Kylfingur - 01.05.2006, Qupperneq 80
skuldir vegna mannvirkisins. í mínum
huga er enginn vafi á því að rekstur Bása
í þessu formi á eftir að styrkja GR mjög til
langrar framtíðar og það er sá afsláttur
sem gagnast GR ingum mest þegar upp
verður staðið.
4 Golfehf.
Loks finnst mér nauðsynlegt að víkja
nokkrum orðum að umræðunni sem orð-
ið hefur um aðkomu Margeirs Vilhjálms-
sonar, framkvæmdastjóra GR, að hug-
myndinni um að byggja upp heimsklassa
golfvöll á söndunum austan Þorlákshafn-
ar.
Eins og þið vitið sjálfsagt öll þá fékk
málið á sig alveg nýja mynd þegar sjálfur
Nick Faldo birtist á Islandi fyrir nokkmm
vikum ásamt frægum golfvallaarkitekt.
Þessir menn eyddu tveimur eða þremur
dögum á staðnum með Margeiri og Páli
Ketilssyni, frænda hans, og áttu að því
loknu vart orð til þess að lýsa því hvað
þeim þætti þetta spennandi verkefni.
Umræðan á spjallinu gengur út á það
að þama sé Margeir að vanrækja starf sitt
sem framkvæmdastjóri GR og jafnvel
hafa verið settar fram getgátur og dylgjur
um að GR sé á fullu í þessu verkefni.
I lífinu er það þannig að maður hittir
margt fólk. Flestir fylgja straumnum en
einstaka rnaður fer aðrar leiðir. Sumir
menn eru í eðli sínu hugmyndasmiðir og
framkvæmdamenn. Þannig menn em fáir
en þeir eru hverju samfélagi dýrmætir,
hvort sem það samfélag heitir ísland,
Golfklúbbur Reykjavíkur eða golfíþróttin
á Islandi.
Ég er þeirrar skoðunar að Margeir Vil-
hjálmsson fylli síðari flokkinn. Ég hef
umiið með honum í sjö ár og leyfi mér að
segja það eftir þau kynni að hann hefur í
senn yfirburðaþekkingu á öllu sem varðar
golf og golfíþróttina, kraft til þess að
framkvæma hluti og síðast en ekki síst
þann hugmyndaþrótt sem þarf til þess að
standa fyrir framförum. Margeir hefur
með góðu samþykki stjómar GR verið
fjölmörgum öðrum golfklúbbum á Islandi
til aðstoðar og ráðgjafar á undanfömum
ámm. Ætli hugmyndin um vinavellina og
sú staðreynd hve vel það samstarf hefur
gengið eigi sér ekki nokkrar rætur í slíku
samstarfi. Þegar Margeir ræddi við mig
snemrna í sumar um að hann teldi að
grundvöllur gæti verið fyrir því að bygg-
ja einstakan golfvöll í heimsklassa á ís-
landi og hann væri búinn að finna staðinn
fyrir slíkan völl og hann teldi sig geta
fengið Faldo til þess að hanna völlinn þá
hvatti ég Margeir til þess að skoða þetta
mál áfram.
Á næsta stjómarfundi GR sem var 23.
júní gerði Margeir stjóminni grein fyrir
málinu og þar varð það einróma niður-
staða allra stjómarmanna að gera ekki at-
hugasemdir við að Margeir kannaði
gmndvöll þessarar hugmyndar þótt hann
væri á sama tíma framkvæmdastjóri GR.
Stjómin lítur einfaldlega svo á að það
væri stórkostlegur hvalreki fyrir golf á ís-
landi ef svona hugmynd gæti orðið að
veruleika. Við teljum það ekki andstætt
hagsmunum GR, nema síður væri, að
þessi hugmynd sé könnuð í þaula. Komi
til þess að fjárhagslegur grundvöllur fyrir
uppbyggingu vallarins finnist er auðvitað
líklegt að kallað verði á Margeir til þess
að stýra því verki. Fram til þess tíma vona
ég að GR megi áfram njóta krafta hans
sem framkvæmdastjóra.
Það skal tekið fram að Golfklúbbur
Reykjavíkur á engan þátt í þessu máli og
enga aðild að félaginu Golf ehf sem Mar-
geir stofnaði að mínu ráði utan um þetta
hugarfóstur sitt.
Hvað erframundan?
Þótt Golfklúbbur Reykjavíkur sé fjár-
hagslega mjög sterkt félag þá er peninga-
leg staða klúbbsins mun lakari en hún var
á síðasta aðalfundi eins og gjaldkeri
klúbbsins mun gera nánar grein fyrir hér á
eftir. Ástæðan er sú að klúbburinn hefur
staðið í miklurn framkvæmdum undan-
farin ár og hagnaður af rekstri og framlög
Reykjavíkurborgar hafa ekki nægt til þess
að jafna metin. Þetta ár sýnist mjög erfitt
því bygging Grafarkotsvallarins og frá-
gangurinn í Básum ásamt öðrum frarn-
kvæmdum á völlunum okkar kostuðu um
70 mkr. og til þess að standa undir kostn-
aði af þessum framkvæmdum hefur enn
enginn styrkur fengist frá Reykjavíkur-
borg. Ég vil þó nota þetta tækifæri til þess
að skýra ykkur frá því að ég tel víst að
samningar muni takast við borgaryfirvöld
á næstu vikum um uppbyggingu hjá GR á
næstu 6 til 7 ámm. Þeir samningar eru í
pípunum eins og það er stundum orðað og
þá mun, ef ég met stöðuna rétt, fást stuðn-
ingur m.a. til þeirra framkvæmda sem við
höfum þegar lokið. Ég leyfi mér því að
trúa því að peningaleg staða klúbbsins
batni mjög fljótlega þegar niðurstaða fæst
í þeim viðræðum sem við eigum í við
borgina.
Það væri bæði flókið og langt mál að
skýra út viðræður okkar við borgaiyfir-
völd sem hafa staðið frá haustinu 2004.
Borgarráð skipaði nefnd til viðræðna við
GR sem í vom fulltrúar ÍTR og skipulags-
ins og átti sú nefnd að skila tillögum fyrir
15. sept sl. Nefndin skilaði tillögum í
október og þar var gerð tillaga um að
gerður yrði samningur við GR til 6 ára
sem fæli í sér stuðning borgarinnar við
uppbyggingu á völlum okkar á þeim tíma
og sá stuðningur yrði 60 mkr. Inn í þeirri
uppbyggingu er m.a gert ráð fyrir stækk-
un Korpúlfsstaðavallar í 27 holur. Gert er
ráð fyrir að samhliða verði Koipúlfsstaða-
vellinum mörkuð varanleg landamerki og
um hann gerður samningur til 50 ára
þannig að unnt sé að halda áfram upp-
byggingu vallarins í trausti þess að um
varanlegar lausnir sé að ræða. Þá er lagt til
að samningurinn taki til þátta eins og
Grafarkotsvallarins, sem er reyndar næst-
um tilbúinn, breytinganna í Básurn og
þjónustubyggingar við Bása, nýs áhalda-
húss við Grafarholtsvöllinn, endurbóta á
Grafarholtsvellinum og fleiri atriða.
Borgairáð afgreiddi í síðustu viku til-
lögur nefndarinnar m.a. með þeim hætti
að samþykkja að veitt verði fjánnagn,
með sérstökum samningi milli Reykja-
víkurborgar og GR, vegna þeiira fram-
kvæmda sem GR hefur óskað eftir að ráð-
ist verði í á næstu ámm. Eftir að þessi
samþykkt var gerð hef ég átt fund með
borgarstjóra um málið og jafnframt verið
í sambandi við Önnu Kristinsdóttur, for-
mann ÍTR, og við stefnum að því að ljúka
þessari samningsgerð í samræmi við sam-
þykkt borgarráðs á næstu vikum.
Góðir fiindannenn
Ég vil að síðustu nota tækifærið til
þess að þakka framkvæmdastjóranum
Margeiri Vilhjálmssyni og öllum öðmm
starfsmönnum GR fyrir samstarfið á
starfsárinu sem og staifsmönnum í veit-
ingasölu og kennumm klúbbsins. Ég vil
þakka samstjómarmönnum mínum sam-
starfið og þá sérstaklega Ómari Arasyni,
sem hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér
til endurkjörs. Ómar hefur setið í stjóm
undanfarin fjögur ár og reynst okkur góð-
ur liðsmaður. Hann hefur haft umsjón
með öldungastarfi GR með miklum ágæt-
um og lagt á sig ómælda vinnu í því sam-
bandi. Ég ítreka þakkir til Ómars og óska
honum velfamaðar og lækkandi forgjafar.
2. Kynning á endurskoðuðum árs-
reikningi féiagsins.
Stefán Svavarsson gjaldkeri fór yfir
ársreikning GR. Tekjur námu samtals
225,1 mkr. samanborið við 176,6 mkr.
árið áður. Hækkun tekna vegna Bása á
milli áranna nam 17 mkr. Heildargjöld
nárnu 208,8 mkr. samanborið við 157,3
mkr. Launakostnaðar er u.þ.b helmingur
af gjöldum klúbbsins. Tekjuafgangur án
vaxta nam 16,2 millj. kr. samanborið við
76 KYLFINCUR