Fréttablaðið - 19.01.2011, Síða 16

Fréttablaðið - 19.01.2011, Síða 16
MARKAÐURINN 19. JANÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R B A N K A B Ó K I N Samanburður á vaxtatöflum bankanna *Miðað er við 250.000 króna innlegg og sem skemmsta bindingu. A Bundinn í tíu daga. B Bundinn í sjö daga. C Bundinn í einn mánuð. D Úttektargjald hjá gjaldkera 0,25% Athugið að ekki er tekið tillit til árgjalds, sem getur fylgt yfirdráttarreikningum. Hæstu Yfirdráttarvextir Yfirdráttarlán innlánsvextir eru hæstir fyrirtækja Markaðsreikningur 1,15%A 11,75% 11,6% Vaxtaþrep 2,15% 12,00% 12,00% Vaxtareikningur 1,65%B 11,45% 11,45% MP Sparnaður 9,55 til 2,40%C 11,45% 11,45% PM-reikningur 11,25 til 2,35% 11,40% 11,45% Netreikningur 2,45% D 11,45% 11,45% Sparnaðarreikningur 2,50% 10,20% Ekki í boði. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Ekki er útilokað að Íslandsbanki og Landsbankinn (NBI) banki á dyr kröfuhafa Byrs í næsta mánuði og bjóði upp á samrunaviðræður hvor í sínu lagi. Það gæti gerst sama dag og fjárhagslegri endurskipu- lagningu bankans lýkur eftir tvær til fjórar vikur. Fjármálaeftirlitið, FME, greip inn í reksturs Byr seint í apríl í fyrra, skipaði yfir hann slitastjórn, skipti bankanum í tvennt og lagði ríkið nýjum banka til níu hundruð milljóna króna eiginfjárframlag auk fimm milljarða króna víkjandi láns í formi lánalínu. Úr rústum sparisjóðsins reis viðskiptabankinn Byr sem ótengdur er sparisjóðanetinu. Kröfuhafar Byrs samþykktu í fyrrahaust að taka yfir 94,8 prósenta hlut í Byr á móti ríkinu. Sami háttur er hafður á eignarhaldinu og í gömlu viðskiptabönkunum; kröfu- hafar stofna eignarhaldsfélag sem fer formlega með hlut þeirra í bankanum. Stjórn Glitnis óskaði eftir samrunaviðræðum í september 2008, sama dag og hlutafjárvæðing spari- sjóðsins lá fyrir. Ekkert varð úr viðræðum þar sem FME greip í taumana og tók Glitni yfir nokkrum dögum síðar. Áhugi á samruna mun enn vera fyrir hendi innan Íslandsbanka og hafa stefnumótunar- fundir verið haldnir þar sem teiknað er upp hvað taki við eftir yfirtökuna. Sambærilegt skipurit mun vera á borðum innan Landsbankans. Bankarnir hafa báðir lýst yfir áhuga á samruna við Byr. Með því móti geta þeir haldið áfram nauð- synlegri hagræðingu í rekstri, sameinað útibú og bakvinnslur. Við þetta mun fjármálakerfið, sem Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sagt enn of stórt, vera skorið niður. „Við höfum lýst opinberlega yfir áhuga á Byr og finnst að ríkið sem stærsti eigandi á fjármálamark- aði eigi að ganga undir það góða fordæmi að menn telji bankakerfið of stórt og leiti leiða til að sameina Landsbankann og Byr,“ segir Kristján en tekur fyrir að vinna í þá átt sé langt komin innan Landsbank- ans. „Við teljum að þetta geti skapað Landsbankan- um tækifæri til hagræðingar, svo sem í útibúaneti og bakvinnslu. En við höfum ekki lagt fram nein til- boð,“ segir hann og vísar til þess að Steinþór Páls- son sagði í samtali við Viðskiptablaðið í fyrrahaust að góð tækifæri væru til hagræðingar. Þá voru báðir bankar að mestu í eigu ríkisins. Kröfuhafar Byrs eru í dag hins vegar nokkurn veginn þeir sömu og eiga 95 prósenta hlut í Íslandsbanka og gæti því meiri samlegðaráhrifa gætt þar. Íslandsbanki vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Tveir bankar líklegir til að bítast um Byr Fjárhagslegri endurskipulagningu Byrs lýkur væntanlega í næsta mánuði. Búist er við að Íslandsbanki og Landsbankinn dusti rykið af tveggja ára gömlum tilboðum og bjóði til samrunaviðræðna. EINHVER GÆTI BANKAÐ Á DYRNAR Ekki er ósennilegt að bæði Íslandsbanki og Landsbankinn beri víurnar í Byr á næstu vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Forsvarsmenn Thor Data Center, gagnavers í Hafnar- firði, hafa undirritað samkomulag við breska upplýs- ingatæknifyrirtækið HRC Cube um hýsingu á heima- verkefnum þúsundum breskra háskólanema. HRC Cube, sem IBM í Bretlandi stendur á bak við, sérhæf- ir sig í tækniþróun fyrir menntakerfið ytra og heldur utan um netumhverfi fjölda breskra háskóla. Ekki ligg- ur fyrir nákvæmt verðmæti samningsins. Hann er tal- inn geta numið nokkuð hundruð milljónum króna. Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Thor Data Center, hefur verið í Bretlandi upp á síðkastið og kynnt græna hýsingu gagnavera hér. Hann segir áhuga á vistun gagna hér hafa aukist mikið enda farið að þrengja um gagnaverspláss ytra. Sérstaklega eigi þetta við um opinbera geirann. Hann segir áhugann ekki síst hafa kviknað eftir að Alþingi samþykkti undanþágur frá skattareglum fyrir gagnaver hér rétt fyrir áramótin. „Þær höfðu mikið að segja. Við finnum að mörg mál sem voru stopp hafa lifnað við á ný,“ segir hann. Í breytingu á lögum um virðisaukaskatt fyrir gagna- ver var reglum breytt á þann veg að þeir sem hýsa gögn í gagnaverum þurfa ekki að greiða virðisauka- skatt af búnaði sem þeir flytja hingað auk þess sem viðskiptavinir gagnavera ytra eru undanþegnir virðis- aukaskatti. Þetta er í samræmi við lög og reglur innan Evrópusambandsins. - jab Breskir háskólanemar vista heimaverkefnin í Hafnarfirði JÓN VIGGÓ Áhugi hefur aukist á því ytra að vista gögn í íslensk- um gagnaverum, segir framkvæmdastjóri Thor Data Center. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is FJÖLNOTAPAPPÍR25 afsláttur í janúar með 25% afslætti 2.996kr5x500 blöð A4 3.995kr Líklegt þykir að Arion banki gangi að veðum í evrópska drykkjar- vöruframleiðandanum Refresco í skuldauppgjöri Þorsteins M. Jóns- sonar við bankann. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 um helgina að Coca Cola á Spáni hafi samið um kaup á Vífilfelli, framleiðanda Coca Cola á Ís- landi, og muni andvirði kaup- verðsins ganga upp í skuldir Þor- steins og tengdra félaga hans við Arion banka. Þorsteinn og félög hans, Sól- stafir og Stuðlaháls, skulda Arion banka í kringum tíu milljarða króna. Fram kom hjá Stöð 2 að afkoma Vífilfells hafi verið góð í fyrra, rekstrar- hagnaður rúmur einn milljarður króna. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við telja líklegt að kaupverð fyrirtækis á borð við Vífilfell geti numið í kringum þrjá til fjóra milljarða króna. Vífilfell á fimm prósenta hlut í Refresco og er hann metinn á 21 milljón evra, jafnvirði þriggja milljarða króna. Eignarhluturinn mun ekki fylgja með í kaupunum á Vífilfelli. Gangi þetta eftir gæti Arion banki fengið bróðurpartinn af skuldum Þorsteins, sex til sjö milljarða af um tíu. Þótt ekki fáist hún að fullu greidd munu stjórnendur Arion banka engu að síður vera sáttir við niður- stöðuna. Ekki náðist í Þorstein þegar eftir því var leitað. - jab Arion banki eignast líklega hlut í Refresco Kína Kínversk stjórnvöld lána meira fé til þróunarlanda en Al- þjóðabankinn, sem þó er sérstak- lega stofnaður til þess að lána fé til uppbyggingar í þróunarlönd- um. Þetta telst til tímamóta og sýnir hversu vel stæðir Kínverjar eru, með stóran forða af bandarískum dollurum að moða úr. Hu Jintao, forseti Kína, hélt í gær af stað í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna, þar sem hann mun hitta Barack Obama forseta í dag. Meðal annars mun hann svara spurningum fjölmiðla, sem er sjaldgæfur viðburður þegar forseti Kína á í hlut. - gb Kínverjar lána meira en alþjóðabankinn HU JINTAO Forseti Kína kemur til Bandaríkjanna í dag. NORDICPHOTOS/AFP ÞORSTEINN M. JÓNSSON Rétt rúmlega tuttugu þúsund Ís- lendingar fóru til útlanda í desem- ber á nýliðnu ári, sem er um 25 prósenta aukning milli ára. Greining Íslandsbanka segir helstu skýringuna fyrir ferða- gleði landans aukinn kaupmátt á erlendri grund með hækkun á nafngengi krónunnar. Á sama tíma var dýrt að ferðast innan- lands, eldsneyti fimmtungi dýrara en ári fyrr og flugfargjöld innan- lands tíu prósentum hærri. Flug- fargjöld úr landi hækkuðu á sama tíma um sex prósent. Greining Íslandsbanka segir að þótt ferðagleðin hafi gert vart við sig hjá Íslendingum á ný sé langt í land að ferðalög verði jafn mikil og á hinu mikla neysluári 2007. Á þeim tíma var gengi krón- unnar mun hagstæðara gagnvart öðrum myntum, fjárhagsleg staða heimilanna öllu betri og fóru 452 þúsund manns um Leifsstöð. Það eru um helmingi fleiri en á öllu nýliðnu ári. - jab Ferðagleðin gerir vart við sig á ný KÁTIR Á ÚTLEIÐ Fleiri brugðu sér úr landi í jólamánuðinum en ári fyrr.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.