Kylfingur - 01.05.2006, Blaðsíða 72
stjom
Fundur hófst á slaginu 20:00.
Hjörleifur B. Kvaran var kjörinn fundar-
stjóri og Helga Harðardóttir, fundarritari.
Dagskráfundarins:
1. Skýrsla stjómar.
2. Kynning á endurskoðuðum ársreikn-
ingi félagsins.
3. Umræður um skýrslu fonnanns og árs-
reikning sem síðan skal borin upp til
samþykktar.
4. Umræður og atkvæðagreiðsla fram-
kominna tillagna skv. 19. gr. ef ein-
hverjar eru.
5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir
næsta starfsár.
7. Kosning stjómar- og varamanna.
8. Kosning tveggja endurskoðenda og
eins til vara.
9. Önnur málefni, ef einhver eru.
Fundarstjóri kannaði hvort löglega hafi
verið boðað til fundarins og lýsti hann
fundinn lögmætan.
1. Gestur Jónsson, formaður flutti
skýrsla stjórnar vegna starfsárs-
ins 1.11. 2004 tU 31.10. 2005
Á starfsárinu létust 8 félagar í Golfklúbbi
Reykjavíkur.
Þeir voru:
Anna Margrét Guðmundsdóttir
Friðrik Andrésson
Guðlaug Sveinsdóttir
Gunnar Mogensen
Halldór Birgir Olgeirsson
Jóhann Friðjónsson
Kristinn Hermannsson
Sigurbjörg Ámundadóttir
Ég vil biðja fundarmenn að minnast þess-
ara látnu félaga okkar með því að rísa úr
sætum.
Á starfsárinu var stjórn Golfklúbbs
Reykjavfkur þannig skipuð:
Gestur Jónsson,formaður.
Jón Pétur Jónsson, varaformaður
Stefán Svavarsson gjaldkeri.
Meðstjómendur vom:
Omar Arason, Björn Víglundsson,
Stefán Gwmarsson og Viggó Viggós-
son.
I varastjóm sátu Rakel Kristjánsdóttir,
Helga Harðardóttir og Magnús Oddsson.
Haldnir vom 14 bókaðir stjómarfundir.
Eins og undanfarin ár sat varastjóm alla
stjórnarfundi, ásamt framkvæmdastjóra.
í lok starfsársins voru félagar í Golfklúbbi
Reykjavíkur 2264 þar af eru 28 ævifélag-
ar og 8 heiðursfélagar. Félagsmenn sem
greiða árgjald eru því 2230. Félagsmönn-
um sem greiða árgjald hefur fjölgað um
104 frá fyrra ári. Þá eru 81 krakki yngri en
17 ára aukafélagar í klúbbnum með tak-
mörkuð réttindi til þess að spila velli
klúbbsins. Loks seldi klúbburinn 353
sumarkort á Litla-Völlinn. Það em því um
2.700 manns sem höfðu rétt til þess að
leika vellina okkar á síðasta sumri. Karlar
em 1.691 en konur 573. Hlutfall kvenna
hefur hækkað lítillega og er nú 25,3%.
Á aðalfundi GR árið 2000 var stjóm
heimilað að takmarka fjölda félagsmanna.
í lok starfsárs vom 628 manns biðlista.
Fjármálin
Gjaldkeri klúbbsins mun gera nánari
grein fyrir reikningunum hér á eftir.
Framkvœmdir ársins
Helstu nýframkvæmdir við velli
klúbbsins í ár voru:
Grafarholt:
• Byggð var upp ný æfingaaðstaða fyrir
stutta spilið í Grafarkoti, aftan við
Bása. Um er að ræða stórar pútt- og
vippflatir auk sex holu vallai- með
stuttum brautum. Grafarkotsvöllurinn
verður opnaður í vor og þar með nálg-
ast Golfklúbbur Reykjavíkur það
markmið að geta boðið félagsmönnum
sínum alhliða, fyrsta flokks æfingaað-
stöðu.
• Gervigras var sett á 6000 m2 svæði í
Básum. í vetur kom í ljós að handtína
þurfti þúsundir bolta sem sukku í
bleytu dag eftir dag. Settur var jarð-
vegsdúkur yfir svæðið, bögglabergs-
og sandlag þar ofan á og síðan gervi-
grasið. Við höfðum ekki gert ráð fyrir
því að þessi framkvæmd væri nauð-
synleg en annað kom í ljós fyrst niður-
staðan varð sú að nýta aðstöðuna í
Básum ailt árið.
• Á 4. braut var sett ný glompa.
• Hiuti 8. brautar var endurmótaður og
þar settar tvær nýjar glompur.
• Á 11. braut var skipt um efni og endur-
tyrft svæðið fyrir ffaman flötina. og
sett ný glompa.
• Þá hefur 12. fötin verið endurtyrfð
með minniháttar endurmótun.
• Varanlegur vegur inn á völlinn var
gerður við tólftu brautina og rauði teig-
urinn endurgerður.
• Nýir grasteigar voru gerðir á 13. og 14.
braut í Grafarholti.
• Efri hluti 15. brautar í Grafarholti var
endurgerður og þar gerðar 4 nýjar
glompur.
• Nýr teigur tekinn í notkun á 18. braut.
• Þrír nýir gervigrasteigar voru gerðir á
13., 14. og 15. braut vallarins
• Nú í haust hófust framkvæmdir við
endurgerð 4. og 8. flatarinnar í Grafar-
holti í tengslum við lagningu göngu-
stígs á milli flatanna sem mun síðan
fylgja veginum vinstra megin m'undu
brautaiinnar og út af vellinum upp í
Árbæjarhverfi.
68 KYLFINGUR