Kylfingur - 01.05.2006, Page 17
Keppnin á mótaröðinni verður mjög hörð næsta sumar,
margarsem vilja steypa þérafstóii væntanlega?
Við viljum allar vinna. Islenskt kvennagolf hefur tekið stór-
stígum framförum hin síðari ár og skorin eru stöðugt að lækka.
Astæðan fyrir því að ég er ennþá á toppnum er einfaldlega sú
að golfið mitt hefur aldrei verið betra. Hinar hafa líka verið að
bæta sig mikið og breiddin í hópnum eykst jafnt og þétt. Mark-
miðið mitt er að njóta sumarsins í botn og spila marga góða
hringi. Ég ætla að æfa af kappi og stefnan er að fara í úrtöku-
mót í haust.
Hvað myndir þú segja að væri þín sterkasta hlið í golfinu?
Mína hlið í golfinu tel ég vera hugarfarið. Ég er eins og gam-
all ostur, sterkari með aldrinum. Leikgleði er mikilvæg vilji
maður endast í keppnisgolfi. Ég verð eiginlega aldrei leið á að
spila og fæ bara ekki nóg. Ég uppgötva oft að mig langar í golf
eftir 18 holu keppnisdag. (Ég læt það líka oft eftir mér, ekki
segja neinum frá!)
I meistaramótinu í fyrra fór ég t.d. upp á Akranes eftir að hafa
spilað 2. hringinn á Korpunni, tók þar nokkrar holur til að
skerpa á spilinu mínu (daginn eftir kom svo vallarmet). Ég geri
oft svona vitleysu sem myndi ekki henta neinum nema mér, en
ég verð að láta hjartað ráða sama hvað ráðgjafamir segja.
Mikið er talað um að það vanti breidd á mótaröð kvenna?
Hvað finnst þér um það?
Ég er ekki sammála! Hefði líklega verið það fyrir nokkrum
ámnt. Mér finnst golf á fslandi vera í stöðugri framför og við
höfum aldrei átt fleiri lágforgjafarkylfinga í kvennaflokki.
En ég vildi sjá fleiri litla velli eins og Grafarkotsvöllinn, þann
sem verið er að fínpússa í Grafarholti. Stuttar brautir með tor-
fæmm, hólum og hæðum sem reynir virkilega á fjölbreytileika
í vippum og fleyghöggum. Ég hef þá trú að þessi litli völlur eigi
eftir að verða útungunarstöð okkar GR-inga hvað varðar afreks-
kylfinga framtíðarinnar.
Er eitthvað eitt golfmót á ári hverju sem þú hlakkar mest til
að spila í?
Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur er í mestu uppáhaldi
hjá mér. í meistaramótinu skapast ákveðin stemming sem er
ólýsanleg. Fólk tekur sér frí í vinnu til þess að vakna fyrir allar
aldir. Félagamir mæta glaðir í bragði á æfingasvæðið, bera sam-
an bækur sínar og mikil samkennd og tilhlökkun er áberandi.
Hinir fjölmörgu flokkar gefa af sér meistara af öllum stærð-
um og gerðum og fjöldinn allur gleðst yfir samvemnni og góð-
um árangri í mótslok. Síðast en ekki síst: Fátt jafnast á við að
ljúka leik á 18. holu í Grafarholti.
íslenskt golfer...
I ömm vexti
Golfklúbbur Reykjavíkur er...
Besti klúbbur í heimi.©
KYLFINGUR 13