Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.01.2011, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 19.01.2011, Qupperneq 10
10 19. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING Hversu mikla orku má vinna hér á landi og hversu mikinn arð má hafa af orkusölu? Talið er að orkuauðlindir á Íslandi geti skilað á bilinu 30 þúsund til 50 þúsund gígavattstundum af orku á ári verði þær fullnýttar, að því er fram kemur í drögum að nýrri orkustefnu. Þar er horft til bæði fallvatns og jarðhita, en með þeim formerkj- um að nýtingin sé sjálfbær. Þegar hafa verið virkjuð svæði sem skila um 17 þúsund gígavattstundum á ári. Til samanburðar notar álver Alcoa á Reyðarfirði um fimm þús- und gígavattstundir á ári. Það er því búið að nýta ríflega helming virkjanlegrar orku sam- kvæmt varfærnum spám. Sam- kvæmt bjartsýnni spám er búið að virkja um þriðjung. Í drögum að orkustefnu, sem unnin hefur verið fyrir iðnaðar- ráðuneytið, segir að ráðstafa ætti orkuauðlindunum af kostgæfni, enda sé auðlindin takmörkuð. Að sama skapi ætti að hámarka arð- semi af orkuvinnslu með því að selja orkuna á hæsta mögulega verði. Í drögunum kemur fram að meðal- verð seldrar raforku hjá Lands- virkjun á árinu 2009 hafi verið 23,44 Bandaríkjadalir á hverja megavattstund, sem jafngildir um 2.750 krónum á núverandi gengi. Til samanburðar kostaði mega- vattstundin á sameigin legum raf- orkumarkaði í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku 71 Banda- ríkjadal á síðasta ári, sem jafngild- ir um 8.300 krónum. Í drögum að orkustefnu kemur fram að tvöfaldist raforkufram- leiðslan hér á landi í framtíðinni og orkuverð verði í samræmi við spá fyrir Norður-Evrópu gæti árleg framlegð af raforkuvinnslu orðið um 1,7 milljarðar Bandaríkjadala, sem jafngildir yfir 190 milljörð- um króna. Þar er gert ráð fyrir að verð hér verði 40 prósentum lægra en meðaltalið sökum einangrunar landsins. Orkuverð þarf að hækka Ef komast á nærri þessari fram- legð verður verðlagning á orku hér á landi að færast nær því sem gengur og gerist í öðrum Norður- Evrópuríkjum, að mati höfunda orkustefnunnar. Þá má orkan ekki vera bundin á lágu verði til langs tíma með samningum við fyrir- tæki. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd notar almenni markaðurinn hér á landi um fimmtung þeirrar orku sem unnin er hér á landi, en stóriðjufyrirtæki um 83 prósent. Raforkuverð til almennings hér á landi er mun lægra en í nágranna- ríkjunum, en engin trygging er fyrir því að það breytist ekki, að því er fram kemur í drögum að orkustefnu. Aukin eftirspurn stór- notenda eða lagning sæstrengs til annarra landa gætu gerbreytt for- sendunum. brjann@frettabladid.is Orkuauðlindir þegar nýttar að miklu leyti Tvöfaldist orkuöflun hér á landi og verð hækkar í samræmi við spár gæti fram- legð af orkusölu numið 190 milljörðum samkvæmt drögum að orkustefnu. 17.250 GWh/a 12.750 GWh/a 20.000 GWh/a Vinnsla nú Vinnanlegt í framtíð, neðri bilmörk Vinnanlegt í framtíð, efri bilmörk 30.000 GWh/a 50.000 GWh/a 16.000 12.000 8.000 4.000 0 17.250 G W h/ a VINNSLA NÚ Alcoa Fjarðaál Reyðarfirði Rio Tinto Alcan Straumsvík Becromal Krossanesi Norðurál Grundartanga II Norðurál Grundartanga I Elkem Grundartanga Almennur markaður Vinnanleg orka og nýting hennar Nú er talið að orkuauðlindir fall- vatns og jarðvarma á Íslandi geti skilað á bilinu 30 þúsund til 50 þúsund gígavattstundum á ári. Í dag er umtalsverður hluti þessa hámarks þegar nýttur, eða um 17.250 gígavattstundir á ári, eins og sjá má hér að ofan. Hér til hliðar má svo sjá hvern- ig sú orka sem þegar er aflað deilist niður á raforkunotendur. Aðeins um 17 prósent eru notuð á almennum markaði, en um 83 prósent í stóriðju. Heimild: Drög að orkustefnu fyrir Ísland. 1. Hvaða lag var sungið þegar undir skriftir vegna auðlindamála voru afhentar forsætisráðherra? 2. Hvað heitir formaður skipulags- ráðs Reykjavíkur? 3. Hvaða ár var Bifreiðastöð Reykjavíkur (BSR) stofnuð? SVÖR 1. Sá ég spóa. 2. Páll Hjaltason. 3. 1921. islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4900 Það borgar sig að byrja strax að spara Það getur munað miklu að eiga við bótar líf eyris sparnað við starfs lok. Því fyrr sem þú byrjar að spara og safna, því betra – og inn eign þín verður mun meiri við starfslok. Gakktu strax frá sparnaðinum hjá eigna- og lífeyrisþjónustu Íslandsbanka á Kirkjusandi eða í næsta útibúi. Lífeyrissparnaður AKRANES Höfundur Sögu Akra- ness, Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðingur, afhenti verk- ið í gær eftir ríflega tíu ára starf. Sveitarfélagið mun hafa greitt nálægt eitt hundrað milljónir króna fyrir verkið. Bærinn hefur samið við útgáfufélagið Upp- heima um útgáfu ritsins. Stefnt er að því að gefa út í vor tvö fyrstu bindin sem spanna eiga tímabilið frá landnámi á Akranesi og fram til aldamót- anna 1800. „Mikill metnaður hefur verið lagður í efni og umbrot og annan frágang,“ segir í frétt frá Akraneskaupstað. - gar Tíu ára söguritun lýkur: Höfundur lauk Sögu Akraness VÍSINDI Japanskir vísindamenn ætla að freista þess að vekja loð- fíla til lífsins á ný, 65 milljónum ára eftir að sú dýrategund leið undir lok. Vísindamennirnir ætla að hefj- ast handa strax á þessu ári og stefna að því að ljúka verkinu innan fimm eða sex ára. Meiningin er að fá frumur úr hræi af loðfíl, sem fannst í Síberíu fyrir nokkrum árum og er geymt í rannsóknarstöð í Rúss- landi. Hræið er óvenju heillegt. Ætlunin er að taka frumu- kjarna úr loðfílnum, setja hann í kjarnalausa eggfrumu úr venju- legum fíl og rækta þannig fóstur með erfðaefni loðfíls. - gb Ætla að einrækta loðfíla: Endurlífga út- dauða tegund LOÐFÍLL Heillegt hræ loðfílsins sett upp á sýningu í Frakklandi í sumar. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNSÝSLA Semja á við að minnsta kosti 25 þýðendur, ein- staklinga og fyrirtæki, um þýð- ingu á löggjöf Evrópusambands- ins úr ensku á íslensku. Ríkiskaup hafa, fyrir hönd þýð- ingarmiðstöðvar utanríkisráðu- neytisins, auglýst útboð vegna þýðinganna. Gerð er krafa um háskólamenntun eða löggildingu í skjalaþýðingum, auk þess sem reynsla af textagerð er æskileg. Áhugasamir verða látnir gang- ast undir hæfnispróf og niður- stöður þess, auk tilboðs, ráða umfangi og fjölda verkefna. - bþs Lög Evrópusambandsins þýdd: Fjöldi þýðenda fær verkefni Sveik út fyrir tugi þúsunda Þrítugur karlmaður hefur verið ákærð- ur fyrir að svíkja út vörur og þjónustu fyrir tæpar 120 þúsund krónur. Við svikin notaði hann stolin greiðslukort. 45 daga fangelsi Karlmaður hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir þjófnað. Hann játaði að hafa brotist inn í bílskúr í Hveragerði og stolið þaðan hátölur- um, riffli og haglabyssu. Maðurinn á að baki langan sakaferil. DÓMSMÁL VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.