Fréttablaðið - 25.02.2011, Síða 20
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
69
Mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland
verður kynnt á opnum kynningar-
fundi í Tjarnarbíói í dag milli klukkan
12 og 13.15. Halla Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar,
segir mótun stefnu mikilvægt skref í
að íslenskar hönnunargreinar komist
á flug.
„Þetta er löngu tímabært og frábært
að við séum komin á þennan stað,“ segir
Halla en hún segir mikla vakningu hafa
orðið kringum hönnun og arkitektúr í
kjölfar þess að Hönnunarmiðstöð var
stofnuð árið 2008. Unnið hafi verið
að verkefninu Mótun hönnunarstefnu
síðastliðin tvö ár í samstarfi við bæði
iðnaðar- og menntamálaráðuneytið.
„Menn gefa íslenskri hönnun almennt
meiri gaum í dag, en til að greinin nái
virkilegu flugi þarf að leggja í mikla
vinnu. Mótun hönnunarstefnu er
gríðarlega mikilvægt skref í þá átt.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
hefur sýnt þessu sviði mikinn áhuga
og hefur skilning á að ekki síst núna
í þessu árferði leynast vaxtarbroddar
í íslenskri hönnun sem þarf að leggja
áherslu á.“
En hvað felst í mótun íslenskrar
hönnunarstefnu? „Verkefnið snýst um
stefnu stjórnvalda á sviði hönnunar
og arkitektúrs,“ útskýrir Halla „Það
snýst um nýsköpun og um uppbyggingu
atvinnugreinarinnar, það snýst um nám
og menntun hönnuða, vöruþróun og upp-
byggingu fyrirtækja á sviði hönnunar
og hvernig hönnuðir koma að alls konar
verkefnum, en við teljum aðferðafræði
hönnunar vannýtta í samfélaginu. Öll
verkefni þurfa hönnuð, ekki bara fyrir
eitthvert skraut í lokin heldur að hug-
mynda- og aðferðafræði hönnunar sé
nýtt gegnum allt vinnuferlið.“
Á fundinum í dag verða flutt fjög-
ur stutt erindi. Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra og Katrín Jakobs-
dóttir menntamálaráðherra segja
frá þætti ráðuneytanna í verkefninu,
sjálf mun Halla segja frá aðdraganda
verkefnisins og framkvæmd og eins
mun rektor Listaháskóla Íslands,
Hjálmar Ragnarsson, segja frá því sem
hönnunarstefnan mun koma til leiðar.
Á eftir verða opnar umræður fyrir
hönnuði og áhugafólk og eins verður
opin vefgátt á vef iðnaðarráðuneytisins
þar sem fólk getur komið með tillögur.
„Þegar stefna er mótuð þarf hún að
byggja á þeim raunveruleika sem við
lifum í og um hana þarf að ríkja breið
sátt.“ heida@frettabladid.is
KYNNINGARFUNDUR Í TJARNARBÍÓI: MÓTUN ÍSLENSKRAR HÖNNUNARSTEFNU
Mótun stefnu mikilvægt skref
ÞORSTEINN EGGERTSSON textahöfundur er 69 ára í dag.
„Við búum á nokkuð stórri en fámennri eyju norður í Atlantshafi. Það er þó ekki þar
með sagt að við þurfum að líta á okkur sem einhvers konar Bjart í Sumarhúsum.“
LÖNGU TÍMABÆRT Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar, er ein þeirra
fjögurra sem kynna verkefnið Mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland í Tjarnarbíói í hádeginu í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
Guðlaugur Þ.
Jóhannesson
rafvirkjameistari,
lést á líknardeild Landakotsspítala þann 21. febrúar.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þann 8. mars
kl. 13. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
María Másdóttir
Már Guðlaugsson Sigrún Sif Karlsdóttir
Kristófer Másson
Tryggvi Másson
Þórir Guðlaugsson
Andri Snær Þórisson
Sævar Þór Þórisson
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar hjartkæra
Vagns Kristjánssonar
Boðaþingi 7 Kóp,
áður Fellsmúla 14 Rvk.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hrafnistu,
Boðaþingi 7 og á Landspítalanum sem annaðist hann.
Svana H. Björnsdóttir
Kristján Vagnsson Hólmfríður Ingvarsdóttir
Björn Vagnsson
Stefán Vagnsson Guðveig S. Búadóttir
Hreinn Vagnsson Guðrún Sverrisdóttir
Birgir Vagnsson Kristín Kristinsdóttir
Gunnar Vagnsson Elísabet H. Sigurbjörnsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ragnar Pálsson
lést á heimili sínu Skarðshlíð 40f Akureyri mánudag-
inn 21. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Glerárkirkju
þriðjudaginn 1. mars kl. 11:00 þeim sem vildu minnast
hans er bent á heimahlynningu
www.heimahlynning.net
Katrín Ingvarsdóttir
Jóhanna Ragnarsdóttir Kristján Matthíasson
Albert Ragnarsson Bryndís Viðarsdóttir
Níels Ragnarsson Þórhildur Vilhjálmsdóttir
barnabörn og langafabörn
Elsku frænka okkar,
Ragna Sigurbjörg
Guðmundsdóttir
Norðdahl
hjúkrunarkona,
er látin. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 1. mars kl. 13.00.
Margrét Pálsdóttir
Norma Norðdahl
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og systir,
Kristín Jóna
Halldórsdóttir
Boðagranda 7, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi,
þriðjudaginn 22. febrúar.
Stefanía Guðrún Sæmundsdóttir Bragi Vilhjálmsson
Kristín Jóna Bragadóttir Vilborg Lilja Bragadóttir
Óskar Örn Bragason
Garðar Halldórsson Anna Þórunn
Halldórsdóttir
Helgi Þór Helgason Hanna Ragnheiður
Helgadóttir
Ástkær eiginmaðurinn minn, faðir
okkar, fósturfaðir, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir
Egill H. Hansen
sem lést á Hrafnistu 12. þessa mánaðar, verður jarð-
sunginn frá Garðakirkju mánudaginn 28. febrúar n.k.
klukkan 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð SÁÁ.
Fyrir hönd ástvina,
Glenda Bartido
Hafsteinn, Sigurjón, Egill og Gunnar Smári Egilssynir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Jóhannes Ingólfur
Hjálmarsson
lést sunnudaginn 20. febrúar. Útförin verður gerð frá
Glerárkirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 13.30.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir og fjölskyldur
Okkar ástkæri
Björn Bragi Sigurðsson
Breiðvangi 20, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi,
sunnudaginn 20. febrúar. Jarðarförin fer fram frá
Víðistaðakirkju, þriðjudaginn 1. mars kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á reikning 1101-
05-422793 kt. 201161-3479 til styrktar krabbameins-
deild Landspítalans 11E.
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Birna Rut Björnsdóttir Hermann Ármannsson
Sigurður Freyr Björnsson
Sigurður Birgir Magnússon Hjördís Hentze
Ólafur Sigurðsson Winnie Bertholdsen
Freyja M. Sigurðardóttir Helgi Jón Harðarson
Emil Ísar, Dagur Fannar, Toby Sól og Bjartur.