Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 26
4 föstudagur 25. febrúar núna ✽Ljómið um helgina Hin sanngjarna móðir ? Sæl Sigga, ég er einstæð móðir einstakrar unglingsstúlku. Hún er mjög ákveðin og skynsöm og samband okkar er mjög traust. Þessi litla stúlka mín er nú farin að slá sér upp með strák sem er töluvert eldri en hún, hún er sjálf aðeins 14 ára og hann er 21 árs. Ég þekki piltinn lítið ennþá en vona að þessi skynsama stúlka hafi valið sér góðan strák. Fyrir stuttu spurði hún hvort hún mætti gista yfir nótt hjá stráknum og ég tók fyrir það þar sem mér finnst hún alltof ung. Mörgum vinkonum mínum þótti ég þó hafa brugðist of harkalega við og nú veit ég ekki í hvorn fótinn ég á að stíga. Hvað finnst þér um þetta? Svar: Ég finn mig knúna til að brjóta odd á oflæti mínu og játa að nú heyri ég rödd móður minnar bergmála með skynsemisorðunum: „þú hefur nægan tíma fyrir svona strákastand“. Það er mér í fersku minni hvernig sjálfstæðisbaráttan togaðist á við ábyrgðarleysið, hver einasta tilfinning er ýkt með hormónum og veruleikinn er allur í núinu. Þegar kemur að ástinni getur þú tæpast stjórnað því fyrir hverjum unglingshjartað fellur. En þú getur stjórnað náttstaðnum enda er dótt- ir þín ósjálfráða og enn skilgreind sem barn. Það fyrsta sem ég horfði í var aldursmunurinn á þessu unga pari en það er ekki hægt að alhæfa neitt um aldur þar sem hann er afstæður. Persónulega myndi ég gera kröfu um að fá að kynnast þessum strák, hvort sem þú bjóðir honum í mat eða biðjir þau um að vera heima hjá ykkur þegar þau hittast. Móðir skoðar ekki heiminn í gegnum rósrauð gleraugu og getur því verið ágæt- ur mannþekkjari og þannig reynt að standa vörð um hag barnsins. Það er ekki hægt að segja að eitt sé rangt og annað rétt því þú ert móðir hennar og þín ákvörðun er þar af leiðandi „rétt“. Þú verður að treysta eigin innsæi og láta gagnrýnisraddir sem vind um eyru þjóta. Hún er ennþá barn og treystir á þig til að vísa henni veginn. Þótt þú getir virst „ósanngjörn“ og jafnvel „leiðinleg“ þá er það hinn þungi kross sem allir foreldrar bera. Þú þarft að standa með þinni sannfæringu. Reyndu að hvetja hana til að leyfa þér að kynnast stráknum betur og settu jafnvel einhver tímamörk á næturgistingu, til dæmis að hann megi gista hjá henni þegar þau eru búin að vera saman í ákveðið lang- an tíma. Ég get ekki lokið við þetta svar nema að minnast á getnaðar- varnir og vona að skynsama stúlkan þín sé frædd um smokkanotkun, kynsjúkdóma og ótímabærar þunganir. Ef þú ert ekki viss hvað hún veit þá er þetta kjörið tækifæri til að setjast niður með henni og ræða málin í þaula. Þá gæti verið gott að koma því að hvort hún hafi stund- að kynlíf áður og hvort þau eigi í kynferðislegu sambandi því það að hamla næturgistingu kemur ekki í veg fyrir kynlíf. Þú ert með gullið uppalandatækifæri í höndunum og ég vona að ykkur gangi vel að leysa úr þessu máli saman. Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur G itte Christensen útskrifaðist úr TEKO-hönnunarskólan- um nú í janúar og var í hópi nemenda sem sýndu út- skriftarlínur sínar á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Hönnun Gitte stóð út úr hvað liti varðar og segist hún með eindæmum litaglöð miðað við hinn hefðbundna Skandinava. Gitte segist hafa sótt innblástur í tísku sjötta áratugarins og til íþróttafatnaðar þegar hún var að hanna útskriftarlínu sína. „Það tók mig langan tíma að átta mig á því hvað ég vildi gera með útskriftarlínuna, sérstaklega þar sem ég vil ekki gera of klassískan fatnað. Ég sótti fyrst innblástur til klæð- skerasniðinna fata sjötta áratugarins en fannst það eitthvað of venjulegt. Þegar ég ákvað að blanda því saman við íþrótta- fatnað opnuðust nýjar víddir fyrir mér og úr varð þessi út- skriftarlína,“ útskýrir Gitte. Línan hefur fengið góða dóma og segist Gitte afar sátt við útkomuna. Gitte telur danska hönnuði standa mjög framarlega og segir jarðliti og hreinar línur vera helstu einkenni þeirra. Hennar eigin lína stendur því svolítið upp úr hvað litaval varðar en hún notar mikið sterka græna, fjólubláa og bláa liti. „Danir eru svolítið litahræddir og þess vegna held ég að hönnun mín eigi frekar heima á Japansmarkaði en hér í Danmörku,“ segir hún og hlær. Hún viðurkennir að tísku- bransinn sé harður og að margir efnilegir unghönnuðir séu að stíga fram á sjónarsviðið núna. „Þetta er harður heim- ur og samkeppnin er mikil. Það er draumur minn að koma línunni minni í framleiðslu og geta haft lifibrauð mitt af hönnun í framtíðinni,“ segir hún að lokum. - sm Gitte Christensen sker sig úr fjöldanum með litríka hönnun sína: HÖRÐ BARÁTTA FRAM UNDAN Efnileg Gitte Christensen út- skrifaðist frá TEKO-hönnunar- skólanum nú í janúar. Hún var á meðal þeirra nemenda sem sýndu hönnun sína á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Litaglöð Hönn- un Gitte er litrík og skemmtileg. Hún sótti inn- blástur til hönn- unar sjötta ára- tugarins og íþróttafatnaðar. NORDICPHOTOS/GETTY LJÓMANDI HÚÐ Flottur púðurfarði frá Yves Saint Laurent sem hentar flestum húðgerðum. Farðinn gefur húðinni frísklegan ljóma og jafnar einnig húðlitinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.