Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 10
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR10 DÓMSMÁL Maður sem stakk báða foreldra sína í augun með skrúf- járni á meðan þeir sváfu hefur verið metinn ósakhæfur af Hér- aðsdómi Reykjavíkur og dæmdur til vistar á öryggisstofnun. Maðurinn var ákærður fyrir tilraun til manndráps en til vara fyrir sérstaklega hættulega lík- amsárás. Hann var sakfelldur fyrir hið síðarnefnda. Árásin var framin í október síðastliðnum. Auk þess að stinga foreldrana í augun sló hann föður sinn með krepptum hnefa og tveggja kílóa pönnu með þeim afleiðingum að hann hlaut meðal annars heilahristing. Geðlæknir sagði manninn hafa dulin merki geðrofs og sturlunar. Hann hafi verið ófær um að stjórna gerðum sínum. Foreldrunum eru dæmdar 400 þúsund krónur í bætur á mann. - sh Dæmdur til vistar á stofnun: Stakk foreldra sína í augun EVRÓPUMÁL Minnst þrír umsækj- endur af þeim átta sem valdir voru til að taka þátt í útboði vegna kynn- ingarmála Evrópusambandsins á Íslandi hafa helst úr lestinni. Hvorki Háskóli Íslands né Háskóli Reykjavíkur munu koma að verkefninu, en stofnanir innan þeirra höfðu boðið fram krafta sína til þessa. Samstarfsaðili Alþjóðamálastofn- unar HÍ, breska fyrirtækið Ecorys, er hætt við. Það telur sér ekki fært að taka þátt í verkefninu því ESB ætlar að eyða allt of litlu fjármagni í það, að sögn Baldurs Þórhallsson- ar, stjórnarformanns Alþjóðamála- stofnunar HÍ. Áætlaður heildarkostnaður ESB mun vera 1,4 milljónir evra til tveggja ára, eða tæpar 224 milljónir íslenskra króna. Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík ætlaði í samstarf um kynningarmálin með College of Europe í Brugge (CoE). „Þeir sögðu okkur að þetta væri stærra verkefni en þeir gerðu sér grein fyrir í byrjun og hættu við,“ segir Jóhann Hlíðar Harðarson, upplýsingafulltrúi HR. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur hópur ráðgjafarfyrirtækisins Cecoforma hætt við þátttöku í útboðinu. Fyrirtækinu hafi komið íslenskur launakostnaður á óvart. Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, vill hvorki neita né staðfesta neitt um stöðu útboðsmálanna á meðan þau eru í ferli. Líklega verði tilkynnt um niðurstöðu útboðsins í næstu viku. - kóþ Evrópusambandið er sagt ætla að veita of lítið fjármagn í kynningarstarfið á Íslandi: Háskólar dottnir úr kynningu ESB ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þvertekur fyrir að hafa hótað forseta Íslands afsögn sinni eða ríkisstjórnarinnar ef Icesave-lögin yrðu ekki staðfest. Sigurður Kári Kristjánsdóttir, Sjálfstæðis- flokki, gerði þau orð forseta Íslands að umtalsefni á Alþingi í gær að öll spjót stæðu á forsetanum; ráð- herrar hótuðu afsögn sinni eða ríkisstjórnarinnar yrðu lögin ekki staðfest. Sigurður Kári sagðist trúa því að forseti Íslands gæfi ekki slíkar yfirlýsingar að tilefnislausu, með þessu hlyti hann að vísa til orða forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar og krefði Jóhönnu svara þar að lútandi. Jóhanna sagði af og frá að hún hefði hótað forsetanum í þessa veru og hvatti Sigurð Kára að fara til Bessastaða að spyrjast fyrir um málið; „því ég hef engar frekari upplýsingar um hvernig for- setinn kemst að þessari niðurstöðu,“ sagði hún. - pg Jóhanna þvertekur fyrir að hafa hótað afsögn ef Icesave-lög yrðu ekki staðfest: Segir Sigurði Kára að spyrja forsetann HAMFARIR Íslensk stjórnvöld og forsetaembættið hafa sent Nýsjá- lendingum samúðarkveðjur vegna hinna mannskæðu jarð- skjálfta sem riðu yfir borgina Christchurch í upphafi vikunnar. Í tilkynningum frá forsætisráð- herra og forseta segir að hugur Íslendinga sé með þeim sem eigi um sárt að binda, sem og öðrum íbúum landins. Fjölmargir Íslendingar eigi ættingja og vini á hörmungar- svæðinu og því fylgist þjóðin náið með framvindu mála. - þj Hörmungar í Christchurch: Samúðarkveðj- ur frá Íslandi FORSÆTISRÁÐHERRA Jóhanna Sigurðardóttir kannast ekki við að hafa hótað forseta Íslands því að segja af sér embætti vegna Icesave-laganna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1. B & S Europe, Premisa d.o.o., InWentw 2. College of Europe, Háskólinn Í Reykjavík 3. Congress Service Center, Albany Associates, M.C. Triton, AP almannatengsl 4. ECORYS, Háskóli Íslands, Góð samskipti 5. EIR Development Partners, KOM, Pomilio Blumm, European Movement Latvia 6. INTRASOFT, HCL Consultants Ltd. 7. Media Consulta International, Athygli almannatengsl 8. SAFEGE, European Service Network, Aspect Relations Publiques, Cecoforma Valin til þátttöku í útboði ESB: BALDUR ÞÓRHALLSSON JÓHANN HLÍÐAR HARÐARSON www.penninn.is 1. Hvað fékk Menntaskólinn Hraðbraut margar milljónir ofgreiddar frá ríkinu? 2. Hvar er mesti ungbarnadauði í Evrópu? 3. Hverjir verða kynnar á Óskarsverðlaunahátíðinni í ár? SVÖR: 1. Tæpar 200 milljónir 2. Í Tyrklandi 3. Anne Hathaway og James Franco VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.