Fréttablaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 14
 19. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR14 Lögfræðiaðstoð Orator, félag laganema við Háskóla Íslands, er þrjátíu ára. Hún veitir almenningi almenna lögfræðiað- stoð endurgjaldslaust og hefur þjónustan nýst landsmönnum vel að sögn Erlu Arnardóttur, sem fer með framkvæmda- stjórn ásamt Hinriku Söndru Ingimundardóttur. „Óhætt er að segja það og landsmenn virðast vita vel af henni. Við fáum fyrirspurnir frá fólki af öllu landinu, Íslendingum og útlendingum, og frá Íslendingum búsettum erlendis,“ segir hún og getur þess að reynt sé að upplýsa fólk um réttar- stöðu þess og hvert sé best fyrir það að snúa sér. „Yfirleitt aðstoðum við fólk sem er á byrjunarreit og veit ekki hvert það á að fara, en mjög mikilvægt er að átta sig á hver fyrstu skrefin eru.“ Aðstoðina segir Erla vera í boði flest fimmtudagskvöld yfir skólaárið. „Fólk getur hringt með fyrirspurnir en við erum nokkur sem tökum við símtölum; annar framkvæmda- stjórinn, tveir meistaranemar í lögfræði og lögfræðingur. Mislangan tíma tekur að afgreiða hverja fyrirspurn, allt frá nokkrum mínútum upp í klukkutíma eftir eðli málsins,“ segir hún, og bætir við að yfirleitt séu tíu til tólf fyrirspurn- ir afgreiddar á kvöldi. „Flestir eru hringja í fyrsta sinn og fyrst þetta eru tíu til tólf símtöl sem við svörum hverju sinni þá má gera ráð fyrir að ansi margir Íslendingar hafi hringt í gegnum árin.“ En hvers konar mál rekur yfirleitt á fjörur Lögfræði- aðstoðarinnar? „Aðallega varða þau sifja- og erfðarétt og almennan kröfurétt, sem geta verið mjög fjölbreytt mál og sum eru óvenjuleg og önnur flókin,“ segir Erla, sem telur starfsemina vera ágætan undirbúning fyrir atvinnumark- aðinn. „Þetta þjálfar laganema í að takast á við raunveruleg mál þó án þess að þurfa að kljást við þau á atvinnumarkaði og lesa svo kannski um svipuð mál í námi. Þjónustan nýt- ist nemunum því ekki síður vel heldur en almenningi enda skynjum við mikinn áhuga frá þeim og oft nýliðar sem mæta á vaktir.“ Haldið var upp á þrjátíu ára afmæli Lögfræðiaðstoðar Orator með hátíðarmálþingi um starfsemina á dögunum. Þar tóku til máls Róbert Ragnar Spanó, deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands og Tómas Þorvaldsson hæstaréttarlögmaður, sem endurvakti lögfræðiaðstoðina á sínum tíma, en hún hafði áður verið starfsrækt frá 1934-1935. Erla segir margt for- vitnilegt hafa komið í ljós og meðal annars hve litlum breyt- ingum lögfræðiaðstoðin hefur tekið í gegnum árin. En hvað skyldi vera á döfinni? „Við munum áfram bjóða aðstoð með sama sniði og vonum að geta tekið við fyrir- spurnum í gegnum heimasíðuna okkar, orator.is. Þá gæti verið gaman að bjóða aftur lögfræðiaðstoð í samstarfi við borgina á bókasöfnum Reykjavíkur, enda víða þörf á aðstoð og stuðningi við fólk sem ekki veit hvernig eða hvert það á að snúa sér með lögfræðileg álitaefni,“ segir Erla að lokum. roald@frettabladid.is LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR: ER 30 ÁRA Þörf þjónusta Á BRÝNT ERINDI VIÐ ÞJÓÐINA Hinrika Sandra Ingimundardóttir og Erla Arnardóttir fara með framkvæmdastjórn Lögfræðiaðstoðar Orator sem margir nýta sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA timamot@frettabladid.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Lárusson fv. útgerðarmaður, Víkurbraut 30, Höfn í Hornafirði, sem lést á dvalarheimilinu Skjólgarði, miðvikudaginn 12. janúar s.l., verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju föstudaginn 21. janúar, kl. 13. Ásgeir Sigurðsson Guðmundur Sigurðsson Vilborg Jóhannsdóttir Hilmar Sigurðsson Guðrún Kristjánsdóttir Dagbjört Sigurðardóttir Finnur Jónsson Aldís Sigurðardóttir Guðmundur Eiríksson Karl Sigurðsson Svava Eyjólfsdóttir Grétar Sigurðsson Sigríður Sigurðardóttir Sæmundur Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför Guðrúnar Jósepsdóttur Stóragerði 10 Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á L5 á Landakotsspítala fyrir einstaka umhyggju og alúð. Jón Einarsson Guðrún Þorsteinsdóttir Skúli Einarsson Ólöf Ólafsdóttir Þórir J. Einarsson Unnur Ragnarsdóttir Svanborg G. Einarsdóttir Úlfar Reynisson Jóhann A. Einarsson Rut Kristjánsdóttir Þorsteinn Einarsson Ingibjörg Hreiðarsdóttir Anna Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Guðmunda Þ. Guðmundsdóttir frá Núpi í Fljótshlíð, Kleppsvegi 52, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 17. janúar. Útför hennar fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 27. janúar kl. 15.00. Katrín Guðmannsdóttir Steingrímur Guðjónsson Matthildur Guðmannsdóttir Þórir S. Magnússon Olga Steingrímsdóttir Guðmann Þórisson Birgir Þórisson Katrín Steina Olgudóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Þorsteinn B. Guðmundsson kennari, Skeiðarvogi 105, sem andaðist 12. janúar, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 21. janúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Félags aðstandenda Alzheimerssjúklinga (FAAS). Sigríður Sólveig Jóhannsdóttir Heiður Þorsteinsdóttir Sveinn Bárðarson Hlynur Þorsteinsson Gunnur Kristín Gunnarsdóttir Hugrún Þorsteinsdóttir Kristján Reynir Pálsson barnabörn og barnabarnabörn Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Elínar Dungal Grensásvegi 58, Reykjavík. Jón Þorvaldsson Valý Helga Ragnarsdóttir Steinunn Þorvaldsdóttir Finnur Geirsson Hilmar Hilmarsson Guðfinna Sævarsdóttir börn, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Árni Baldvin Hermannsson Hátúni 26 Keflavík, andaðist á Heilbrigðistofnun Suðurnesja 11. janúar síðastliðinn. Jarðsett verður frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 21. janúar kl. 13.00. Þóra Svanlaug Ólafsdóttir Sveindís Árnadóttir Hermann Árnason Ásta Baldvinsdóttir Jón Ólafur Árnason Soffía Karen Grímsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Sigríður Hermannsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Guðrún Ö. Stephensen verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, miðviku- daginn 19. janúar kl. 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás styrktarfélag. Jón Torfi Jónasson Bryndís Ísaksdóttir Ögmundur Jónasson Valgerður Andrésdóttir Ingibjörg Jónasdóttir Guðmundur Gíslason Björn Jónasson Elísabet Guðbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma Ásta Tryggvadóttir Mýrarvegi 111, Akureyri, andaðist á Dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 10. janúar sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 20. janúar kl. 13.30. Gísli Bergsson Áslaug Magnúsdóttir Bergur Brynjar Gíslason Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Hans Gunnar Hinz andaðist föstudaginn 7. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 20. janúar kl. 13.00. Gunnar Björn Hinz Laima Hinz Elís Örn Hinz Sigrún Stefánsdóttir börn og barnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma Magnea Jónsdóttir Miðbraut 33, Seltjarnarnesi, lést 6. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir fá starfsmenn B-2 í Fossvogi og Hrafnistu í Boðaþingi fyrir frábæra umönnun. Hún var Magneu og fjölskyldu ómetanleg. Guðmundur Jóhannsson Hulda Guðmundsdóttir Jóhann O. Guðmundsson Jón Guðmundsson Guðmundur, Óttar og Magnea Björg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.