Fréttablaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 6
6 19. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR VM Stórhöfða 25 110 Reykjavík sími 575 9800 www.vm.is DAGSKRÁ Staðan í kjaramálum Kröfur VM Eftir hverju er verið að bíða? Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU SAMGÖNGUMÁL Við upptöku veggjalda, til að standa straum af kostnaði af umfangsmiklum vega- framkvæmdum á suðvesturhluta landsins, var ætlunin að lækka olíu- og bensíngjöld. Þetta kom fram í máli Kristjáns L. Möller, þáverandi samgönguráð- herra, í umræðum á Alþingi síðast- liðið sumar. Lýsti hann yfir að taka bæri upp rafræna innheimtu í gegnum gervi- hnött. „Þá falla öll önnur gjöld niður, eins og olíugjöld og bensíngjöld, og verður aðeins um eitt gjald að ræða,“ sagði hann í ræðunni. Kristján, sem fór fyrir viðræðunefnd stjórnvalda við lífeyrissjóðina um fjármögnun framkvæmd- anna, segir að verði fallið frá áformum um að innheimta veg- gjöld á þeim leiðum sem um ræðir, sé einsýnt að framkvæmdir við þær taki tuttugu ár eða meira en ekki fjögur. „Þessu var stillt upp þannig að hægt yrði að ráðast í þetta á þremur til fjór- um árum með þessum hætti. Hinn valkosturinn er að gera þetta á sirka tuttugu til 25 árum.“ 41 þúsund skrifuðu undir mót- mæli FÍB gegn vegtollum. Kristján kveðst vel skilja að svo margir hafi skrifað undir. Sjálfur hefði hann getað hugað sér að mót- mæla vegtollum ofan á bensín- og olíugjöld. „Það er hins vegar svo að frjálslega er farið með ýmsar staðreyndir í þessu máli, meðal annars þessa. Það er grundvallar- atriði að þessi gjöld lækki á móti veggjaldinu.“ - bþs Áformaðar vegaframkvæmdir taka tuttugu ár í stað fjögurra ef ekki verða veggjöld: Bensín- og olíugjöld myndu lækka KRISTJÁN L. MÖLLER Telur þú þörf á að endurskoða meðferð nauðgunarmála í réttarkerfinu? Já 87,7% Nei 12,3% SPURNING DAGSINS Í DAG Telur þú Ísland standa framar- lega í umhverfismálum á heimsvísu? Segðu skoðun þína á visir.is LÖGREGLUMÁL Innanríkisráðu- neytið mun kanna hvort íslensk löggæsluyfirvöld hafi vitað að flugumaður breskra löggæslu- yfirvalda hafi komið hingað til lands á fölskum forsendum árið 2005. Lögreglu- maðurinn, Mark Kenne- dy, gekk undir nafninu Mark Stone á árunum 2003 til 2009. Þá var hann gerð- ur út af breskum lögregluyfir- völdum til að blanda sér í ýmsa hópa aðgerðasinna í Bretlandi og víðar á fölskum forsendum. Hlut- verk hans var að afla upplýsinga um aðgerðasinnana með leynd, að því er fram kemur í breska dag- blaðinu The Guardian. Kennedy kom til Íslands árið 2005 og tók þátt í mótmælum Saving Iceland við álver Alcoa og Kárahnjúkavirkjun. Ekki hefur verið upplýst hvort íslensk stjórn- völd hafi vitað að Kennedy hafi í raun starfað fyrir bresku lögregl- una á þeim tíma. The Guardian greindi frá því fyrir helgi að Ögmundur Jónas- son innan ríkisráðherra hygðist láta rannsaka málið. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er það orðum aukið að málið verði rannsakað formlega. Til stendur að kanna innan ráðu- neytisins og stofnana þess hvort íslensk stjórnvöld eða lögregla hafi vitað að Kennedy hafi í raun verið breskur lögreglumaður. Fréttablaðið sendi ríkislög- reglustjóra fyrirspurn um mál Marks Kennedy fyrir helgi. Í svari frá ríkislögreglustjóra segir aðeins að embættið hafi ekkert um þetta mál að segja. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins vöruðu bresk löggæslu- yfirvöld ríkislögreglustjóra við því að í hópi erlendra mótmæl- enda sem kom hingað til lands árið 2005 væru nokkrir afar harð- skeyttir aðgerðasinnar, en ekki kom fram hvernig breska lögregl- an aflaði þeirra upplýsinga. Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra svaraði spurningum um mál Kennedys í fyrirspurnatíma á Alþingi á mánudag. Þar sagði Össur ekki tilefni til viðbragða af sinni hálfu vegna málsins fyrr en niðurstaða væri fengin í innan- ríkisráðuneytinu. „Hins vegar get ég lýst því sem skoðun minni að þetta sé mjög umdeilanleg aðferð sem þarna er beitt,“ sagði Össur. „Eins og ég skil þetta er um að ræða for- virkar rannsóknir sem íslensk lögregla hefur ekki heimild til að stunda.“ Í forvirkum rannsóknar- aðgerðum felst að einstakling- ar eða hópar eru rannsakaðir án þess að rökstuddur grunur sé um að ákveðinn glæpur hafi verið framinn eða til standi að fremja tiltekinn glæp. brjann@frettabladid.is Kanna hvort lögregla vissi um flugumann Breskur lögreglumaður laumaði sér í raðir aðgerðasinna hér á landi árið 2005. Innanríkisráðuneytið hyggst kanna hvort íslensk stjórnvöld eða lögreglan hafi vitað að hann væri lögreglumaður. Ríkislögreglustjóri vill ekki tjá sig um málið. AÐGERÐIR Mark Kennedy tók þátt í mótmælum gegn Kárahnjúkavirkjun og álveri Alcoa sumarið 2005. Hér beita meðlimir í Saving Iceland hliðstæðum aðferðum við álver Norðuráls á Grundartanga árið 2007 og var beitt á Kárahnjúkum. MYND/MAGNÚS MAGNÚSSON Eins og ég skil þetta er um að ræða for- virkar rannsóknir sem íslensk lögregla hefur ekki heimild til að stunda. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA MARK KENNEDY DÓMSMÁL Hálfþrítugur karlmað- ur hefur verið ákærður fyrir hér- aðsdómi Reykjavíkur fyrir að spreyja á vegg leikskóla. Manninum er gefið að sök að hafa aðfaranótt laugardagsins 17. október 2009, úðað málningu með spreybrúsa, á vegg leikskólans Furuborgar í Reykjavík, þannig að skemmdir hlutust af. Í málinu gerir lögmaður kröfu fyrir hönd Reykjavíkurborgar, um að maðurinn verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 24.996 krónur. - jss Ákærður fyrir eignaspjöll: Spreyjaði máln- ingu á leikskóla JAFNRÉTTISMÁL Karlmenn fá tæki- færi til að taka þátt í umræð- unni um jafnréttismál bæði í Fréttablaðinu og á Vísi í árveknis- átakinu Öðlingnum 2011. Átak- ið stendur í einn mánuð, hefst á bóndadaginn, 21. janúar, og lýkur á konudaginn, 20. febrúar. Pistlar frá svokölluðum Öðling- um munu birtast daglega á Vísi og jafnframt nokkrum sinnum í viku í Fréttablaðinu. Öðlingsátakið var stofnað í fyrra af Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur, höfundi bókar- innar Á mannamáli, sem fjallaði um kynbundið ofbeldi á Íslandi. Þá beindist athyglin að einni til- tekinni birtingarmynd misrétt- is: ofbeldinu. Átakið leiddi meðal annars til þess að Þórdís Elva var tilnefnd til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins. „Ég vildi að átakið í ár yrði með orðið að vopni vegna þess að því meira sem við ræðum málin, þeim mun meira ráðumst við á þessa þögn sem hefur ríkt lengi í kringum ýmsa anga jafnréttis- baráttunnar,“ útskýrir Þórdís Elva. „Mig grunar að ýmsir karlar séu orðnir svolítið feimnir við að kveðja sér hljóðs í þessum mála- flokki vegna þess að hann hefur verið yfirráðasvæði kvenna undanfarin ár,“ segir Þórdís. „Ég ákvað að kanna hver við- brögðin yrðu ef ég byggði brú fyrir karla yfir í þessa umræðu – hvort þeir myndu vildu stökkva um borð. Það reyndist vera og ég er afskaplega þakklát fyrir það. Ég tel það kveikja mikinn vonar- neista um að jafnréttismál geti tekið stórstígum framförum.“ - sh Þórdís Elva Þorvaldsdóttir ýtir Öðlingnum 2011 úr vör í samstarfi við 365 miðla: Karlmenn skrifa um jafnrétti ÞÓRDÍS ELVA Hópur karla mun skrifa í Fréttablaðið og á Vísi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.