Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 50
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR34 sport@frettabladid.is BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Sporhamrar 5 Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna lóðarinnar nr. 5 við Sporhamra. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit vegna útigeymslu ásamt fjölgun íbúða úr fimm í sex. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 25. febrúar 2011 til og með 8. apríl 2011. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 8. apríl 2011. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 25. febrúar 2011 Skipulagsstjóri Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið HANDBOLTI Vegna fréttar Frétta- blaðsins um síðustu helgi þar sem bent var á að handknattleiksdeild Fram hefði beitt sömu vinnu- brögðum og handknattleiksdeild Vals vill Hjálmar Vilhjálmsson, stjórnarmaður hjá Fram, koma eftirfarandi á framfæri. Síðastliðinn laugardag sendi fulltrúi Fram leikmannasamning til HSÍ vegna stúlku úr 3. flokki sem tekin var inn í leikmanna- hóp meistaraflokks kvenna. Ekki gekk að senda afrit af samningn- um með faxi og því setti fulltrúi Fram sig í símasamband við starfsmann HSÍ og sendi honum svo afrit af umræddum samningi í tölvupósti. Afrit af samningnum barst þannig starfsmanni HSÍ fyrir umræddan leik. Daginn eftir sendu fulltrúar Valsmanna afrit af samningi Markúsar Mána Michaelssonar Maute eins og fram hefur komið. Afritið var einnig sent með faxi en sökum bilunar var það ekki starfsmönnum HSÍ aðgengilegt fyrr en daginn eftir að leikurinn fór fram. Á þessum vinnubrögð- um er grundvallar eðlismunur að mati Hjálmars og er fyrirsögn Fréttablaðsins um tvískinnung Framara harðlega mótmælt. Hjálmar vill einnig koma því á framfæri að hann bindur vonir við yfirlýsingu stjórnar HSÍ frá 16. febrúar þar sem hún lýsir meðal annars yfir að umrædd framkvæmd verði tekin til endur- skoðunar og leitast við að gera reglur skýrari en nú er. Að öðru leyti vill Hjálmar vísa til yfir- lýsingar stjórnar handknattleiks- deildar Fram frá 17. febrúar. - seth Hjálmar Vilhjálmsson: HSÍ látið vita um samning HJÁLMAR VILHJÁLMSS. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Iceland Express-deild karla Njarðvík-Keflavík 104-102 (43-45, 93-93) Stig Njarðvíkur: Giordan Watson 40, Guðmundur Jónsson 24, Nenad Tomasevic 13, Jóhann Árni Ólafsson 8, Hjörtur Hrafn Einarsson 8, Páll Kristinsson 4, Rúnar Ingi Erlingsson 3, Egill Jónasson 2, Friðrik E. Stefánsson 2 (12 frák.). Stig Keflavíkur: Magnús Þór Gunnarsson 30, Hörður Axel Vilhjálmsson 22 (7 frák./6 stoðs.), Andrija Ciric 17, Thomas Sanders 15 (11 frák./8 stoðs.), Þröstur Leó Jóhannsson 7, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 6, Jón Nordal Hafsteinsson 4, Halldór Örn Halldórsson 1. Snæfell-Haukar 119-77 (56-32) Stig Snæfells: Sean Burton 29 (7 frák./11 stoðs.), Ryan Amaroso 21, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 20, Jón Ólafur Jónsson 14, Emil Þór Jóhannsson 9, Atli Rafn Hreinsson 6, Zeljko Bojovic 6, Sveinn Arnar Davíðsson 5 (12 frák./7 stoðs.), Egill Egilsson 5, Hlynur Hreinsson 2, Daníel A. Kazmi 2. Stig Hauka: Gerald Robinson 24 (11 frák.), Semaj Inge 22, Emil Barja 8, Davíð Páll Hermannsson 8, Sveinn Ómar Sveinsson 8, Haukur Óskarsson 3, Sigurður Þór Einarsson 2, Guðmundur Darri Sigurðsson 2. KFÍ-Fjölnir 94-101 STAÐAN Í DEILDINNI Snæfell 19 16 3 1856-1692 32 KR 18 14 4 1757-1522 28 Keflavík 19 13 6 1792-1660 26 Grindavík 18 12 6 1495-1409 24 Stjarnan 18 10 8 1548-1547 20 Njarðvík 19 8 11 1547-1614 16 Haukar 19 8 11 1613-1721 16 ÍR 18 7 11 1602-1650 14 Tindastóll 18 7 11 1436-1513 14 Fjölnir 19 6 13 1670-1761 12 Hamar 18 6 12 1443-1519 12 KFÍ 19 4 15 1628-1779 8 NÆSTU LEIKIR ÍR-Stjarnan í kvöld kl. 19.15 Grindavík-Hamar í kvöld kl. 19.15 Tindastóll-KR í kvöld kl. 19.15 Sænski körfuboltinn 08 Stockholm HR-Solna Vikings 64-101 Logi Gunnarsson skoraði 22 stig á 21 mínútu. ÚRSLIT Í GÆR JÓSEF KRISTINN JÓSEFSSON mun ekki spila með Grindavík í Pepsi-deildinni í fótbolta í sumar því hann er farinn til Búlgaríu þar sem hann mun skrifa undir samning við PSFC Chernomorets Burgas. Jósef var til reynslu hjá félaginu um daginn og sló greinilega í gegn. Jósef er 21 árs gamall vinstri bakvörður sem hefur verið í kringum 21 árs landsliðið síðustu ár. KÖRFUBOLTI Njarðvík bar sigur úr býtum gegn Keflavík, 104-102, eftir framlengdan leik í 19. umferð Iceland Express-deildar karla í gær. Keflvíkingar voru ávallt með frumkvæðið í leiknum en Njarðvíkingar gáfust aldrei upp og sýndu gríðarlegan karakter í lokin. Giordan Watson, nýr leikmaður Njarðvíkinga, var stórkostlegur og greinilegt að heimamenn duttu í lukkupottinn þegar þeir fengu þennan öfluga leikstjórnanda. Watson skoraði 40 stig í leiknum og Keflvíkingar réðu ekkert við hann. Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður Keflvíkinga, átti einnig frábæran leik en hann skoraði 30 stig þar af níu þriggja stiga körfur. „Þetta var kærkominn sigur og gríðarlega mikilvægur,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, annar þjálfara Njarðvíkinga, eftir sig- urinn í gær. „Við erum búnir að leggja mótið þannig upp að við verðum að ná í þrjá sigra af þeim leikjum sem við eigum eftir og þetta var einn af þeim. Um leið og liðið fær ákveðið sjálfstraust þá getum við unnið hvaða and- stæðing sem er, en það var sér- staklega gaman að klára leikinn í svona háspennuleik. Liðið gafst aldrei upp og strákarnir sýndu mikinn karakter í lokin og það er það sem við eigum eftir að taka með okkur í næstu leiki. Þó svo að varnarleikur okkar hafi ekki verið upp á marga fiska þá náum við að bæta það upp með fínum sóknar- leik. Ef við náum að vinna þá leiki sem eftir eru þá eigum við eftir að fara inn í úrslitakeppnina í ágætis sæti og það er markmiðið.“ „Við klúðruðum þessum leik alveg sjálfir,“ sagði Guðjón Skúla- son, þjálfari Keflvíkinga, eftir tapið í gær. „Við leyfum þeim að spila sinn leik nánast allan tímann og það var algjör klaufaskapur að ná ekki að lagfæra varnarleikinn hjá okkur. Við grófum bara okkar eigin gröf hér í kvöld en verðum bara að halda áfram og vinna næstu leiki. Við áttum í erfiðleikum með að slíta okkur frá Njarðvíkingun- um og þeir gengu á lagið og nýttu sér það,“ sagði Guðjón nokkuð svekktur eftir leikinn í gær. - sáp Njarðvíkingar eru til alls líklegir á lokasprettinum Njarðvík vann 104-102 sigur á nágrönnum sínum í Keflavík eftir framlengingu í Ljónagryfjunni í Njarðvík í gærkvöldi. Magnús Þór Gunnarsson skoraði níu þrista í leiknum en það dugði ekki til því nýi Kani Njarðvíkur fór á kostum. FRÁBÆR Í FYRSTA LEIK Giordan Watson, hinn nýi bandaríski bakvörður Njarðvíkinga, byrjar vel með liðinu en hann skoraði 40 stig í gærkvöldi. MYND/JÓN BJÖRN ÓLAFSSON FÓTBOLTI Hollendingurinn Dirk Kuyt tryggði Liverpool 1-0 sigur á Sparta Prag í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeild- arinnar á Anfield í gær en Kuyt skoraði markið með skalla eftir hornspyrnu frá Raúl Meireles fjórum mínútum fyrir leikslok. Fyrri leiknum lauk með marka- lausu jafntefli í Tékklandi í síð- ustu viku og liðin voru því búin að spila í 175 markalausar mín- útur þegar Kuyt skoraði. „Það tók okkur sinn tíma að skora en 1-0 nægir til þess að fara áfram og við erum því ánægðir,“ sagði Dirk Kuyt eftir leikinn. „Þetta var erfiður leikur en við áttum að vera búnir að skora áður í leiknum. Það var þó sigurinn sem skipti öllu máli,“ sagði Kuyt en Liverpool mætir Braga í 16 liða úrslitum. Edin Dzeko skoraði tvö mörk á fyrstu 11 mínútunum þegar Manchester City vann 3-0 sigur á Aris Saloniki í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar en með sigrinum tryggði City-liðið sér leiki á móti Dynamo Kiev í 16 liða úrslitunum. Edin Dzeko nýtti sér varnarmistök og kom Manchester City í 1-0 á 7. mínútu og skoraði síðan annað mark fjórum mínútum seinna eftir sendingu frá Carlos Tevez. Yaya Touré innsiglaði síðan sigurinn á 75. mínútu. - óój Liverpool og Man City áfram: Kuyt var hetjan DIRK KUYT Fagnar hér sigurmarki sínu í gær. MYND/AP HANDBOLTI Halldóri Ingólfssyni var í gær sagt upp störfum sem þjálfara meistaraflokks karla hjá Haukum og mun Gunnar Berg Viktorsson taka við liðinu með Birki Ívar Guðmundsson, mark- vörð liðsins, sér til aðstoðar. Hauk- arnir sendu frá sér fréttatilkynn- ingu í gærkvöldi og þar kemur fram að stjórn handknattleiks- deildar Hauka hafi ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Halldór Ingólfsson. Halldór tók við liði Hauka síðasta sumar af Aroni Krist- jánssyni sem hafði gert Hauka að Íslandsmeisturum tvö ár í röð. Haukar eru núna í 5. sæti N1-deildar karla, einu stigi á eftir HK sem er í 4. sæti. Fjög- ur efstu liðin fara í úrslita- keppnina. Haukarnir unnu aðeins einn sigur í síð- ustu fimm leikj- um sínum í N1- deildinni en síðasti leik- ur liðsins undir stjórn Halldórs Ingólfssonar var annað jafnteflið á átján dögum á móti botnliði Selfyssinga. Þetta er annað árið í röð sem Halldór Ingólfsson er látinn fara frá liði í N1-deild karla en Grótta sagði upp samningi við hann 13. mars í fyrra eftir að það komst upp að Halldór hafði samþykkt að taka við Haukaliðinu fyrir núver- andi tímabil. Gunnar Berg Viktorsson er enn leikmaður Hauka en hann hefur verið meiddur nær allt tímabil- ið. Hann hefur þjálfað 2. flokk Hauka í vetur og þekkir því vel til yngri leikmanna liðsins. - óój Gunnar Berg Viktorsson tók við Haukaliðinu í gær: Halldór rekinn í annað sinn á einu ári HALLDÓR INGÓLFS- SON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.