Kylfingur - 01.05.2006, Qupperneq 14
ég hef kynnst í gegnum starfið líta það á sinn fjölbreytilega hátt
og enginn dagur er eins.
Hvað finnst þér vera algengustu mistökin sem kylfingar gera
í sveiflunni / golfleik sínum?
Það er mjög algengt að gripið lendi of mikið inn í lófa vinstri
handar. Með því að styrkja gripið sér maður oft ótrúlegustu
breytingar á skömmum tíma. Einnig er hægri handleggur oft
stífur í stað þess að vera mjúkur og eftirgefanlegur. Öfug
sveigja í líkamanum, spenna og átök er svo eitthvað sem mað-
ur þarf að glíma við á hverjum degi.
Mér finnst að fólk mætti leggja ríkari áherslu á þau atriði sem
þurfa að vera í lagi áður en kylfunni er sveiflað. Ég segi stund-
um við krakkana: „Allt sem þú getur gert jafn vel og Tiger
Woods, það skaltu gera!“. Hvort sem þið trúið því eða ekki, er
ýmislegt sem við getum gert jafn vel og hann!
Hvað golfleikinn varðar hjá meginþorra áhugamanna, eru
stærstu mistökin að æfa stutta spilið jafn lítið og raun ber vitni.
Korpan eða Grafarholt?
Grafarholt. Ég myndi aldrei vilja skipta því út fyrir nokkum
annan völl, minningamar em það dýrmætar og hreinlega of
margar.
Dramahollið?
Dramahollið hahaha: Karen - Ólöf - Ragga - Hebba ... eða
draumahollið, Emie Els, Retief Goosen, Annika og Ragga.©
Þú hefur átt glæstan feril hér heima, titill á eftir titH, ár eftir
ár, er einhver titill sem stendur upp úr hjá þér í minningunni?
íþróttamaður Reykjavíkur er líklega heitasta nafnbótin sem
mér hefur hlotnast gegnum tíðina. Eftirminnilegastur er þó Is-
landsmeistaratitillinn frá Akureyri 1985. Nýorðin 15 ára og
gerði mér enga grein fyrir því hvað ég hafði í rauninni afrekað.
Það sem mér finnst þó skemmtilegast að safna eru vallannet.
Vallannet em merkileg að því leyti að enginn hefur gert betur!
Hvort er meira afslappandi, reiðtúr eða
golfhringur?
Bæði betra.©
Hvernig er að vera atvinnumaður í golfi?
Mjög skemmtilegt, mikill heiður og ótrú-
lega mikið af tækifærum sem seint er hægt
að fullþakka og gleðjast yfir. Ég vil samt
nota tækifærið hér. Takk takk.
Verður þú einhvern tímann þreytt á að
keppa/spila ?
Þegar ég var í landsliðinu með stelpumar
mínar litlar var oft erfitt að láta tíma-
rammann passa utan um heildannyndina.
Þau ár voru skemmtileg en jafnframt reyndu
á þolrifin hjá fjölskyldunni minni. Þau ár var
golfið stundað meira af skyldurækni en ein-
skæmm áhuga. Keppnisskapið kom þó í veg
fyrir að ég tæki mér hlé frá baráttunni. Síðan
þá hefur golfáhuginn farið vaxandi aftur og
er svo komið nú um stundir að ég er við það
að springa af hamingju yfir því að vera
kylfingur.
Einhver heillaráð fyrir kylfinga?
Aldrei gleyma hvers vegna þú spilar golf. Þ.e.a.s. til að hafa
gaman af því. Ekki gera of miklar kröfur, bara mátulegar. I sér-
hverjum spiluðum hring finnum við fyrir jákvæðum og nei-
kvæðum tilfinningum - högg sem rnann dreymir um og högg
sem ofsækja mann. Þetta skapar tilfinningalega rússíbanareið
sem við viljum fyrir alla muni forðast, þar sem höfuðmarkmið
okkar er stöðugleiki og styrkur á huglæga sviðinu.
Þegar léleg högg hlaðast upp, og þér fínnst gremjan vera að
ná yfirtökum, rifjaðu þá upp jákvæðar minningar. Kallaðu þá
fram í hugann myndina af því þegar þú byrjaðir á tveimur
skrömbum, en endaðir samt á því að lækka þig í forgjöf. Eða
mundu þegar þú fylgdist með kylfingnum sem tapaði niður for-
skotinu sem hann hafði haft en vann það svo upp í lokin.
Mundu bara, hvort sem góðir eða slæmir hlutir gerast, þá er
alltaf möguleikinn á því að málin taki nýja stefnu. Ekki verða
of glaður eða of stúrinn, jafn hraði er líklegri
til þess að korna okkur á áfangastað, heilum
og höldnu.
Hvernig leggst sumarið í þig?
Sumarið leggst afskaplega vel í mig. Ég er búin að taka ansi
góða golfkennsluskorpu núna þannig að æfingamar hafa verið
af skomum skammti. I júní, júlí og ágúst ætla ég að reyna að
takmarka kennsluna við 2 daga í viku, sinna börnum og búi og
bæta mig í ýmsu sem bæta þarf!
Er eitthvað sem þú vilt bæta fyrir næsta sumar?
Já! Mig langar að eyða meiri tíma með fjölskyldunni minni
og vekja golfáhuga hjá stelpunum mínum. Það er minn æðsti
draumur að við verðum spilafélagar í framtíðinni og þær
rasskelli mömmu sína þó hún spili vel.©
Hvað golftæknina varðar hef ég verið að vinna í aftursveifl-
unni minni og finnst mér sú vinna vera að þokast í rétta átt. Eins
og áður sagði ætla ég samt að setja stutta spilið í forgang.
10 KYLFINGUR