Kylfingur - 01.05.2001, Blaðsíða 17
Stjórn Golfklítbbs Reykjavíkur 2000. Aftari röð frá vinstri: Peter Salmon, Viktor Sturlaugsson, Hilmar Karlsson, Jón Pétur Jónsson, Stefán
Gunnarsson og Margeir Vilhjálmsson,framkvœmdastjóri. Fremri röð f.v. Kristín Guðmundsdóttir, Stefán Svavarsson, Gestur Jónsson, formaður,
og Ragnheiður Lárusdóttir. A myndina vantar Omar Kristjánsson.
klúbbnum. í meistaramótinu voru 340
þátttakendur og mun það vera stærsta
golfmót sem haldið hefur verið á Islandi.
GR annaðist Landsmót unglinga á
Grafarholtsvellinum. Um 150 ungir
kylfingar alls staðar að á landinu voru
með í mótinu sem tókst frábærlega. Bik-
arkeppnin var haldin annað árið í röð. Alls
kyns deilur og kærumál hafa verið að þró-
ast í kringum bikarkeppnina og mér skilst
að kappleikjanefnd muni ekki leggja til að
keppninni verði haldið áfram á næsta ári,
a.m.k. ekki í sama horfi.
í kappleikjanefnd voru Jón Pétur Jóns-
son, Ragnheiður Lámsdóttir og Hilmar
Karlsson.
Afreksnefnd
Á árinu var komið á fót sérstakri nefnd
sem hafði það hlutverk að velja afrekshóp
í meistara- og unglingaflokkum GR,
skipuleggja æfingar þessara kylfinga allt
árið, setja einstaklingum markmið og
fylgjast með árangri og ástundun. Um 30
kylfingar vom valdir í hópinn. Yfir vetrar-
mánuðina voru stundaðar þrekæfingar
undir leiðsögn þjálfara hjá Hreyfmgu auk
inniæfmga á Korpunni. Kennari afreks-
hópsins hefur verið Joe McKie. Þorsteinn
Hallgrímsson hefur haft yfirumsjón með
starfí afrekshópsins.
Það er auðvitað ljóst að verkefni afreks-
nefndarinnar er langtímaverkefni og það
er ekki hægt að búast við stökkbreyting-
um hjá okkar bestu kylfingum. Það er mat
okkar að starf afreksnefndarinnar hafi
skilað góðum árangri og það er a.m.k
staðreynd að langt er síðan GR hefur átt
jafn marga kylfinga í hópi þeirra bestu og
var á síðasta ári.
í afreksnefnd vom Stefán Gunnarsson,
Hildur Haraldsdóttir og Þorsteinn Hall-
grímsson.
Kylfingur
Auk hefðbundinnar útgáfu Kylfings
voru tvö fréttabréf gefin út, það fyrra um
síðustu áramót en það síðara mars. I
fréttabréfinu vom fyrst og fremst stuttar
fréttir af ýmsu starfi innan golfklúbbsins
og hvað framundan væri.
í ritnefnd Kylfings sátu Hilmar Karls-
son og Halldór B. Kristjánsson.
Samningur við golfklúbbinn á Hellu
Samningur var gerður á milli GR og
Golfklúbbsins Hellu um að greiðsla ár-
gjalds í GR veiti rétt til að spila völlinn á
Hellu. Endurgjald GR er fyrst og fremst í
formi aðstoðar við að halda við vellinum
á Hellu, slá röff, sá og sanda, gata green
og fleira. I þessu skyni notum við vélar
GR en vandamál lítilla golfklúbba eins og
á Hellu er ekki síst það hve litla mögu-
leika þeir eiga á því að eignast tækjakost
sem er nauðsynlegur til þess að halda
velli sæmilega við. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hellumönnum vom skráðir hjá
þeim um 800 hringir sem GRingar spil-
uðu í sumar. Reyndar telja þeir að
hringimir hafi verið mun fleiri en einhver
losarabragur hafi verið á skráningu.
Gagnkvæmur vilji er til þess að halda
samstarfi klúbbanna áfram.
Nýtt æfingasvæði í Grafarholti
Reykjavíkurborg hefur úthlutað GR
tæpum 6 ha. lands til gerðar æfingasvæð-
KYLFINGUR 17