Kylfingur - 01.05.2006, Blaðsíða 49
Miklar framkvœmdir a vóllum GR
8. flöíin stœkkar umtalsvert ug koma t vœr nýjar glompur í staö
þeirra tveggja sem teknar voru úr umferð.
fullkláruð og vökvunarkerfisleiðslum komið fyrir. í apríl var Ioks tyrft yfir
svæðið og er ætlunin að opna inn á nýju flatirnar í byrjun júní.
12. flötin í Grafarholti var einnig tekin í gegn og nýtt torf lagt á hana. Æfingaflöt
sem var við Bása var tekin upp og var torf frá þeirri flöt notað á 12. Þessi fram-
kvæmd er hluti af framtíðarverkefni klúbbsins til að bæta ástand Grafarholtsvallar í
framtíðinni. Nauðsynlegt verður á næstu ámm að taka upp og endurhanna flestar af
eldri flötum vallarins til að tryggja gott ástand þeirra til frambúðar.
Þess má geta að svæðið vinstra megin við 16. flöt hefur einnig verið lagað og ný
glompa mun koma til með að stríða kylfingum á komandi sumri.
í nógu að snúast á Korpunni
Framkvæmdir hafa einnig verið í fullum gangi á vormánuðum á Korpunni. Agúst
Jensson og starfsmenn hans hafa unnið gríðarmikla og góða vinnu sem sést greini-
lega á 10. braut þar sem 5 nýjar glompur hafa verið gerðar. Vallarmörk hægra meg-
in hafa verið lengd og færð nær brautinni. Nýju glompumar sem og trjágróður sem
gróðursettur var við vallarmörkin setja skemmtilegan svip á brautina og verður
brautin, án efa, ekki lengur ein af auðveldari brautum vallarins. Sjá meira um
framkvæmdir á Korpunni í grein Agústar Jenssonar vallarstjóra annars staðar í
blaðinu.
Skýrsla
öldunganefndar
2005
Öldunganefnd GR stóð fyrir mótaröð
sumarið 2005 eins og undanfarin sum-
ur svokölluð ICELANDAIR-mótaröð
öldunga GR þar sem Icelandair styrkti
starf öldunga veglega með verðlaun-
um.
Einnig styrktu Tryggingamiðstöðin hf,
Flugfélag íslands og Hótel Edda móta-
röðina.
Öldunganefndin vill þakka þessum að-
ilum höfðinglegan stuðning.
Keppt var í þremur flokkum;
konur 50 ára og eldri, karlar 55 ára og
eldri, sem léku af gulum teigum og
karlar 70 ára og eldri, sem léku af
rauðum teigum.
Alls vom mótin 8 talsins, 4 dagar í
Grafarholti og 4 dagar á Korpu.
Keppt var í höggleik, veitt þrenn verð-
laun í hverjum flokki, með og án forgjaf-
ar.
Fimm bestu skor samanlagt veittu rétt
til verðlauna.
Auk þess var valið úr þessum mótum,
án forgjafar, fimm einstaklingar úr karla-
flokki 55+ og þrír úr kvennaflokki, til
þátttöku í sveitakeppni GSÍ sem haldin
var á golfvelli Golfklúbbs Vestmanneyja.
Klúbbmeistarar úr kvenna- og karlaflokki
vom einnig valin, auk liðstjóra og vara-
manna.
GR sendi 2 sveitir í sveitakeppnina.
Karlasveitin varð í 3. sæti og kvennasveit-
in í 2. sæti.
íslandsmót Öldunga haldið á Akranesi.
GR-konur 50+ urðu í 5., 6. og 7. sæti,
GR-konur 65+ urðu í 4., 5., 6. og 9. sæti,
GR-karlar 55 ára og eldri vom í 3., og 15.
sæti og GR-karlar 70 ára og eldri 2. og
10. sæti.
í lok september var haldið lokahóf þar
sem verðlaun voru veitt fyrir sumarið og
eitt og annað gert sér til skemmtunar og
fróðleiks.
I Öldunganefnd voru Ómar Arason for-
maður, meðstjómendur voru Agúst Geirs-
son, Hilmar Karlsson og Rristín Ó. Ragn-
arsdóttir
Ég vil við þetta tækifæri þakka þeirn
fyrir samstarfið.
Omar Arason.
KYLFINGUR 45