Kylfingur - 01.05.2006, Page 23
Á þessari mynd má sjá d.flötina eftir fyrsta slátt.
Ágætu kylfingar í GR. Nú þegar þessi
grein er skrifuð er undirbúningur fyrir
opnun Korpunnar í fullum gangi. Vet-
urinn hefur verið hinn ágætasti og
kemur völlurinn mjög vel undan vetri
þrátt fyrir að hann sé seinni til en
venjulega sökum lélegs aprílmánaðar.
Það hefur einnig komið berlega í ljós að
sú ákvörðun að hafa Korpuna lokaða í
vetur og einungis að leyfa spil á Litla-
vellinum hefur margborgað sig og er
ástandið á brautum og álagssvæðum á
Korpunni í mjög gúðu ástandi og lofar
góðu fyrir sumarvertíðina.
Ymsar framkvæmdir hafa verið á vell-
inum í vetur, settir hafa verið þrír nýir
gervigrasteigar, á holum 3, 5 og 9, þetta
eru allt holur þar sem jám em mjög oft
notuð í upphafshögg og ættu þessir gervi-
grasteigar því að veita aðalteigunum kær-
komna hvíld þegar á þarf að halda. Það
hefur sýnt sig undanfarin tvö sumur að
þeir teigar sem eru með gervigrasteiga til
þess að dreifa álaginu hafa lagast mikið.
Einnig var hafist handa við að endur-
byggja og stækka klúbbteiginn á fimmtu
braut, sá teigur var orðinn ansi illa farinn.
Teiguiinn vai- mokaður upp og skipt um
rótarlag og hann stækkaður um sem nem-
ur ca 230m2 til vinstri og ætti þessi teigur
því að taka betur við umferð heldur en sá
gamli. Teigurinn verður tyrfður um leið
og hægt verður að fá nógu gott torf á
hann. Hér fyrir neðan má sjá mynd frá
framkvæmdunum á fimmta teig.
Stærsta framkvæmdin í vor er breyting-
in á 10. brautinni, brautin var endurhönn-
uð og er búið að koma fyrir 5 glompum
hægra megin á brautinni ásamt því að
komið verður fyrir trjágróðri, einnig
hægra megin á brautinni. Svæðið fyrir
framan flötina og göngusvæðið frá flöt-
inni og að 11. teig var ræst út með dren-
skurðum þar sem þetta svæði hefur ávallt
verið til vandræða sökum bleytu. Brautin
hefur hingað til verið frekar karakterlaus
Vinna við 5. teig.
KYLFINGUR 19