Kylfingur - 01.05.2006, Page 18
Sigurvegarar frá Púttkvöldum vetrarins, f.v,: 3. sœti Auðbjörg Erlingsdóttir, l.sœti, Ásta
Jósefsdóttir, 2. sœti Ardís Erlendsdóttir og 4. sœti Sigríður Flyering.
14 KYLFINGUR
Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður var veislustjóri og
kunni vel við sig innan um skvísurnar sem voru á öllum
aldri, ungir afreksmenn úr meistaraflokki GR þjónuðu til
borðs og sýndu nýjustu golftískuna frá Nevada Bob.
Stefán Hilmars og Eyfi sungu nokkur lög og tóku GR-
konur vel undir, þá sérstaklega þegar þeir sungu Nínu,
vinsœlasta Eurovisionlag íslendinga. Ragnhildur
Sigurðardóttir sló í gegn með rœðuhöldum og fjölda-
söng en hún er sérstaklega vinscell golfkennari meðal
GR kvenna. Dregið var í happdrœtti og veitt voru
verðlaun fyrir besta árangur á púttkvöldum vetrarins
þar sem keppnin var hörð enda Evrópuferð í fyrsta
vinning. Sigurvegari varð Ásta Jósefsdóttir. í lok kvölds
fengu konurnar salsakennslu og drifu sig á dansgólfið
sem var nýtt til hins ítrasta þessa kvöldstund. Höfðu GR-
konur á orði að kvöldið hefði verið gífurlega vel heppn-
að og þjappað konunum saman fyrir komandi golf-
sumar.
Sigurður Kári veislustjóri, Ragnhildur Sigurðardóttir rœðurmaður kvöldsins og Stefanía M. Jóns-
dóltir.