsdóttir og Viktor Sturlaugsson.
Haldnir vom 17 bókaðir stjómarfundir.
Eins og undanfarin ár sat varastjóm alla
stjómarfundi, ásamt framkvæmdastjóra.
í lok starfsársins voru félagar í Golf-
klúbbi Reykjavíkur 1528:
Karlar 1221
Konur 307
Á árinu vom 328 nýir félagar og af bið-
skrá teknir inn í klúbbinn, út af skrá fóm
181.
í lok síðasta starfsárs vom félagar 1359,
fjölgað hefur því um 169 félaga eða um
15% aukning.
Fjármálin
Tekjuafgangur ársins nam um fjórum
milljónum króna eftir afskriftir og vexti.
Fjárfestingar ársins námu 21 mkr. Pen-
ingaleg staða klúbbsins hefur versnað um
tæpar 13 m.kr. og er nú neikvæð um 46
m.kr.
Tekjur klúbbsins jukust úr 68,3 m.kr. í
81,6 m.kr. eða um ca 20% en rekstrar-
gjöldin hafa einnig vaxið úr rúmum 59,2
mkr í 71,7 m.kr.
Gjaldkeri klúbbsins mun gera nánari
grein fyrir reikningunum hér á eftir.
Framkvæmdir ársins:
Framkvæmdir við hús í Grafarholti:
Verulegar breytingar og endurbætur
voru gerðar á kenugeymslunni ofan við
klúbbhúsið. Þar var innréttuð skrifstofa
og golfverslun.
Nú liggur fyrir að hita- og rafmagns-
lagnir hér í golfskálanum í Grafarholti em
taldar ónýtar og hjá því verður ekki kom-
ist að endumýja þær. Mörgum þykir skál-
inn sjálfur vera orðinn þreytulegur og rétt
er að hann þyldi andlitslyftingu. Fenginn
var innanhússarkitekt til þess að gefa
stjóminni hugmyndir um endurbætur á
skálanum í tengslum við það mikla rask
sem mun fylgja endumýjun hita- og raf-
magnslagna. Það er ljóst að hér er um
stórt mál að ræða fyrir klúbbinn og fram-
kvæmdin í heild sinni mun sennilega
kosta milli 15 og 20 milljónir króna þeg-
ar allt er talið.
Hvemig á að leysa þetta? Langtímalán
og leysa málið allt eða gera aðeins það
sem nauðsynlegt er?
Framkvæmdir við hús á
Korpúlfsstöðum:
Þótt Korpúlfsstaðahúsið sé einhver
svipmesta og fallegasta bygging í Reykja-
vík og enginn klúbbur geti státað af
klúbbhúsi sambærilegu Korpúlfsstöðum
þá verður það að viðurkennast að illa
hefur gengið að gera alla aðstöðu þar inn-
andyra jafn huggulega og æskilegt væri.
Framkvæmdir ársins á Korpúlfsstöðum
miðuðust fyrst og fremst við að uppfylla
skilyrði yfirvalda um eldvamir og loft-
ræstingu þannig að áframhald mætti
verða á veitingarekstri í húsinu. Þá voru
gólf í kjallara hússins flotuð. Rétt er að
vekja athygli á því að loftræstingin ein
sem við þurftum að setja upp á Korpunni
kostaði meira en 2,5 mkr.
í húsnefnd sátu: Ragnheiður Lárus-
dóttir og Erling Pedersen.
Framkvæmdir við völl’í Grafarholti:
Vallarframkvæmdum ársins í Grafar-
holti má skipta í tvennt.
Annars vegar var verið að ljúka frá-
gangi á flötum og umhverfi þeirra sem
hafist hafði verið handa við á fyrra ári á
2., 6. 10 og 16. braut. Þá var byggður nýr
teigur á 17. braut og svæðið milli 10./16.
flatar og 17. teigs tyrft. Þá vom á haust-
mánuðum gerðar þrjár nýjar glompur á 4.
braut, ein glompa á 5. braut og tvær á 10.
braut. Stjóminni er ljóst að ekki hafa allir
verið sáttir við þessar breytingar á vellin-
um. Góð sátt virðist vera um breytinguna
á 2. braut en breytingamar á hinum braut-
unum hafa verið gagnrýndar. Til þess að
mæta þessari gagnrýni var farið yfir alla
framkvæmdina í haust með hönnuðinum
Howard Swan og í framhaldi af því hafa
verið gerðar endurbætur á 6. 10. og 16.
flötinni og aðkomunni að þessum flötum.
Von okkar er sú að þessar aðgerðir verði
til mikilla bóta.
Hins vegar urðu töluverðar fram-
kvæmdir í Grafarholtinu í tengslum við
gerð holræsisins sem lagt var í gegnum
völlinn á sl. vori. Tækifærið var notað til
þess að klæða stærstan hluta 3. brautar-
innar og hluta 1. og 18. brautanna auk
þess sem vegurinn gegnum þessar brautir
var lagfærður. Óhætt er að segja að þessi
framkvæmd hafi heppnast mjög vel.
Þriðja braut vallarins er nú ein besta
brautin á vellinum og væntanlega er úr
sögunni það mikla rask sem jafnan hefur
verið á yfirborði brautarinnar á hverju
vori.
Loks er rétt að geta þess að í haust voru
grafnir nokkrir þverskurðir á 16. braut
sem verða fylltir af möl og tyrfðir. Með
þessari aðgerð er vonast til að bleytu-
vandamál það sem alltaf hefur þurft að
glíma við á 16. brautinni minnki.
I vetur verður haldið áfram lagningu
holræsins í gegnum völlinn frá 3. braut,
meðfram 4. braut, milli 5. og 8. brautar og
meðfram 6. braut að norðanverðu og það-
an út af vellinum. Ljóst er að þessi fram-
KYLFINGUR 15