Kylfingur - 01.05.2001, Síða 19

Kylfingur - 01.05.2001, Síða 19
inu til þess að víkja frá dægurmálunum og huga að framtíð klúbbsins. Var haldinn sérstakur stjómarfundur í Vestmannaeyj- um eina helgi í haust þar sem farið var yfir reksturinn og reynt var að líta til framtíðar. Stjómin er sammála um að framtíðarsvæði starfsemi GR sé í Grafar- holti og á Korpunni þannig að ekki er stefnt að því að byggja starfsemi klúbbs- ins upp á öðmm stöðum, jafnvel þótt slíkt stæði til boða. Samhljóða niðurstaða stjómarinnar er sú að reyna að ljúka þeim verkefnum sem fyrir hendi eru í Grafarholti og Korpunni og leggja síðan áherslu á að bæta og fegra vellina og umhverfi þeirra og auka gæði þeirrar þjónustu sem félagsmönnum er veitt eins og unnt er. Við viljum að snyrtimennska og alúð við umhverfið verði einkenni á völlunum okkar í framtíðinni. Við viljum losna við rusl og drasl af völlunum eins og unnt er, við viljum sjá trjágróður og vel hirt blómabeð í auknum mæli. Við viljum sjá snyrtilega stíga og vel hirtan völl. Þetta verða aðalmarkmiðin í rekstrinum á næstu ámm. Ég vil að síðustu nota tækifærið til þess að þakka framkvæmdastjóranum Mar- geiri Vilhjálmssyni og öllum öðrurn starfsmönnum GR fyrir samstarfið á árinu sem og starfsmönnum í veitingasölu, kennurum klúbbsins og starfsmönnum og eigendum Nevada Bob. Þá vil ég þakka samstjómarmönnum mínum samstarfið á árinu. Sérstakar þakkir vil ég færa Hilmari Karlssyni sem hefur tekið þá ákvörðun að ganga nú úr stjóm klúbbsins eftir langt og farsælt starf innan stjómarinnar. 'Gestur Jónsson. Þeir Gestur Jónsson, formaður, Ómar Kristjánsson, formaður vailanefndar, og Jón Pétur Jónsson, formaður kappleikjanefndar, voru í fyrsta ráshópi á opnunarmóti Grafarholtsvallar þann 21. maí í fyrra. Á myndunum má sjá að Ómar sér um baksveífluna, Jón Pétur kemur henni af stað og for- maðurinn klárar. Ekki er vitað hvort sveifla, sett saman úr þessum þremur skilar árangri, en þessir kappar hver í sínu lagi eru mjög frambærilegir kylfingar. Árangurinn í fyrsta mótinu bar þess þó nokkur merki að ekki hafi verið æft mikið um veturinn ... KYLFINGUR 19

x

Kylfingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.