Fréttablaðið - 25.02.2011, Qupperneq 4
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR4
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
AF VÖRUM Á
MYNDABÓKAVEF25
afsláttur í
febrúar
Fermingakort A6, r
með 25% afslætti 119kr
Verð er gefið upp með vsk. og miðast við afhendingu hjá Odda Höfðabakka 7.
Afsláttur gildir ekki með öðrum tilboðum.
www.oddi.is
ALÞINGI Birkir Jón Jónsson, vara-
formaður Framsóknarflokksins,
vill að Ríkisend-
urskoðun verði
falið að taka út
stjórnvaldsat-
hafnir sem falið
hafa í sér beinar
eða óbeinar fjár-
veitingar úr rík-
issjóði til fyrir-
tækja í kjölfar
bankahrunsins.
Hefur hann
sent forsætis-
nefnd Alþingis erindi þess efnis.
Í því segir Birkir að endurfjár-
mögnun og víkjandi lán vegna
Arion banka, Íslandsbanka og
Landsbanka nemi samtals 184
milljörðum, aðgerðir vegna Sjó-
vár hafi kostað tæpa tólf millj-
arða og að reiknað sé með sam-
tals 26 milljarða útgjöldum vegna
sparisjóða. - bþs
Yfir 200 milljarða framlög:
Vill skýrslu um
fjárveitingar
BIRKIR JÓN
JÓNSSON
VIÐSKIPTI Taka á fyrstu skóflu-
stunguna að nýrri verslunarmið-
stöð í austurhluta Selfoss í dag,
að því er Sunnlenska greinir frá.
Um er að ræða tvö hús með til-
heyrandi bílastæði. Annars vegar
er um að ræða 2.300 fermetra
byggingu fyrir Haga, en í henni
verða verslanir Hagkaups og
Bónus. Hin byggingin verður 900
fermetrar og er húsnæðinu enn
óráðstafað.
Jáverk annast framkvæmdir,
en Sunnlenska hefur eftir Gylfa
Gíslasyni framkvæmdastjóra, að
60 til 70 manns starfi við verkið á
framkvæmdatímanum. Opna á í
nóvember næstkomandi.
- óká
Fyrsta skóflustungan tekin:
Hagkaup og
Bónus á Selfoss
STJÓRNSÝSLA Vel var staðið að
nýlegri sameiningu ráðuneyta að
mati Ríkisendurskoðunar. Með
sameiningum um síðustu áramót
urðu til innanríkisráðuneyti og
velferðarráðuneyti.
Í skýrslunni segir að athugun
hafi leitt í ljós að framkvæmdin
hafi verið vel undirbúin og mark-
mið skýr. Þá segir að gert sé ráð
fyrir að „sameinað ráðuneyti geti
betur tekist á við aukin og flókin
stjórnsýsluverkefni og að hag-
kvæmni muni aukast þegar til
lengri tíma er litið“. - þj
Ríkisendurskoðun:
Vel staðið að
sameiningum
EFNAHAGSMÁL Aðgerðir til að „flytja
heim“ svokallaðar aflandskrónur
gætu hafist mjög fljótlega, að sögn
Más Guðmundssonar seðlabanka-
stjóra. Hann upplýsti á fundi Félags
kvenna í atvinnurekstri um aðildar-
viðræðurnar að Evrópusambandinu
og valkosti í peningamálum í gær
að verið væri að leggja
lokahönd á áætlun um
afnám gjaldeyrishafta.
„Áætlunin verður
væntanlega kynnt fyrir
ríkisstjórn fyrir mánaða-
mótin,“ segir Már. Hann
segir tvennt standa í vegi
fyrir afnámi hafta. Annar
lúti að bunka svokallaðra
aflandskróna, en það eru
krónubirgðir utan land-
steinanna.
„Við höfum komist
að þeirri niðurstöðu að
næsta skref í afnámi
gjaldeyrishaftanna væri
að losa hann út og inn, ef
svo mætti til orða taka.“ Nokkrar
leiðir séu færar í þeim efnum svo
sem með skiptiútboðum og skilyrta
nýtingu aflandskróna í fjárfest-
ingarverkefni hér innanlands sem
ekki myndu veikja gengi krónunnar.
„Og í gegnum þetta ferli reyna að
minnka verulega þann mikla mun
sem er á aflandsgenginu og álands-
genginu.“
Már áréttar að í þessu fyrra ferli
afnáms hafta sé engum gjaldeyris-
forða hætt, ólíkt í því seinna, þegar
höftum yrði aflétt af útflæði gjald-
eyris. „Þá skiptir máli að minnka
verulega þann ótta sem verið
hefur í gangi um að krónan muni
falla einfaldlega af því að þessum
höftum hafi verið létt,“ segir Már.
Fyrsta skrefið í afnámi hafta segir
Már geta tekið töluvert langan
tíma, jafnvel nokkra mánuði og
töluvert inn í þetta ár.
„Til að stíga seinna skrefið verður
að vera alveg tryggt að ríkissjóður
Íslands hafi sýnt getu til að endur-
fjármagna sig á verðbréfamark-
aði,“ segir Már. Að öðrum kosti
verði ekki hægt að taka áhættuna
á því að ganga á gjaldeyrisforða
landsins í stuðningi við gjaldmið-
ilinn. Þar segir hann líka koma að
vandamálinu með Ice-
save, því ríkissjóður geti
ekki endurfjármagnað sig
á markaði með það mál
ólokið.
Verði nýjum Icesave-
samningi hafnað í þjóð-
aratkvæðagreiðslu segir
Már viðbúið að lánshæfi
ríkissjóðs myndi lækka
og taka muni mjög lang-
an tíma fyrir landið, með
Icesave-deiluna óleysta,
að komast á markaði.
Hann bendir á að gjald-
dagar stórra lána nálg-
ist hjá ríkinu, á þessu ári
og því næsta og því yrði
að herða mjög á söfnun gjaldeyr-
isforða til að geta mætt þeim, auk
þess sem meiri niðurskurð þyrfti
hjá ríkinu. „Við látum það ekki ger-
ast að íslenska ríkið lendi í greiðslu-
þroti því það myndi hafa afleiðingar
langt inn í framtíðina.“
Már segir að samningahópur-
inn um gjaldmiðilsmál í aðildar-
viðræðunum við ESB, sem hann
fer fyrir, hafi fengið það veganesti
að stefnt skyldi að evruaðild eins
fljótt og auðið yrði. Leiðin að evr-
unni væri þó nokkuð löng. Landið
þyrfti að ganga í ESB áður en til
ERM II myntsamstarfs gæti komið
og í því samstarfi þyrfti að vera í
tvö ár hið minnsta áður en kæmi
til upptöku evru. Þá þyrfti að upp-
fylla ýmis skilyrði önnur, svo sem
að taka á athugasemdum ESB um
að hér þyrfti að tryggja betur með
lögum sjálfstæði Seðlabankans.
olikr@frettabladid.is
Í GÆR Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og formaður samningahóps um gjald-
miðilsmál í viðræðum við ESB, og Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður
Íslands, fluttu erindi og sátu fyrir svörum á fundi FKA í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fyrst tekið á aflandskrónum
Seðlabankinn lýkur fyrir fyrir mánaðamót áætlun um afnám gjaldeyrishafta. Fyrst á að flytja heim aflands-
krónur. Höftum verður ekki létt með Icesave óleyst. Nei í kosningu þýðir meiri niðurskurð og strangari höft.
Seðlabankinn telur ESB-leið langbesta
Áður en kemur að upptöku evru þarf að uppfylla ákveðin skilyrði. Þar á
meðal bendir Már Guðmundsson seðlabankastjóri á að fjármagnsflutningar
þurfi að vera frjálsir áður en gengið er í Evrópusambandið. Már er jafnframt
formaður samningahóps um gjaldmiðilsmál í aðildarviðræðum við ESB.
„Áður fyrr gátu lönd gengið í sambandið með einhver fjármagnshöft,“
segir Már og bætir við að þetta sé eitt þeirra atriða sem taka þurfi upp í
aðildarviðræðum við sambandið. Yrði þá lagt mat á hvort varúðarreglur
sem hér yrðu settar og takmörkuðu frelsi íslenskra fjármálastofnana til að
stofna til skuldbindinga í erlendri mynt myndu teljast til gjaldeyrishafta.
Slíkar takmarkanir yrðu hluti af nýju kerfi sem hér yrði tekið upp við stjórn
peningamála og Már hefur nefnt „verðbólgumarkmið plús“. Þá leið segir
hann hins vegar mun hagfelldari og kostnaðarminni en fastgengisstefnu,
hvort heldur sem er væri með eða án myntráðs, eða einhliða upptöku
annarrar myntar. Verðbólgumarkmið plús segir Már að myndi gagnast
okkur annaðhvort fram að aðild eða til framtíðar yrði aðild að ESB hafnað
í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Seðlabankastjóri áréttar hins vegar að í skýrslu Seðlabankans um
framtíðarstjórnun peningamála þá sé Evrópusambandsleiðin talin lang-
best. „Það eru margar ástæður sem ég gæti farið inn á,“ segir hann og
bendir á að þá yrði hér fjármálastöðugleiki tryggður, ekki þyrfti að eyða
gjaldeyrisforðanum í upptöku evru, heldur yrði krónu skipt á pari við evru,
auk þess sem Seðlabankinn hefði aðild að ákvörðunum í peningamálum
og fleira slíkt.
Áætlunin
verður vænt-
anlega kynnt
fyrir ríkisstjórn
fyrir mánaða-
mótin.
MÁR
GUÐMUNDSSON
SEÐLABANKASTJÓRI
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
8°
2°
2°
7°
6°
2°
2°
20°
13°
16°
11°
28°
1°
14°
9°
-1°
Á MORGUN
8-15 m/s.
SUNNUDAGUR
5-10 m/s, hlýnandi.
0
3
3
2
0
5
5
6
6
5
4
13
8
9
10
7
9
8
7
7
17
7
4
3
0 -1
-1
0
0
1
3
5
HELGARHORFUR
Það má búast við
svipuðu veðri á
landinu á morgun,
en það bætir
heldur í úrkomuna
á vesturhelmingi
landsins en eystra
verður nokkuð
bjart. Stíf vestanátt
fram eftir morgun-
degi en síðan
dregur úr vindi og
úrkomu á sunnu-
daginn.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
EVRÓPUMÁL Gert er ráð
fyrir að fyrsta skrefinu
í formlegum aðildarvið-
ræðum Íslands og Evrópu-
sambandsins (ESB) sem
hófust í nóvember ljúki
í júní. Fram kom í máli
Stefáns Hauks Jóhannes-
sonar, aðalsamninga-
manns Íslands í viðræðun-
um við ESB, á fundi Félags
kvenna í atvinnurekstri
(FKA) um aðildarviðræðurnar og
kosti í peningamálum í gær, að
fyrsta skrefið væri mjög tæknilegt.
„Við höfum kallað þetta rýni-
vinnu, en hún felst í að sér-
fræðingar okkar rýna í og
greina Evrópulöggjöfina
og bera saman við okkar
eigin löggjöf til þess að
skilgreina nákvæmlega
hvað ber í milli,“ segir
Stefán Haukur, en þessi
rýnivinna sé undanfari
þess að hægt sé að hefja
efnislegar viðræður. „Við
erum um það bil hálfnuð í
þessari vinnu núna.“
Stefán Haukur segir efnislegar
viðræður hefjast þegar rýnivinn-
unni ljúki. „Og síðan af fullum
þunga eftir sumarhlé á þessu ári.“
Fram kom í máli Stefáns að erf-
itt væri að segja til um það hve-
nær viðræðum lyki og til mögu-
legrar aðildar gæti komið að ESB.
Íslendingar réðu hraðanum í við-
ræðunum og segðu svo af eða á um
aðildar samning þegar hann lægi
fyrir.
Stefán Haukur bendir á að þjóð-
aratkvæðagreiðslan þurfi nokkurn
aðdraganda, svo fólk geti tekið upp-
lýsta afstöðu til aðildarsamningsins.
Verði hann staðfestur taki svo við
fullgildingarferli hjá ESB sem gæti
tekið eitt og hálft til tvö ár. - óká
Rýnivinna sem hófst í nóvember vegna umsóknar um aðild að ESB er hálfnuð:
Efnislegar viðræður hefjast í sumar
STEFÁN HAUKUR
JÓHANNESSON
GENGIÐ 24.02.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,3144
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,95 116,51
187,73 188,65
159,83 160,73
21,437 21,563
20,674 20,796
18,152 18,258
1,4171 1,4253
182,05 183,13
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is