Kylfingur - 01.05.2001, Qupperneq 18
is í mýrinni hér fyrir neðan milli Laxalóns
og 18. brautarinnar. Eins og við höfum öll
séð á síðasta sumri og nú í vetur hefur
gríðarlegt magn jarðvegs verið flutt á
svæðið. Búið er að forhanna æfingasvæð-
ið og gera kostnaðaráætlun sem kynnt
hefur verið borgaryfirvöldum. Kostnaðar-
áætlun sem unnin var af Howard Swan
fyrir æfingasvæðið fullbúið, er upp á ca.
75 mkr. Af hálfu GR hefur verið lögð
áhersla á að hefjast handa við frágang
svæðisins jafnfljótt og unnt er enda mikil
lýti og óþrifnaður af að hafa óvarða mold-
arhauga í svo mikilli nálægð við golfvöll-
inn. Við viljum reyna að yfirborðsjafna
og sá í þann hluta svæðisins þar sem driv-
ing range verður strax í sumar þannig að
það megi taka í notkun sumarið 2002.
Það er stefna stjómar GR að nýja æf-
ingasvæðið verði mjög vandað með yfir-
byggðum básum, lýsingu, hita, stórum
púttflötum, svæðum til þess að æfa stutt
spil, glompuhögg o.s.frv. Hugsanlega
verður lítill æfingavöllur með þremur eða
fjórum golfholum gerður í tengslum við
svæðið. Með öðrum orðum erum við að
tala um að reisa æfingasvæði af bestu
gerð. Það er hins vegar ljóst að GR þarf
aðstoð borgaryfirvalda við að kljúfa
kostnaðinn af gerð svona svæðis. Hefur
klúbburinn sótt um það til Reykjavíkur-
borgar að borgin taki að sér greiðslu á
80% kostnaðar við gerð svæðisins.
Þá hefur klúbburinn sótt um styrk til
R&A í þetta verkefni og fengið styrk að
fjárhæð 30.000 sterlingspund sem er ná-
lægt 4 mkr. Það er ljóst að gerð nýja æf-
ingasvæðisins hér í Grafarholti verður
stóra verkefni klúbbsins næstu ár.
Nýr kennari
Undanfarin tvö ár hefur Joe McKie ver-
ið aðalkennari GR og unnið hér gott starf
ásamt félaga sínum Derrick Moore. Joe
sagði samningi sínum við GR upp í haust
þannig að hann rennur út um næstu ára-
mót. Eg vil nota þetta tækifæri til þess að
þakka Joe fyrir störf hans fyrir GR og
óska honum alls góðs í framtíðinni.
Stjóm GR auglýsti eftir nýjum golf-
kennara. Meðal þeirra sem lýstu áhuga á
starfinu var John Nolan sem var kennari
hjá GR árum saman hér fyrr á árum.
Samningar hafa tekist við John um að
hann taki við stöðu aðalkennara hjá GR
frá næstu áramótum. John er góður golf-
kennari, hugmyndaríkur og skemmtilegur
náungi og ekki spillir það fyrir að hann
talar piýðilega íslensku. Ohætt er að segja
að við bindum miklar vonir við störf John
fyrir klúbbinn á komandi árum.
Landsmót
Landsmótið í golfi verður haldið í Graf-
arholti á næsta ári. Þetta verður í fyrsta
sinn sem mótið verður haldið án flokka-
skiptingar þannig að fjöldi þátttakenda
verður miklu minni en undanfarin ár eða
150 að hámarki. Stjóm GR hefur tekið
ákvörðun um að skipa sérstaka Lands-
mótsnefnd til þess að annast undirbúning
og framkvæmd mótsins. Hefur Guð-
mundur Bjömsson, fyrrverandi formaður
GR, tekist á hendur það verk að vera for-
maður landsmótsnefndarinnar þannig að
strax má fullyrða að það mál er komið í
traustar hendur.
Fjöldatakmörkun
Nú rekur GR tvo átján holu velli auk 9
holu æfínga- og byrjendavallar á Korpu.
Ætlunin er að reyna að bæta litla völlinn
verulega á næsta ári, GR hefur sótt um
land til þess að stækka Korpúlfsstaðavöll-
inn í 27 holur. Það erindi hefur ekki feng-
ið afgreiðslu en engin sérstök ástæða er til
bjartsýni um að stækkunarheimild fáist
alveg á næstunni.
Fjölgunin í klúbbnum hefur verið ca.
15% á ári mörg undanfarin ár og nú em
félagsmenn komnn á sextánda hundrað.
Það er alltaf álitamál hvað klúbbur með
aðstöðu eins og GR getur tekið við mörg-
um félagsmönnum. Augljóst er að ekki er
unnt að taka endalaust við nýjum félögum
án þess að þrengslin á völlunum verði
óviðunandi. Sumum finnst aðsóknin nú
þegar vera orðin of mikil og loka eigi
klúbbnum strax.
Stjóm GR telur rétt að leggja ákvörðun
um heimild til fjöldatakmörkunai- fyrir
aðalfund. Tillaga stjómarinnar er sú að
stjóminni sé heimilt að setja reglur sem
takmarka fjölda þeirra sem hafa rétt til að
spila vellina okkar við 1.800. Þetta er ekki
ákvörðun um að loka klúbbnum heldur
ákvörðun um að tiltekið hámark sé á
fjölda þeirra sem geta haft full félagsrétt-
indi á hverjum tíma.
Hafa ber í huga að á hverju ári hætta
10-15% félagsmanna að greiða félags-
gjöld í bili þannig að alltaf verður eitt-
hvert rými fyrir inntöku nýrra félaga.
Engu að síður á ég von á því að strax á
næsta ári verði félagafjöldi GR farinn að
nálgast 1.800 og miðað við þróun undan-
genginna ára gerist það í síðasta lagi árið
2002.
Góðir fundarmenn.
Þessi skýrsla stjómarinnar er þegar orð-
in löng. Eg vil þó að síðustu geta þess að
stjóm GR tók sér nokkum tíma á starfsár-
BARMMERKI
Rllf ARAR
VERÐLAUNAPENINGAR
FANNAR
LÆKJARTORGI S: 551-6488
18 KYLFINGUR