Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 54
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR38
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Gloria. Bæði útgáfan sem
Laura Branigan syngur og hin
upprunalega með Umberto
Tozzi. Báðar útgáfurnar
fylla mig einhverri rosalegri
skemmtivon.“
Margrét Erla Maack, sjónvarpskona í
Kastljósinu.
„Ég vona að þjóðin sé sammála
mér um það að við séum búin að
hafa stillimyndina of lengi,“ segir
Sigrún Stefánsdóttir, dagskrár-
stjóri Ríkissjónvarpsins.
Þau tímamót verða um miðjan
mars að stillimyndin, sem fylgt
hefur sjónvarpsáhorfendum frá
árdögum Sjónvarpsins, hverfur af
skjánum. Stillimyndin hefur sem
kunnugt er blasað við sjónvarps-
áhorfendum þegar ekkert er á
dagskránni.
„Þetta atvikaðist þannig að í
jólafríinu fyrir norðan kveikti mað-
urinn minn, sem er norskur, á sjón-
varpinu og sagði mér að það væri
eitthvað bilað. Í kjölfarið fór ég að
skoða þetta og ræða hér innanhúss
og við uppgötvuðum að við værum
frekar sveitaleg, að þetta væri eins
og í austantjaldslöndunum. Í kjöl-
farið tókum við þá djörfu ákvörð-
un að jarða stillimyndina,“ segir
Sigrún í léttum dúr.
Sigrún segir að verið sé að vinna
að endanlegri útfærslu þess sem
taki við af stillimyndinni. Meðal
þess sem komi til greina séu dag-
skrárkynningar, tónlistarmynd-
bönd og ýmist kynningarefni og
bein útsending úr myndveri Rásar
2. „Svo erum við að skoða kostnað-
arhliðina á því að byrja útsending-
ar fyrr á daginn. Sá tími gæti til
dæmis nýst í endursýningar, sem
við eigum oft í vandræðum með,“
segir Sigrún. - hdm
Stillimyndin hverfur af skjánum
„Við fáum fjölmargar fyrirspurnir um
íslenska fjárhundinn – eiginlega of margar,
þar sem við teljum að hundurinn sé ekki fyrir
alla,“ segir Maggy Pease, forsvarsmaður
ræktunarsambands íslenska fjárhundsins í
Bandaríkjunum.
Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu
hefur íslenski fjárhundurinn verið frumsýnd-
ur á sýningum Kennel-klúbbsins, sem er sá
stærsti í Bandaríkjunum. Um 200 meðlimir
eru í ræktunarsambandi íslenska fjárhunds-
ins þar í landi og eftirspurnin hefur aukist
stöðugt.
„Áhuginn á hundinum er orðinn frekar mik-
ill eftir að hann var samþykktur í Kennel-
klúbbinn í júní á síðasta ári,“ segir Maggy.
„Áhuginn hefur aukist stöðugt. Við höfum
fengið fjölmargar fyrirspurnir um hundinn.“
Yfir 600 íslenskir fjárhundar eru á skrá
ræktunarsambandsins í Bandaríkjunum og
hundurinn er nú í 82. sæti af 162 yfir vin-
sælustu kyn Kennel-klúbbsins. „Alls kyns
fólk á íslenska fjárhundinn, en við viljum að
fólk sem skilur kynið eignist hundinn,“ segir
Maggy, spurð hvers konar fólk hafi áhuga á
íslenska fjárhundinum. „Það er mikil vinna
að eiga hundinn. Hann þarf mikla hreyfingu
og gott samband við eigendurna. Borgarlífið
á ekki við hann, þótt margir hafi náð góðum
árangri með hann í úthverfum. Okkur finnst
skemmtilegast að sjá hundinn á sveitabæjum
þar sem hann getur tekið þátt í daglegum
verkum eins og hann hefur gert á Íslandi í
gegnum tíðina.“ - afb
Vaxandi vinsældir fjárhundsins í Ameríku
VINSÆLL Íslenski fjárhundurinn er vinsæll í Bandaríkjunum.
BÆBÆ Stillimyndin hverfur af sjónvarpsskjáum landsmanna í næsta mánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta er ráðgjafastarf því auðvitað
hefur mikil hönnunarvinna átt sér
stað í þessu fyrirtæki enda verið
starfandi lengi,“ segir Steinunn Sig-
urðardóttir, einn fremsti fatahönn-
uður landsins. Hún hefur tekið að
sér ráðgjafahlutverk hjá íslenska
útivistarmerkinu Cintamani. Stein-
unn mun ásamt hönnunarteymi
hanna nýju línu sem kemur vænt-
anlega á markað á næsta ári. Jafn-
framt hefur Steinunn verið fyrir-
tækinu innan handar við opnun
nýrrar verslunar í Bankastræti þar
sem Sævar Karl var áður til húsa.
Hönnun Steinunnar hefur fengið
góðan hljómgrunn hér á landi sem
og erlendis. Hún hefur hannað
föt fyrir stór tískuhús á borð við
Calvin Klein og Gucci og því kann
það að koma einhverjum spánskt
fyrir sjónir að hún skuli hafa tekið
að sér ráðgjafastarf hjá útivistar-
fyrirtæki. „Fólk gerir sér kannski
ekki grein fyrir því að ég hef unnið
með mjög stórum fyrirtækjum þar
sem úlpur, peysur og annar útivist-
arfatnaður var hannaður. Ísland
er nefnilega ákjósanlegur staður
til að prófa úlpur því við fáum alls
konar veður á hverjum einasta degi.
Og ég vil líka meina að fatahönn-
uður eigi að vera óhræddur við að
prófa eitthvað nýtt,“ segir Stein-
unn. Hún bendir jafnframt á að
innan Cintamani séu margir mjög
góðir fatahönnuðir og að sér finnist
þarna vera kominn vísir að einu af
nokkrum tískuhúsum á Íslandi.
„Þarna er hönnun í hávegum höfð
og fyrirtækið hefur verið í margra
ára uppbyggingu.“
Steinunn segir hennar hlutverk
vera fyrst og fremst að færa fyr-
irtækið upp á alþjóðlegan stall og
hún er ákaflega spennt fyrir nýja
húsnæðinu í Bankastræti. „Þarna
eru arkitektar að vinna í alls konar
innréttingum. Sjálfri finnst mér
mjög áhugavert að skoða hvernig
fólk verslar og hvernig fólk upp-
lifir verslun, sem ég held að sé að
breytast á Íslandi. Og ekki skemmir
fyrir að þetta er í húsnæði Sævars,
mannsins sem á mikinn heiður af
því að byggja upp fagurfræði á
Íslandi.“ freyrgigja@frettabladid.is
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR: NAUÐSYNLEGT AÐ PRÓFA EITTHVAÐ NÝTT
Gengur til liðs við Cintamani
Í FLÍS OG ÚLPUR Steinunn Sigurðardóttir hefur tekið að sér ráðgjafahlutverk hjá Cintamani og verður fyrirtækinu innan handar.
Hún segist spennt fyrir nýja verkefninu, sem meðal annars felur í sér að undirbúa opnun stórverslunar í Bankastrætinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
krakkar@frettabladid.is
Krakkasíðan er
í helgarblaði
Fréttablaðsins
Ísbjörninn kemur.
Það tekur kannski smá tíma en
hann kemur, segir Jón Gnarr,
borgarstjóri og dýravinur.
Lau 26.2. Kl. 19:00 Aukas.
Mið 2.3. Kl. 19:00
Mið 9.3. Kl. 19:00
Lau 12.3. Kl. 19:00
Mið 16.3. Kl. 19:00
Fim 17.3. Kl. 19:00
Lau 26.3. Kl. 19:00
Fim 31.3. Kl. 19:00 Síð.sýn.
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Sun 6.3. Kl. 13:30
Sun 6.3. Kl. 15:00
Sun 13.3. Kl. 13:30
Sun 13.3. Kl. 15:00
Sun 20.3. Kl. 13:30
Sun 20.3. Kl. 15:00
Sun 27.3. Kl. 13:30
Sun 27.3. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 27.2. Kl. 14:00
Sun 27.2. Kl. 17:00
Sun 6.3. Kl. 14:00
Sun 6.3. Kl. 17:00
Sun 13.3. Kl. 14:00
Sun 13.3. Kl. 17:00
Sun 20.3. Kl. 14:00
Sun 20.3. Kl. 17:00
Sun 27.3. Kl. 14:00
Sun 27.3. Kl. 17:00
Sun 3.4. Kl. 14:00
Sun 3.4. Kl. 17:00
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Ö
Fös 4.3. Kl. 20:00 Frums.
Lau 5.3. Kl. 20:00 2. sýn
Fös 11.3. Kl. 20:00 3. sýn
Fös 18.3. Kl. 20:00 4. sýn
Lau 19.3. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 24.3. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 25.3. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 1.4. Kl. 20:00 Ö
Brák (Kúlan)
Fös 25.2. Kl. 20:00 Aukas.
Sun 27.2. Kl. 20:00
Fös 4.3. Kl. 20:00
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Lér konungur (Stóra sviðið)
Fös 25.2. Kl. 20:00 Síð.sýn.
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Fim 10.3. Kl. 20:00 Frums.
Fös 11.3. Kl. 20:00
Sun 13.3. Kl. 20:00
Lau 19.3. Kl. 20:00
Sun 20.3. Kl. 20:00
Fim 24.3. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 25.3. Kl. 20:00
Sun 27.3. Kl. 20:00
Mið 30.3. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
U
Ö
U
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö Ö
U
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
U
U Ö
Ö
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
ÍÞRÓTTIR