Fréttablaðið - 19.01.2011, Qupperneq 42
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Borgartúni 29 | S. 585 6500 | www.audur.is
Árið 2010 lagði Auður grunn að uppbyggingu til
framtíðar. Fyrirtækjaráðgjöf Auðar kom að
ráðgjöf, fjárhagslegri endurskipulagningu og
verðmati á þriðja tug fyrirtækja. AUÐUR I
fagfjárfestasjóður fjárfesti í rekstri og kom með
nýtt hlutafé inn í sjö fyrirtæki.
Fasteignaráðgjöf Auðar kom að endurskipu-
lagningu fasteignafélaga og gerði verðmat á yfir
100 atvinnufasteignum ásamt því að annast
rekstur og umsýslu fasteigna. Ört stækkandi
hópur viðskiptavina Auðar fékk góða ávöxtun á
séreignarsparnað og fjármuni í eignastýringu.
Auður er sjálfstæður
og óháður kostur
á fjármálamarkaði
Við trúum á fólkið í landinu og framtíðarhorfur
íslensks samfélags. Við höldum ótrauð áfram á
nýju ári með sterka eiginfjárstöðu, áhættu-
meðvitund og langtímaárangur að leiðarljósi.
VIÐ TRÚUM Á FRAMTÍÐINA
FAGFJÁRFESTASJÓÐIR | FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF | FASTEIGNARÁÐGJÖF | SÉREIGNARSPARNAÐUR | EIGNASTÝRING
Styrmi Gunnarssyni, fyrrverandi
ritstjóra Morgunblaðsins, fannst
lítið koma til bandarísku sendi-
ráðsskjalanna sem Wikileaks
hefur undir höndum og birti í
skömmtun með hjálp erlendra
stórblaða. Styrmir sagði á fundi
Stofnunar stjórnsýslufræða og
stjórnmála í Háskóla Íslands
á dögunum skjölin öðru frem-
ur opna dyr að lokuðum heimi
diplómata sem einkenndist af
úreltum samskiptaháttum og
gagnrýndi fjáraustur hins opin-
bera til sendiráða og diplómata.
Þegar leið á fundinn dró Styrmir
úr gagnrýni sinni nokkuð snögg-
lega. Vísaði hann til þess að
bróðir sinn, Gunnar
Gunnarsson sendi-
herra, væri í saln-
um og ákvað því
að halda aftur
af sér.
Bróðir minn
sendiherrann
Margir setja sér það markmið að
taka til á nýju ári. Skuldauppgjör
Þorsteins M. Jónssonar, stjórnar-
formanns Vífilfells og viðskipta-
vinar Arion banka, stendur nú
yfir með sölu á kókframleið-
andanum til Spánverja. Fleira
þarf til að hreinsa borðið. Þegar
allt verður frágengið verður
Þorsteinn líklega annar þeirra
sem teljast til útrásarvíkinga til
að gera upp mál sín. Hinn er
Björgólfur Thor Björgólfsson,
annar af helstu eigendum gamla
Lands bankans og
fyrrverandi stjórnar-
formaður fjárfesting-
arbankans Straums.
Hann samdi við lánar-
drottna sína um
mitt síðasta ár.
Tiltekt 4% verðfall varð á hlutabréfum í tölvu-risanum Apple á Wall Street eftir að Steve Jobs tilkynnti að hann væri á leið í veikindaleyfi. 20.300 Íslendingar fóru til útlanda í fyrra. Þeim fjölgaði um fjórð-ung frá árinu 2009. 4,5
milljarðar voru veittir með yfirdráttarláni frá
Landsbankanum til búlgarsks viðskiptafélaga
Björgólfs Thors Björgólfssonar 30. september
2008.
Breski bankinn Barclays hefur
verið skikkaður til að greiða
tæpar 68 milljónir punda, jafn-
virði um tólf milljarða króna,
í skaðabætur og sektir vegna
lélegrar ráðgjafar fyrir hrun.
Viðskiptavinir bankans fá
lungann af fjárhæðinni, jafn-
virði ellefu milljarða króna.
Viðskiptavinir Barclays hafa
kvartað í hrönnum vegna
lélegrar ráðgjafar sem starfs-
menn bankans veittu fyrir hrun.
Þúsundir viðskiptavina bankans,
sem margir voru komnir á aldur,
settu fé í stýringu í tveimur
sjóðum sem sagðir voru ekki
fjárfesta í áhættusömum eign-
um. Áhættan reyndist hins vegar
meiri en upp var gefið og gufaði
sparnaðurinn upp eins og annað
sem átti að vera í öruggu skjóli.
Þetta mættu kannski fleiri taka
sér til fyrirmyndar.
Skamm!