Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 44
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR28 Breska söngkonan Cheryl Cole hyggst hasla sér völl í bandarísku sjónvarpi sem dómari í raunveruleika- þáttaröðinni X-Factor. Hún á þó erfitt verkefni fyrir höndum. Cheryl Cole er ein vinsælasta söngkona Bretlands og hefur um árabil verið dómari í bresku X- Factor-þáttunum ásamt Simon Cowell. Og hlotið mikið lof fyrir enda alþýðleg með eindæmum með þykkan hreim. Bandarísk- ir sjónvarpsframleiðendur eru hins vegar ekki par hrifnir af því hvernig Cole talar og hafa skip- að henni að losa sig við geordie- hreiminn sinn. Samkvæmt Daily Mail hafa Kanarnir áhyggjur af því að bandarískir sjónvarpsáhorfend- ur eigi hvorki eftir að skilja upp né niður í Cheryl Cole þegar hún byrji að tala. Og að slíkt væri hreinlega móðgun við bandaríska sjónvarpsáhorfendur. Söngkon- unni, sem er ættuð frá Newcastle, hefur verið gert að hreinsa ræki- lega til í orðaforða sínum og forð- ast slanguryrði. Og meðal orða sem eru á bannlista Cole má nefna „babe“ en Cole notar það til að lýsa fallegum konum. Þá má hún ekki segja „bum“ fyrir rass heldur nota frekar orðið „butt“ og forðast orðið „cookies“ fyrir kex og segja heldur „biscuits“. Samkvæmt Daily Mail hefur Cole leitað til sama tungumála- sérfræðings og Sharon Osbourne notaðist við þegar hún vildi hljóma ögn fágaðri í bandarísku sjónvarpi. Cole og hrokagikkurinn Simon Cowell munu sitja í dómnefnd- inni en ekki hefur verið gengið frá því hver fær þriðja sætið. Upphaflega var talið að George Michael myndi hreppa það en Cowell vísaði því á bug. Sam- kvæmt breskum og banda- rískum fjölmiðlum er Nicole Scherzinger, söngkona Pussycat Dolls og unn- usta Lewis Hamilton, líklegust til að hreppa hnossið en hún stóð sig vel sem gesta- dómari nýverið að mati Cowell. freyrgigja@frettabla- did.is Gert að laga hreiminn ÓSKILJANLEG Cheryl Cole er í hálfgerðri My Fair Lady meðferð hjá bandarískum talmálssérfræðingum en bandarískir framleiðendur X- Factor hafa gert henni að losa sig við geordie-hreiminn sinn. Bandaríska hljómsveitin Eagles stígur á stokk í Nýju Laugardals- höllinni fimmtudaginn 9. júní á vegum Senu. Ný tónleikaferð sveitarinnar um Evrópu hefst hér á landi og verður 65 manna fylgdarlið með í för. Meðlimir Eagles ætla að nota dagana fyrir tónleikana til að æfa sig hér á landi fyrir tónleikaferðina. Þetta verða fyrstu stóru tónleikarnir hérlend- is með erlendum flytjanda síðan Eric Clapton steig á svið í Egilshöll í ágúst 2008 fyrir framan þrettán þúsund manns, skömmu áður en bankahrunið varð. Eagles á tvær af tíu mest seldu plötum alrra tíma, Greatest Hits og Hotel California. Hljómsveitin hefur gefið út sjö hljóðversplötur auk safnplatna og tónleikaplatna og hafa þær samanlagt selst í rúmlega 120 milljónum eintaka. Á meðal vinsælustu laga Eagles eru Hotel California, Tequila Sunrise, Desperado og Take It Easy. Miða- sala á tónleikana hefst í fyrri hluta mars og verða um tíu þúsund miðar í boði. Eagles til Íslands Á LEIÐINNI Glenn Frey og félagar í Eagles koma til Íslands í sumar. Rokksveitin Agent Fresco er að skipuleggja tónleikaferð um Evr- ópu í júní og júlí. Þetta verður fyrsti alvöru túr sveitarinnar um Evrópu en hingað til hefur hún verið úti í mesta lagi fimm daga í einu. „Þetta er það sem við erum búnir að bíða eftir. Það verður gott að komast út og láta í okkur heyra. Síðan sjáum við hvað kemur út úr því,“ segir söngvarinn Arnór Dan Arnarson. Agent Fresco átti að hita upp fyrir Ensími á tónleikum á Nasa á laugardaginn. Ekkert verður af því og í staðinn hleypur Cliff Clavin í skarðið fyrir Fresco. „Það er allt í góðu. Þetta var bara kjána- legur misskilningur,“ segir Arnór Dan um ótímabæra fréttatilkynn- ingu sem var send fjölmiðlum á miðvikudag. - fb Ferðast um Evrópu Hljómsveitin Hjaltalín hitar upp fyrir væntanlega tónleikaferð sína um Evrópu með tvennum tónleik- um á Rosenberg í kvöld og annað kvöld. Þetta verða fyrstu tónleikar Hjaltalín hér á landi í þrjá mánuði. Í næstu viku heldur sveitin í tón- leikaferð um Bretland og víðar um Evrópu sem stendur yfir í heilan mánuð. Á tónleikunum á Rósen- berg verður tækifærið notað til að prufa ný lög fyrir tónleikaferðina. Dagana fyrir ferðina ætlar sveitin einnig að skella sér í hljóðver og leggja drög að nýrri plötu. Ekki er búist við að hún komi út fyrr en í fyrsta lagi snemma á næsta ári. Hitar upp fyrir ferðalag HJALTALÍN Hljómsveitin hitar upp fyrir tónleikaferð um Evrópu með tónleikum á Rosenberg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Til stendur að endurgera kvik- myndina The Bodyguard, sem kom út árið 1992 með Kevin Cost- ner og Whitney Houston í aðal- hlutverkum. Fyrri myndin fjallaði um leyni- þjónustumann sem var fenginn til að vernda söngkonu sem var elt á röndum af brjáluðum aðdáanda. Í nýju myndinni er lífvörðurinn orðinn fyrrverandi hermaður í Írak. Ástarsagan á milli lífvarð- arins og söngkonunnar verður þó enn á sínum stað. Enn á eftir að ráða leikara í aðalhlutverkin. Bodyguard endurgerð AGENT FRESCO Rokkararnir eru á leið- inni í tónleikaferð um Evrópu í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI folk@frettabladid.is 3 konur fóru með eiturlyfjafíklinum og leikaranum Charlie Sheen í ferðalag á hitabeltiseyju í gær. Brooke Mueller, fyrrverandi eiginkona hans, klám- myndaleikkonan Bree Olson og ein ónafngreind. FRUMSÝND 25. FEBRÚAR 9. HVER VINNUR! GEGGJAÐIR AUKAVINNINGAR DVD myndir - Tölvuleikir Fullt af gosi og margt fleira! ÞÚ SENDIR SMS SKEYTIÐ ESL MCV Á NÚMERIÐ 1900. ÞÚ FÆRÐ SPURNINGU. ÞÚ SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA SMS SKEYTIÐ ESL A, B EÐA C Á NÚMERIÐ 1900. ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! MÖGNUÐ SPENNUM YND MEÐ JASON S TATHAM Í FANTAF ORMI! VINNINGAR VERÐA AFHENTIR Í ELKO LINDUM, KÓPAVOGI. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 149 KR/SMS-IÐ. ÞÚ FÆRÐ 5 MÍN TIL AÐ SVARA SPURNINGU. LEIK LÍKUR 4. MARS 2011 BÍÓMIÐI BÍÓMIÐI VILTU VINNA MIÐA?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.