Kylfingur - 01.05.2006, Side 50
AFREKSSTARF
- stefnan sett hœrra og hærra
Kvennasveit GR varð Islandsmeistari 2005. Aftari röð f.v.: Herborg Arnarsdóttir, Ragnhildur
Sigurðardóttir, Anna Lísa Jóhannsdóttir, David Barnwell, liðstjóri og Lára Hannesdóttir.
Fremri röð f.v.: Hanna Lilja Sigurðardóttir, Helena Arnadóttir og Tinna Arinbjarnardóttir
kylfuberi.
Það má segja að árangur síðasta árs í
unglingaflokkum hafi verið frábær.
GR eignaðist 8 íslandsmeistaratitla
unglinga, 5 í höggleik og 3 í holukeppni
og 3 stigameistaratitla á KB Banka-
mótaröðinni. Krakkarnir blönduðu sér
í toppbaráttuna í nær öllum mótum á
KB Bankamótaröðinni og margir
spreyttu sig á Toyotamótaröðinni líka.
Þar má helst nefna Pétur Frey Péturs-
son sem náði frábærum árangri á
Toyotamótaröðinni, bæði á Hellu og á
Korpunni.
Ragnhildur Sigurðardóttir átti sitt besta
ár í fyrra. Hún varð tvöfaldur Islands-
meistari, vann tvö önnur mót á Toyota-
mótaröðinni, varð stigameistari og var
kosin Iþróttamaður Reykjavíkur. Kvenna-
sveitin vann sveitakeppnina og karlasveit-
in var hársbreidd frá sigri í sveitakeppni
karla. Ekki vannst sigur karlamegin á
Toyotamótaröðinni og var það annað árið
í röð sem það gerist. Markmiðið verður
að vera sigur næsta sumar á mótaröðinni
en GR hefur innanborðs fjölmarga kylfin-
ga sem hafa hæfileikana og viljann til að
sigra á einu eða fleiri mótum sumarsins.
Síðasta ár var hins vegar gott á marga
vegu hjá körlunum, Pétur Óskar Sigurðs-
son var nálægt sigri í íslandsmóti í holu-
keppni og Ólafur Már Sigurðsson var
einu höggi frá sigri í Islandsmóti í högg-
leik.
Breyttar œfingar
Kennsla afrekshópsins var í höndum
Derricks Moore í vetur rétt eins og fyrri
vetur. Æfingar hófust um miðjan nóvem-
ber og var ein æfing á viku á hvern af-
rekskylfing en sameiginlegar opnar æf-
ingar gaf kylfingum tækifæri á að mæta
oftar. Eftir janúarmánuð breyttust æfing-
amar og vom tvær æfingar á hvem af-
rekskylfing. Sú breyting var á æfingum
vetrarins að afrekshópnum var skipt í sex
manna hópa. I hverjum hópi voru tveir
meistaraflokkskylfingar, 2-3 úr pilta-
flokki, 16-18 ára og 1-2 úr drengjaflokki,
14—15 ára. I stelpuhópnum voru átta
kylfingar, þar af einn úr meistaraflokki, 4
stúlkur 16-18 ára og 3 telpur 14—15 ára.
Með þessu móti fengu afreksunglingar að
æfa með bestu kylfingum klúbbsins og
læra af þeim. Þessi nýbreytni hefur reynst
mjög vel meðal hópsins og hefur skapað
betra andrúmsloft og meiri samheldni
meðal alls afrekshópsins en áður var.
Snmarið 2006
Næsta sumar verður mjög annríkt hjá
afrekshópi GR. Mótin em fljót að koma
og fara og áður en langt um líður er kom-
inn október og undirbúningur næsta árs
að byrja. Stutta íslenska sumarið krefst
mikils undirbúnings af kylfingum sem
vilja ná árangri á mótaröðunum. Ómark-
vissar eða ónógar æfingar koma fljótt í
ljós. Gerð hefur verið stigaformúla sem
sýnir mjög vel hvemig afrekskylfingar
æfa um veturinn. Stigaformúlan leggur
áherslu á bolta slegna í Básum utan æf-
inga, mætingar á æfingar og einkunn
kennara. Hjá unglingum stóð Amór Ingi
Finnbjömsson sig best allra í vetur en
stutt á eftir honum kom Guðmundur
Agúst Kristjánsson og Haraldur Franklín
Magnús.
Markmið afreksstarfs GR er alltaf að
gera betur og finna nýjar og betri leiðir til
að hjálpa afrekskylfingum klúbbsins að
ná lengra í íþróttinni. Sett voru af stað
stöðupróf hjá piltahópnum sem sýndi
hæfni þeirra í að hitta skotmörk í Básum.
Alls vom slegnir 60 boltar á 4 skotmörk.
Daginn eftir stöðuprófin voru 6,5 km
hlaup frá Básum, niður að Gullinbrú og
tilbaka. Nú þegar hefur GR innan sinna
raða marga af bestu afreksunglingum
landsins en ávallt er nauðsynlegt að setja
markið hæma og hærra. Við viljum að
bestu unglingar okkar verði meðal þeirra
bestu í Evrópu. Fyrsta skrefið að því
markmiði er góður undirbúningur og loks
senda unglinga á keppnir erlendis. Ungl-
ingar verða valdir í ferðina miðað við ár-
angur sumarsins og ástundun, bæði vetrar
og sumars.
GR er ávallt að leita að ungum og efni-
legum kylfingum. Stór hluti af því mark-
miði er gott unglingastarf, sem er í hönd-
um David Bamwell. í sumar munu ungl-
ingar keppa reglulega og hvetjum við þá
til að keppa á KB bankamótaröð unglinga
en góður árangur þar er skilyrði fyrir því
að komast í afrekshóp GR. Sett verður á
fót framtíðarhópur GR sem mun inni-
halda bestu kylfinga klúbbsins 13 ára og
yngri með það að leiðarljósi að GR muni
áfram vera í fremstu röð í afreksgolfi á ís-
landi á næstu árum og áratugum.
Við bjóðum GR-ingum að kíkja á hina
nýju og bættu heimasíðu GR til að fá upp-
lýsingar um afreksstarf klúbbsins og af-
rekskylfinga þess.
Styðjum við bakið á okkar fólki og
hvetjum þau áfram í sumar.
hhh.
46 KYLFINGUR