Fréttablaðið - 17.02.2011, Síða 1

Fréttablaðið - 17.02.2011, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 Fimmtudagur skoðun 16 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Allt veðrið í dag 17. febrúar 2011 39. tölublað 11. árgangur 17. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR 1 Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 R akel Mjöll Leifsdóttir fangaði athygli margra sjónvarps-áhorfenda nú í febrúar þegar hún söng lagið Beint á ská í Söngvakeppni sjónvarpsins. Rakel er að læra djass-söng í Tónlistarskóla FÍH. „Ég er gamaldags og hef gaman af öllu er viðkemur kvenlegri tísku eftirstríðsáranna. Því blanda ég svo saman við nýtt,“ segir Rakel Mjöll og segist sér í lagi veik fyrir flaksandi kögri en ein af henn-ar tískufyrirmyndum er sjálf indíána-stelpan Pocahontas.„Eftir því sem ég eldist, verð ég ófeimnari við að þróa minn eigin stíl en ef ég ætti að nefna einhverjar tísku-fyrirmyndir má nefna Brigitte Bardot, söng-konuna Lykke Li og Mary Kate Olsen.“ Rakel Mjöll Leifsdóttir söngkona vakti athygli fyrir sérstæðan stíl í Söngvakeppni SjónvarpsinsHefur gamaldags smekk Tónlistarkonan Nicki Minaj þótti fara nærri því að skjóta Lady Gaga ref fyrir rass fyrir furðulegt útlit á Britt-tónlistarhátíðinni. Hún mætti með risastóra og stórfurðulega hárgreiðslu sem vakti umtal tískuspekúlanta. RÝMINGARSALA Síðustu dagar útsölu. Allt á að seljast! 60-80% afsláttur Frábært úrval af nýrri vetrarvöru: Kjólar - Buxur - Peysur - Úlpur - Blússur - Skyrtur - Jakkar - Skór - Stígvél.Stærðir 36-52 teg. DOTTY - mjúkur og yndislegur en heldur vel, fæst í D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH skálum á kr. 7.990,- TIL BRJÓSTGJAFA: Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14.Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.misty.is Vertu vinur juliam@frettabladid.is Saumar í bílskúrnum Gunnhildur Stefánsdóttir saumar undir merkinu Gammur. allt 2 Dani elskar EVE Gitte Karpinski kemur til landsins á sjöundu EVE- aðdáendahátíðina sína. fólk 38 Opið til 21 í kvöld Nýtt kortatímabil RIGNING eða slydda suðaustan- lands en annars úrkomulítið og bjartviðri suðvestan til. Fremur hægur vindur af austri víðast hvar. Hiti verður á bilinu 0 til 5 stig. VEÐUR 4 2 11 23 FÉLAGSMÁL Tvö þúsund börn á Íslandi hið minnsta verða á hverju ári vitni að heimilisofbeldi. Þessi stóri hópur er hins vegar afskipt- ur og hafa félagsmálayfirvöld ekki sinnt honum. Þær stofnanir sem bera ábyrgð á börnum sem búa við þessar aðstæður hafa takmarkað samráð sín á milli og fagfólki kom á óvart að málin væru í þeim ólestri sem raun ber vitni. Þetta er meðal niðurstaðna í kolsvartri skýrslu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi á þeim stuðningi sem í boði er fyrir börn í Reykjavík. Tölur fagfólks benda til að 2,5 prósent allra barna hér á landi verði vitni að ofbeldi gegn móður sinni, eða milli foreldra, á hverju ári. Lík- legt er talið að sá fjöldi sé stórlega vanmetinn sökum þess hversu dult er farið með þessi mál. Félagslega kerfið í Reykjavík fær falleinkunn í skýrslu Barna- heilla. Brýn þörf er talin á gagn- gerri endurskoðun á málefnum barna sem búa við ofbeldið. Flest- ir innan kerfisins líta svo á að með því að tilkynna mál til barnavernd- ar sé tryggt að börn fái þann stuðn- ing og öryggi sem þeim ber. „En í raun og veru er gap á milli þeirra væntinga sem viðmælendur hafa til barnaverndar og þess hvernig barnavernd tekur og getur tekið á málum,“ segir í skýrslunni. Viðmælendur í rannsókn samtak- anna, fagfólkið sem kemur að mála- flokknum, eru allir sammála um að börn sem búi við svo dapurleg- ar aðstæður sem um ræðir séu ekk- ert síður fórnarlömb þess ofbeldis sem foreldri þess sé beitt og slíkt sé mannskemmandi. Í fréttatilkynningu sem birt var á heimasíðu Barnaverndarstofu á mánudag eru kynntar aðgerð- ir vegna heimilisofbeldis. Þar er viðurkennt að barnaverndaryfir- völd og aðrir hafi ekki gefið þess- um hópi gaum og því verði leit- að eftir samstarfi við lögreglu og barnaverndarnefndir um tilrauna- verkefni þar sem verður lagt mat „á líðan, hugsanir og óskir barn- anna með það fyrir augum að veita þeim áfallahjálp og annan við- eigandi stuðning strax í kjölfar atburða af þessu tagi“. Barnaverndarstofa býður í dag eitt hópúrræði fyrir börn sem orðið hafa vitni að heimilisofbeldi. Skilyrði fyrir þátttöku í þeirri meðferð er að ofbeldi sé ekki leng- ur til staðar á heimili og barnið sé eldra en fimm ára og tali íslensku. - shá Börn afskipt í ofbeldismálum Ný skýrsla opinberar að börn sem verða vitni að heimilisofbeldi fá litla ef nokkra aðstoð frá félagslega kerfinu í Reykjavík. Varlega áætlað verða tvö þúsund börn hér á landi vitni að heimilisofbeldi á ári hverju. Þrjú börn hnífakastara biðu í hálft ár AÐ ATKVÆÐAGREIÐSLU LOKINNI Forystumenn flokkanna voru að vonum misánægðir með niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar í gær. Af sumum var þungu fargi létt en aðrir telja samningana hið mesta óráð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, tekur dæmi í skýrslunni: Á Íslandi kom upp barnaverndarmál árið 2009 þar sem faðir beitti þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi. Kastaði hann hníf í son sinn, handjárnaði dóttur sína við ofn og drap heimilisköttinn fyrir framan hana. Þau voru níu til fimmt- án ára. Fimm til sex mánuði tók að koma börnunum í viðeigandi meðferð. „Hefði verið um kynferðisofbeldi [að ræða] þá hefðu þau verið komin degi síðar í Barnahús … og meðferðin hafist í sömu viku og málið uppgötvaðist.“ VIÐSKIPTI Sérstakur saksóknari hefur hætt rannsókn á þætti fjárfestisins Magnúsar Ármann í svokölluðu Ímon-máli. Magnúsi barst bréf þess efnis frá saksóknaranum 9. febrúar. Þetta kemur fram í grein sem Magnús skrifar í Fréttablaðið í dag. Magnús er eigandi Ímons, sem keypti fjögurra prósenta hlut í Landsbankanum á fimm milljarða nokkrum dögum fyrir hrun. Þessi viðskipti hafa verið til rannsóknar síðan haustið 2008. „Ég hef þurft að sæta því í meira en tvö ár að vera dæmdur sekur af dómstóli götunnar og stimplaður glæpamaður í fjölmiðlum vegna Ímon-málsins. Mannorð mitt, og reyndar allrar fjölskyldu minnar, hefur beðið mikinn hnekki,“ segir Magnús og kveðst ekki hafður fyrir sök í neinu öðru máli. Í hnotskurn seg- ist hann hafa verið tjónþoli í Ímon-málinu, ekki brotamaður. Magnús segir lögmann sinn ítrekað hafa reynt að fá réttarstöðu hans breytt úr sak- borningi í vitni en án árangurs. Hann gagn- rýni þó ekki seinagang saksóknara og segist skilja mikinn áhuga fjölmiðla á málinu þótt umfjöllunin hafi oft farið yfir strikið. - sh / sjá síðu 19 Rannsókn sérstaks saksóknara á eiganda Ímons hefur verið hætt: Magnús ekki lengur til rannsóknar MAGNÚS ÁRMANN Brotið skip endurbyggt „Endurskoðun stjórnarskrár á umbrotatímum er stundum líkt við að smíða skip úti á rúmsjó,“ segir Þorvaldur Gylfason. Í dag 17 ALÞINGI Alþingi samþykkti í gær Icesave-frumvarp fjármálaráð- herra sem lög með 44 atkvæð- um gegn 16. Þrír sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Allir stjórnarliðar, fyrir utan Lilju Mósesdóttur og Ásmund Einar Daðason úr Vinstri græn- um, greiddu atkvæði með frum- varpinu auk meirihluta þing- flokks sjálfstæðismanna. Lögin bárust forseta Íslands til staðfestingar innan við klukku- stund eftir að þau voru samþykkt á þingi. „Það er mjög óvenju- legt,“ segir Örnólfur Thorsson forsetaritari. Ekki fékkst uppgef- ið hvenær forsetinn hygðist til- kynna hvort hann staðfesti lögin eða vísi þeim í þjóðaratkvæða- greiðslu. Fyrir rúmu ári lá hann undir feldi í sex daga. 36 þúsund nöfn höfðu í gær verið rituð undir áskorun á kjosum.is um að málinu yrði vísað til þjóðarinnar. - sh / sjá síðu 6 Þingið afgreiðir Icesave-lög: Icesave á ný í hendur forseta Sigur hjá Arsenal Arsenal gerði sér lítið fyrir og skellti Barcelona í Meistaradeildinni í gær. sport 34

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.