Kylfingur - 01.05.2006, Síða 45

Kylfingur - 01.05.2006, Síða 45
KAPPLEIKJA- SUMARIÐ 2005 Því miður þá komu vellirnir okkar ekki vel undan vetri, en þó virðist það ekki hafa haft áhrif á þátttöku í vormótum okkar. Þátttaka var með besta móti, eins og vanalega. Þá var mótaflóran okkar mjög fjölbreytt. Einnig var gerð sú breyting að fækkað var opnum mótum þar sem ræst var út af öllum teigum (shotgun), þó verð ég að segja það að það er miklu þægi- legra að halda utan um mót þegar allir fara út í einu, menn hittast vel fyrir teig, spjalla saman, síðan er haldið út á sinn teig, það koma allir inn í einu, þá myndast oft góð stemming og allir fylgjast með verðlaunaafhendingu. En ef ræst er út af 1. teig eingöngu, þá eru ekki einu sinni verðlaunahafar í salnum til að taka við sínum verðlaunum í mótslok og því eiginlegar verðlaunaaf- hendingar ekki haldnar í leikslok. Hæst ber að minnast glæsilegs meistaramóts, sem er líklega stærsta ein- staka golf-innanfélagsmót í heimi, 510 kylfingar skráðu sig í mótið úr öllum flokkum. Það er met. Eg efast um að í sumar verði ráðið við fleiri þátttakend- ur, en stefnan er að allir sem vilja geti verið með. Þó nokkur umræða hefur verið um boðsmót fyrirtækja og lokun Grafar- holtsins vegna þeirra. Þegar vel er að gáð þá kemur í ljós að vellir GR eru opn- ir um 80% fyrir hin almenna félagsmann. Hafa ber í huga að tekjur sem koma inn í félagið og veitingasölu gera það að verkum að félagsgjöld eru sem nemur 25% lægri enn ella. Gerð var könn- un fyrir sumarið 2004 meðal félagsmanna GR hvort ætti að hætta þessari fjár- öflun og þá hækka árgjöld til að standa undir rekstri og framkvæmdum, svar- ið var alveg á hreinu 79% svömðu neitandi. Þó skal því tii að svara að stefna okkar í nefndinni er að lágmarka lokun valla eins og hægt er, en oft er erfitt að finna þennan fræga gullna meðalveg. Undirritaður yrði þó fegnastur því að hætta að stómm hluta við boðsmót fyr- irtækja og hækka árgjald, en er það mín persónulega skoðun. Forgjafarmál brenna alltaf á vömm allra þeirra sem em að keppa, því eins og allir vita þá er hver og einn ábyrgur fyrir sinni forgjöf. Við hjá kappleikja- nefnd höfum reynt að taka hvem verlaunahafa út og athuga hvort forgjöf hans sé rétt innfærð og hvort rétt hreyfing hafi verið á henni. Sem betur fer þá hef- ur ekki komið til þess að svipta kylfinga verðlaunum. Könnun sem tekin var af golf.is um fjölda þeirra kylfinga í GR sem færa inn 4 hringi eða meira á ári til forgjafar kom þó mjög á óvart, um 49% með- lima GR færa inn 4 hringi eða meira. En áhyggjuefni er að 51% félagsmanna færa jaftivel engan hring inn og em þá með ógilda forgjöf samkvæmt ströng- ustu reglum. Skora ég á alla kylfinga að færa sómasamlega inn 5-10 hringi á hverju sumri til að forgjöfin sé rétt uppfærð og valdi engum heilabrotum þegar topp- hringurinn loksins kemur. Stefna GR er að engin vinni til verðlauna, nema leikið sé með rétta forgjöf. A það við öll mót sem GR heldur, opin sem og innanfélags. Þegar talað er um leikna hringi þá er miðað við tímabilið 1. júní til 31. maí. Lágmark er að skrá inn 4 leikna hringi. Við komum til með að setja þetta skilyrði inn í alla okkar keppnisskilmála árið 2006. Með golfkveðju Jón P. Jónsson, form. kappleikjanefndar GR. Stjórn GR árið 2005 Gestur Jónsson tormadur, Jón Pétur Jónsson varaformaður, Stefán Svavarsson gjaldkeri Helga Hardardóttir ritari, Viggó H. Viggós- son, Stefán Gunnarsson, Björn Víglundsson Varastjórn: Rakei Kristjánsdóttir, Bernhard Bogason, Magnús Oddsson Framkvœmdastjóri: Margeir Vilhjálmsson Skipan nefnda 2005 Fjármálanefnd Stefán Svavarsson formaður, Jón Pétur Jónsson, Helga Harðardóttir Afreksnefnd Magnús Oddsson formaður, Einar Snorri Sigurjónsson Unglinganefnd Viggó H. Viggóson formaður Valla- og bygginganefnd Stefán Gunnarsson formaður, Gestur Jónsson, Gísli G. Hall, Guðmundur Pálmi Kristinsson, Júlíus Bernhurg Kvennanefnd Guðlaug Kristín Pálsdóttir, formaður, Rakel Kristjáns., tengiliður stjórnar, Brynja Guðmundsdóttir, Sigrún Sigurðar- dóttir, Anna Björk Birgisdóttir, Rósa Guð- mundsdóttir, Marólína Erlendsdóttir Öldunganefnd Halldór B. Kristjánsson formaður, Jóhanna Bárðardóttir, Guðmundur Vigfússon, Viktor Slurlaugsson Kappleikjanefnd Jón Pétur Jónsson formaður, Margeir Vil- hjálmsson, Ómar Örn Friðriksson Húsanefnd Rakel Kristjánsdóltir formaður, Helga Hilmarsdóttir Forgjafar- og aganefnd Jónas Valtýsson formaður, Guðni Hafsteinsson. Stefán Pálsson Básanefnd Björn Vfglundsson formaður, Rafnar Hermannsson, Jón Karl Ólafsson Ritnefnd - Kylfingur og heimasíða Bernhard Bogason formaður Rekstrarnefnd Bása Björn Víglundsson formaður, Jón Karl Ólafs- son, Rafnar Hermannssonjón Pétur Jónsson Nefnd um skoðun á rekstri og starfi GR: Ragnar H. Hall formaður, Kolbeinn Kristinsson, Kristín Guðmundsdóttir, Friðbert Traustason, Arni Tómasson KYLFINGUR 2. TBL. MAÍ 2006 Útg. Golfklúbbur Reykjavíkur • Ábm. Margeir Vilhjálmsson • Ritstjóri Bernhard Bogason • Greinar og viðtöl: Haraldur Heimisson, Þorsteinn Svörfuður, Margeir Vilhjálmsson, Jón Pétur Jónsson ofl. • Ljósm.: Margeir Viihjálmsson, Frosti Eiðsson, Friðþjófur Helgason og ofl. • Hönnun/umbrot: Halldór B. Kristjánsson/Leturval Lestur: Auðbjörg Erlingsdóttir • Prentun: Oddi hf. KYLFINGUR 41
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Kylfingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.