Fréttablaðið - 19.01.2011, Síða 12
12 19. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
Eins og segir á vef FÍB er engu líkara en núverandi stjórnvöld hafi ákveðið
að girða höfuðborgarsvæðið af með toll-
múrum og leggja vegtolla á alla umferð
um stofnbrautir inn á og út af svæðinu og
jafnvel innan þess að loknum fyrirhuguð-
um og löngu tímabærum vegabótum.
Vegirnir, sem um ræðir, eru órjúfan-
legur hluti af borgar- og þéttbýlissamfé-
lagi SV-hornsins og kostnaðurinn við gerð
þeirra er löngu greiddur af naumt skömmt-
uðu vegafé og vegtollum árum saman á
Reykjanesbraut. Vegfarendur eiga enga
valkosti verði tollmúrarnir reistir.
Áformaðar vegabætur eru sannarlega
tímabærar. Núverandi ástand veganna og
háskinn af umferð um þá eru bein afleið-
ing af langvarandi vanrækslu, fjársvelti og
skorti á fagmennsku samgönguyfirvalda.
Um 70% af tekjum vegasjóðs koma til
vegna umferðar á höfuðborgarsvæðinu.
Á síðustu áratugum runnu um 25% af
vegafé til stofnbrauta á svæðinu; árið
2009 voru það 2,5% og árið 2010 nánast
0%. Á SV-horninu verða um 70% af öllum
alvarlegum umferðarslysum.
Helsti áhrifavaldur samgöngumála
á Íslandi er 9 manna samgöngunefnd
Alþingis. Nú situr þar 1 þingmaður af
höfuðborgar svæðinu. Samkvæmt vef
Alþingis áttu íbúar á SV-horninu að meðal-
tali 1,4 fulltrúa af 9 á undangengnum 100
löggjafarþingum frá 1926.
Á sama tímabili áttu íbúar SV-hornsins
að meðaltali 2,14 fulltrúa af 11 í fjárlaga-
nefnd Alþingis. Nú eiga þeir 2 fulltrúa.
Þessar þingnefndir eru því enn í dag
vettvangur kjördæmapotsins illræmda,
þ.e. handstýringar, geðþótta og sjálftöku.
Orðið „kjördæmapot“ er fremur sakleysis-
legt en hér er að sjálfsögðu um að ræða
háspillingu, sem á sér enga hliðstæðu í sið-
uðum samfélögum.
Reykjanesbraut að Leifsstöð, Suðurlands-
vegur að Selfossi og Vesturlandsvegur að
Hvalfjarðargöngum eru fjölförnustu vegir
á Íslandi og vegabætur þar því mjög arð-
samar.
Engin önnur leið er fær til að fjármagna
umræddar framkvæmdir en að snúa nú við
blaðinu og beina hér eftir a.m.k. 55% af
árlegu vegafé inn á höfuðborgarsvæðið.
Kaflinn frá Sandskeiði að Selfossi og
ókláraður 5km kafli á Reykjanesbraut að
Leifsstöð liggja utan sveitarfélagamarka á
höfuðborgarsvæðinu. Vegabætur á þessum
köflum þarf því sömuleiðis að fjármagna
með sínum skerfi af árlegu vegafé.
Kjördæmapot og vegagerð
Veggjöld
Örn
Sigurðsson
arkitekt
Karlar og jafnrétti
Velferðarráðherra hefur skipað
starfshóp til að gera tillögur um
hvernig auka megi þátttöku karla í
umræðum um jafnrétti kynjanna og
auka aðild karla að jafnréttisstarfi.
Á hann að fjalla um hvernig breikka
megi náms- og starfsval karla og vinna
gegn kynskiptum vinnumarkaði
og skoða áhrif staðalmynda
kynjanna á stöðu karla í samfé-
laginu, hlutverkaval og þátttöku
þeirra í verkefnum fjölskyldunn-
ar. Þetta er náttúrlega stórgott.
Í starfshópnum eru tíu karlar.
Eru sjónarmið kvenna til
málefnisins með öllu
óþörf?
Enn ein nefndin
Svo er spurning hvað á að vinnast.
Eins og fram kemur í frétt ráðherra
er þetta ekki í fyrsta sinn sem nefnd
er skipuð til að auka hlut karla í
umræðum um jafnréttismál. 1991 var
skipuð nefnd um stöðu karla í breyttu
samfélagi með jafnari fjölskylduábyrgð
og verkaskiptingu og önnur
1994 sem átti að stuðla
að auknum hlut karla í
umræðu um jafnréttis-
mál. Afraksturinn virðist
slíkur að enn er þörf á
nefnd.
Það var Hjálmar
Vakin var athygli á húsnæðismálum
Listaháskólans í fréttum Sjónvarps
á mánudag. Starfsemin fer fram á
fimm stöðum og áform um nýbygg-
ingu við Laugaveginn eru í salti. Rætt
var við Bryndísi Björnsdóttur, nema
við skólann, en hún og fleiri vilja að
starfsemin verði sameinuð í Laugar-
nesinu þar sem myndlistardeildin
er. Sagðist Bryndís ekki átta sig á
hvaðan óskin um að skólinn væri
í miðbænum væri komin. Því er
auðsvarað. Rektor skólans, Hjálmar
H. Ragnarsson, hefur verið ötulasti
baráttumaður þess að Listahá-
skólinn verði í miðborginni.
bjorn@frettabladid.is
Kínversk fræði við HÁSKÓLA ÍSLANDS
konfusius@hi.is | www.konfusius.hi.is
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir heimildamyndina:
Þrír strengir og sagnaparið (2009)
Askja, st. 132, fimmtudagur 20. janúar 2010, kl. 17:30
Sýningin er öllum opin
og án endurgjalds.
Sýningartími 52 mín.
Önnur sýningin í heimilda-
myndaröðinni China Screen:
Að hlýða á fornar sagnir og
minni við undirleik hefðbundins
þriggja strengja hljóðfæris. Hin
ævaforna listgrein farandsögu-
manna er í hnignun. En Gai
hjónin halda þessa hefð í heiðri
þótt sífellt erfiðara sé að sjá sér
farborða með þessari listgrein.
Leikstjóri Zhang Wenqing.
Þ
að er kunnara en frá þurfi að segja að mikil verðmæti
eru fólgin í orkuauðlindum landsins. Vegna hækkandi
orkuverðs og baráttu gegn loftslagsbreytingum mun
verðmæti þeirra margfaldast í framtíðinni ef rétt er á
málum haldið. Nú liggur fyrir skýrsla starfshóps sem
iðnaðarráðherra fól að móta heildstæða orkustefnu. Skýrslan
er hið merkasta plagg og mun áreiðanlega hafa mikil áhrif
á um ræður sem nú fara fram um eitt stærsta hagsmunamál
almennings í landinu.
Þar kemur fram að af hugsanlegum orkuforða í vatnsafli og
jarðhita er þegar búið að nýta 17.000 gígavattstundir, þar af
3.000 til almennrar notkunar
en afgangurinn fer til stóriðju.
Hvert 360.000 tonna álver notar
um 5.000 gígavattstundir af
raforku. Bætist tvö stór álver
við í hóp orkunotenda hér á
landi væri því búið að ráðstafa
um 27.000 gígavattstundum. Í
skýrslu orkustefnunefndarinnar
er á því byggt að orkuauðlindir
fallvatns og jarðhita á Íslandi geti skilað 30.000 til 50.000 gíga-
vattstundum af raforku.
Ástæða þess hve breitt bil er frá áætluðum lægri mörkum að
áætluðum hærri mörkum liggur í þeirri miklu óvissu sem ríkir
um raunverulega afkastagetu jarðhitasvæða. Drög að nýrri orku-
stefnu byggja á því að við uppbyggingu jarðhitavirkjana þurfi
að tryggja vinnslugetu þeirra til langrar framtíðar. Svokölluð
jafnstöðuvinnsla jarðhitasvæða sé sjaldnast þekkt fyrirfram
heldur komi í ljós við rannsóknir eftir því sem orkuvinnslu vindur
fram.
Í skýrslunni er miðað við 100-300 ára nýtingartíma auðlindar-
innar. Það er viðmiðunartími sjálfbærrar nýtingar. Í þessu felast
tímamót, þar sem þessi stefnumörkun er mun varfærnari gagn-
vart nýtingu jarðhitasvæða en sú stefna sem opinberir aðilar hafa
fylgt til þessa og hefur miðast við afskriftartíma mannvirkja
fremur en afkastagetu auðlinda.
Meðalverð raforku frá Landsvirkjun til stóriðju var 19 Banda-
ríkjadalir á megavattstund í upphafi ársins 2010, samkvæmt
því sem fram kemur í skýrslunni. Á sama tíma var meðalverð
60 dalir í Norður-Evrópu en yfir 100 dalir innan OECD. Orku-
stefnunefndin bregður upp þeirri framtíðarsýn að árið 2030 verði
framleiddar 35.000 gígavattstundir af raforku hérlendis og að
verð þróist fram til þess tíma á þann hátt að það verði orðið sam-
bærilegt við markaði í Norður-Evrópu. Gangi það eftir gæti árleg
framlegð af raforkuvinnslu á Íslandi orðið yfir 190 milljarðar
króna á ári hverju, miðað við núverandi gengi gjaldmiðla. Hverjir
10 dalir í hærra orkuverði mundu þá skilað orkugeiranum yfir 40
milljörðum króna í aukinn hagnað á ári hverju.
Þessar tölur úr skýrslu orkustefnunefndar sýna hve gríðar-
lega miklir hagsmunir eru í húfi fyrir íslenskt samfélag og hve
mikið núlifandi og ófæddar kynslóðir eiga undir ákvörðunum
sem teknar verða um framtíð orkufyrirtækja og eignarhald og
ráðstöfun orkufyrirtækja og orkuauðlinda.
Skýrsla orkustefnunefndar byggir á
sjálfbærri nýtingu jarðhita.
Merkileg skýrsla
SKOÐUN
Pétur
Gunnarsson
peturg@frettabladid.is