Fréttablaðið - 19.01.2011, Side 48

Fréttablaðið - 19.01.2011, Side 48
 19. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR20 sport@frettabladid.is ALEXANDER PETERSSON hefur samið við þýska liðið Rhein-Neckar Löwen og mun fara til Löwen sumarið 2012. Petersson er á fyrsta tímabili með Füchse Berlin en samningur hans við félagið rennur út eftir leiktíðina 2011-2012. „Ég vil vinna titla með Löwen,” sagði Alexander í viðtali á heimasíðu Löwen. Guðmundur Guðmundsson er þjálfari RN - Löwen og með liðinu leika þrír íslenskir landsliðs- menn, Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson. Henry Birgir Gunnarsson og Valgarður Gíslason fjalla um HM í Svíþjóð henry@frettabladid.is - valgard.gislason@365.is ÍS L E N S K A S IA . I S M S A 5 31 41 0 1/ 11 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN WWW.MS.IS NÚ EINNIG FÁANLEGUR Í FERNU VINSÆLASTI PRÓTEINDRYKKUR LANDSINS! HLEðSLA ER KJÖRIN FYRIR ALLA ÞÁ SEM TREYSTA Á HOLLA OG UPPBYGGILEGA NÆRINGU EFTIR GÓðA ÆFINGU, LANGT HLAUP EðA MILLI MÁLA. ÞAð ER ENGIN TILVILJUN Að HLEðSLA ER VINSÆLASTI PRÓTEINDRYKKUR Á ÍSLANDI.* HENTAR VEL FÓLKI MEð MJÓLKURSYKURSÓÞOL. MJÓLKURSAMSALAN NÝBRAGð-TEGUND *S A M K V Æ M T S Ö L U T Ö L U M A C N IE L SE N O G C A PA C E N T. 1 8. J Ú L I – 15 . Á G Ú ST 2 01 0. FÓTBOLTI Úrvalsdei ldarliðin Manchester City, Wolves og Stoke tryggðu sér sæti í 4. umferð enska bikarsins með sigrinum í endur- teknum leikjum í gærkvöldi. Manchester City vann 4-2 sigur á b-deildarliði Leicester City, Wolves vann 5-0 stórsigur á Doncaster Rovers og Stoke vann 2-0 sigur á b- deildarliðinu Cardiff City í fram- lengingu. Carlos Tevez kom Manchest- er City í 1-0 á 15. mínútu en Paul Gallagher jafnaði úr víti fjórum mínútum síðar. Patrick Vieira og Adam Johnson komu City í 3-1 fyrir hálfleik með mörkum með 77 sekúndna millibili. Tevez klikkaði á víti á 59. mínútu og Lloyd Dyer minnkaði síðan muninn á 83. mín- útu. Aleksandar Kolarov skoraði síðan fjórða markið og innsiglaði sigurinn. City mætir Notts County í 4. umferðinni. „Við getum verið stoltir af frammistöðu okkar í kvöld. Við höfum sýnt það í þessum tveimur leikjum að við getum spilað flottan fótbolta og staðið í þessum bestu liðum. Við verðum að halda því áfram út tímabilið,“ sagði Sven- Göran Eriksson, stjóri Leicester. Steven Fletcher, Geoffrey Muj- angi Bia, Kevin Doyle, Matt- hew Jarvis og David Jones skor- uðu fyrir Úlfana í 5-0 stórsigri á Doncaster Rovers. Jonathan Walters var hetja Stoke þegar hann skoraði tvö mörk í framlengingu í 2-0 sigri á Cardiff en staðan var markalaus eftir 90 mínútur. Stoke og Wolves mætast síðan í næstu umferð. - óój Endurteknir leikir í enska bikarnum í gærkvöldi: Stóru liðin áfram JONATHAN WALTERS Hetja Stoke í gær- kvöldi. MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY HM 2011 Sverre Andreas Jakobsson og félagar í íslensku vörninni áttu hreint út sagt rosalegan leik í gær er þeir lokuðu á Austurríkismennina í tólf mínútur í síðari hálfleik og hleyptu aðeins sjö boltum í markið. „Í hálfleik sögðum við að það væri ekki hægt að láta Austurríki fara illa með okkur enn eina ferð- ina. Það bara gengi ekki upp. Það kom blóð á tennurnar, geðveiki og trú á því að við gætum unnið þenn- an leik. Þvílíkur viðsnúningur. Ég segi ekki annað,“ sagði Sverre og brosti allan hringinn. „Þetta sýnir þann frábæra kar- akter sem býr í þessu liði. Ég trúi því varla sjálfur hvernig þetta fór á endanum. Á tímabili leið okkur Didda [Ingimundi] þannig að þeir gætu ekki skorað gegn okkur. Við vorum rosalega einbeittir á að vinna þennan leik og koma enda- laust til baka. Það gerðist með mikilli vinnu.“ Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var að vonum ánægður með sigurinn og þann karakter sem strákarnir hans sýndu enn eina ferðina. „Ég var mjög pirraður í hálfleik því mér fannst við ekki spila af þeim krafti sem við eigum að gera í svona mikilvægum leik. Við fórum yfir stöðuna og vissum að vandamálið lægi aðallega í hugarfarinu og við yrðum að bíta frá okkur. Það var allt annað lið sem kom inn á völlinn í síðari hálfleik og það lið barðist fyrir hlutunum á báðum endum vallarins,“ sagði Guðmundur. „Skref fyrir skref unnum við okkur inn í leikinn og það var stórkostlegur karakter sem drengirnir sýndu í síðari hálfleik. Hreint út sagt ótrúlegur baráttuvilji. Þetta eru eftirminnilegar 30 mínútur en ég verð að viðurkenna að þær voru erfiðar. Að klára þetta er algjört meistarastykki hjá drengjunum,“ sagði Guðmundur en strákarnir hans eru þegar komnir í milliriðil með tvö stig og eru einu skrefi frá því að fara í millriðil með fjögur stig. Var eins og þeir gætu ekki skorað Guðmundur Guðmundsson hrósaði karakter Íslands í hástert eftir dramatískan sigur á Austurríki í gær. Sverre Jakobsson sagði viðsnúninginn ótrúlegan. ÖFLUGUR Á HLIÐARLÍNUNNI Guðmundur Guðmundsson á ekki síst stóran hlut í sigri Íslands í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ALEXANDER ÓTRÚLEGUR Íþróttamaður ársins, Alexander Petersson, sýndi oft mögn- uð tilþrif í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Argentínumenn komu allra liða mest á óvart í gær með því að vinna fimm marka sigur á gestgjöfum Svía, 27-22. Svíar voru búnir að vinna fyrstu þrjá leiki sína á mótinu, þar á meðal 30-24 sigur á Suður- Kóreu kvöldið áður, en nú lítur út fyrir að þeir fari stigalausir inn í milliriðilinn. Argentínska liðið var 12-10 yfir í hálfleik og skor- aði síðan fjögur af fyrstu mörk- um seinni hálfleiks og leit ekki til baka eftir það. Svíar eru komnir áfram í milli- riðil en vinni þeir ekki ósigrað lið Pólverja í lokaleiknum fara þeir væntanlega stigalausir inn í milliriðilinn. Argentínumenn tryggja sér sæti í milliriðli með jafntefli á móti Síle í lokaleikn- um. - óój Gestgjafar Svía á HM: Töpuðu fyrir Argentínu í gær JONAS LARHOLM Svíar áttu engin svör á móti Argentínu í gær. MYND/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.