Fréttablaðið - 29.11.2010, Síða 17
FASTEIGNIR.IS
29. NÓVEMBER 201048. TBL.
F élag fasteignasala hefur tekið að sér að dreifa fræðsluefni um eldvarn-ir til félagsmanna sinna en gert er ráð fyrir að handbók um eldvarnir
heimilisins fylgi hverjum gerðum kaupsamningi. Eldvarnabandalagið
gefur efnið út og stendur straum af kostnaði.
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segist ánægður
með að geta tekið þátt í svo mikilvægu verkefni. „Þegar fólk kaupir húsnæði er
einmitt gott tilefni til þess að huga að eldvörnum og tryggja að á nýja heimil-
inu séu nægilega margir reykskynjarar og annar eldvarnabúnaður.” Grétar og
Björn Karlsson brunamálastjóri skrifuðu undir samkomulag þessa efnis nýverið
og gildir það til tveggja ára. Í því segir meðal annars að aðilar séu sammála um
mikilvægi þess að auka eldvarnir á heimilum til að draga úr líkum á tjóni.
Í handbók heimilisins um eldvarnir sem Eldvarnabandalagið gaf út á dögun-
um er að finna upplýsingar og ráð um nánast hvaðeina sem snertir eldvarnir á
heimilum. Fjallað er meðal annars um reykskynjara, flóttaáætlun, slökkvibúnað,
gas, og eldfim efni, brunahólfun, eldvarnir fjölbýlishúsa og brunatryggingar.
Eldvarnabandalagið er samstarfsvettvangur um auknar eldvarnir heimil-
anna. Aðild að því eiga: Brunamálastofnun, Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag
Íslands, Félag slökkviliðsstjóra, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins, TM hf., VÍS hf. og Vörður tryggingar hf.
Fræða um eldvarnir
Björn Karlsson
brunamálastjóri og
Grétar Jónasson,
framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala,
hampa handbók um
eldvarnir heimilisins.
Fasteignasalan Miklaborg er
með á skrá parhús í Hjalla-
hverfi í Kópavogi.
Eignin er 214,6 fm parhús með
innbyggðum bílskúr, stórum palli
og fallegri lóð. Það er smekklega
innréttað með vönduðum gólfefn-
um, góðu skipulagi og rúmgóðum
herbergjum. Húsið stendur hátt
innst í botnlanga í Hjallahverfi
með góðu útsýni.
Komið er inn í forstofu með
náttúruflísum á gólfi, hiti er í
gólfi. Innaf forstofu er gestabað
og innangengt í bílskúr.
Eldhúsið er með mahóní inn-
réttingu, gashelluborði og tækjum
með stáláferð. Stofa og borðstofa
liggja saman í stóru rými þar
sem hátt er til lofts og útgengt út
á flísalagðar svalir með góðu út-
sýni, gegnheilt parket er á gólf-
um í stofum og eldhúsi en hluti
með náttúruflísum. Svalir húss-
ins liggja meðfram tveimur hlið-
um hússins, í suður og austur.
Stiginn á neðri hæðina er flísa-
lagður. Þrjú svefnherbergi eru
á neðri hæð, sjónvarpshol með
parketi, flísalagt þvottahús með
innréttingum, flísalagt baðher-
bergi með baðkari, sturtuklefa og
viðarinnréttingu. Af gangi neðri
hæðar og úr hjónaherbergi er út-
gengt út á stóra timburverönd
með skjólveggjum með heitum
potti.
Innkeyrslan er hellulögð með
hitalögn. Bílskúrinn er flísalagð-
ur með rafmagn og hita, loft er
óklætt.
Vandað og vel staðsett
parhús í Kópavogi
Stofa og borðstofa liggja saman í stóru rými þar sem hátt er til lofts og útgengt á
svalir.
Seldu hjá okkur í desember og fáðu veglega
jólagjöf.
Kíktu inn á www.landmark.is!Þú hringir, við seljum! 512 4900
Sigurður
S. 896 2312
lögg. fasteignasali
Friðbert
S. 820 6022
Sölufulltrúi
Rúnar
S. 842 5886
Sölufulltrúi
Þórarinn
S. 770 0309
Sölufulltrúi
Magnús
S. 897 8266
lögg. fasteignasali