Fréttablaðið - 25.02.2011, Side 42
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR26 26
menning@frettabladid.is
Hugmyndin að tengja listir
og vísindi kviknaði hjá
Helgu Hansdóttur öldrunar-
lækni þegar hún var í námi.
Í Listasafni Íslands verður
á morgun opnuð sýning á
verki hennar og Magnúsar
Pálssonar myndlistar-
manns, Viðtöl við dauðann.
„Það var langur aðdragandi að
þessu verki,“ segir Helga Hans-
dóttir öldrunarlæknir og upplýsir
að þegar hún var að læra um eig-
indlegar rannsóknaraðferðir í sér-
námi sínu þá opnaðist fyrir henni
möguleikinn á að tengja saman
listir og vísindi.
„Rannsókn sem ég gerði síðar á
viðhorfum aldraðra til meðferðar
við lífslok minntu mig á verk sem
Magnús Pálsson myndlistarmað-
ur hafði gert og þannig fæddist
hugmyndin. Ég gerði síðar fram-
haldsrannsókn á þessu sama efni
og fékk þá leyfi hjá hluta hópsins
til þess að nota viðtölin sem ég tók
í verkið Viðtöl við dauðann,“ segir
Helga.
Verkið Viðtöl við dauðann er
innsetning þar sem gestir geta
hlustað á sex mismunandi frásagn-
ir fólks í hálfmyrkvuðum sal, en
frásagnirnar eru leiklesnar. Verk-
ið var upphaflega tengt samstarfs-
verkefninu Listir og vísindi og var
sýnt í Listasafni Reykjavíkur árið
2003. Það var sýnt í hálfmyrkv-
uðum sal með teppum, veggfóðri,
myndum og húsgögnum, en ljós
barst frá ómmynd af hjarta og
skjá sem sýndi öndunarhreyfingar
sjúklings. Magnús Pálsson hefur
unnið nýja gerð innsetningarinnar
fyrir aðalsal Listasafn Íslands sem
nú á verkið sem fjallar á „nærfær-
inn hátt um hinstu rök tilverunn-
ar,“ eins og segir í tilkynningu
Listasafns Íslands.
„Það er mikill heiður að fá að
sýna hér og gaman að verkið sé
sett upp á ný, það var bara sýnt
Sýningin Hljóðheimar
opnar einnig á Listasafni
Íslands á morgun. Hún
fjallar um myndlist sem
sprottin er að hljóði
eða tónlist. Hún saman-
stendur af innsetningum,
uppákomum, tónleikum,
gjörningum og fræðslu-
erindum sem dreifast yfir
tæplega þriggja mánaða
tímabil. Hvert verkið tekur
við af öðru og er það
gert til að hvert verk fyrir
sig njóti sín sem best og
að hægt sé að kynna til
sögunnar fleiri listamenn.
Flestir listamannanna
koma úr myndlistargeir-
anum en hafa á ferli
sínum farið mislangt inn
í heim hljóðs og tækni.
Þeir listamenn og hópar
sem koma við sögu eru:
Curver Thoroddsen, Darri
Lorenzen, Dodda Maggý,
Egill Sæbjörnsson, Gho-
stigital, Guðmundur
Vignir Karlsson, Halldór
Úlfarsson, Hekla Dögg
Jónsdóttir, Helgi Þórsson,
Hilmar Örn Hilmarsson,
Kira Kira, Ólafur og Libia,
Parabólur, Rafmagns-
sveitin, Ragnar Helgi
Ólafsson, S.L.Á.T.U.R.,
Sigtryggur Berg Sigmars-
son, Sigurður Guðjóns-
son, Skyr Lee Bob, Sólrún
Sumarliðadóttir, Steina.
Sýningarstjóri er
Sigríður Melrós Ólafs-
dóttir.
Öflug dagskrá verður
alla sýninguna, sem
stendur til 22. maí, ásamt
leiðsögn og fyrirlestrum
sem auglýst verður sér-
staklega og upplýsingar
um þá verða á vefsíðu
Listasafns Íslands (www.
listasafn.is).
HLJÓÐAHEIMAR LISTAMANNA
Rannsókn sem varð að listaverki
HELGA HANSDÓTTIR Helga leit við á Listasafni Íslands í gær þar sem verið var að setja upp verk hennar og Magnúsar Pálssonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bækur ★★★★
WikiLeaks – Stríðið gegn leyndarhyggju
David Leigh, Luke Harding og fleiri. Þýðing: Arnar Matthíasson
Veröld
Hulunni svipt af leyndarsamtökum
Julian Assange er taugaveiklaður frumkvöðull sem
þekkir ekki sinn vitjunartíma. Hann leitar allra leiða
til að stýra öllu sem varðar lekasíðuna WikiLeaks og
kann að kokka upp töfrandi sögur um sjálfan sig og
bandaríska njósnara. Þetta er kjarninn í WikiLeaks,
stríðið gegn leyndarhyggjunni, nýútkominni bók
blaðamanna breska dagblaðsins Guardian, sem
svipta hulunni af ævi Julian Assange og tilurð
WikiLeaks. Þar kemur öðru fremur í ljós að Ass-
ange gengur þvert á eigin prédikanir, starfsemi
WikiLeaks virðist fara fram á bak við luktar dyr og
inn fyrir þær stíga ekki óinnmúraðir.
Bókin er fyrirsjáanleg fyrir þá sem hafa fylgst
með WikiLeaks. Þar rekja höfundar ævi Assange
og tilurð lekasíðunnar. Bókahöfundar eyða eðli-
lega miklu púðri í frásögn af því þegar leyndarskjöl
bandaríska hersins um gang stríðsins í Afganistan og Írak voru afhjúpuð.
Þá fá sendiráðsskjölin sinn skerf. Vissulega býður efnið stöku sinnum upp á
smásmugulega nákvæmni enda unnu höfundarnir allir með WikiLeaks að
birtingu skjalanna á sínum tíma. Það kemur hins vegar ekki að sök enda
er fátítt að fá tækifæri til að gægjast inn í leyniheim hakkara og vinnulag á
erlendum fjölmiðlum.
Sjaldan rekur bækur úr þessum afmarkaða kima og af þessu líka kalíberi
á fjörur mínar á íslensku. Þá er ótalið hversu eldheit bókin er, sumt efni
hennar enn í fullum gangi, þar með taldar ákærur í nauðgunarmálum
Assange í Svíþjóð. Frásögnin er hröð líkt og í spennusögu, minnir í raun
fremur á þríleik Stiegs Larsson en langa grein eins og blaðamenn slysast
til að skrifa þegar kemur að ritun bóka um afmörkuð mál. Hröð frásögnin
kemur ekki niður á nákvæmni. Þvert á móti gæðir næmt auga höfunda fyrir
smáatriðum atburðarásina svo miklu lífi að erfitt er að leggja bókina frá sér.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Niðurstaða Spennandi og fræðandi bók um eitt heitasta mál samtímans,
þar sem hulunni er svipt af leyndinni á bak við WikiLeaks.
í örfáa daga síðast,“ segir Helga,
sem fékk mikil og góð viðbrögð
við verkinu á sínum tíma. Helga er
gift myndlistarmanninum Kristni
Guðbrandi Harðarsyni og segir
myndlist því hafa verið hluta af
lífi sínu lengi. Hún hefur haldið
áfram að tengja saman læknis-
fræði og list með rannsóknum
sínum.
Sýningin stendur yfir til 15.
maí. sigridur@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 25. febrúar 2011
➜ Tónleikar
12.15 Áshildur Haraldsdóttir flautu-
leikari og Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari flytja sónötur eftir Tak-
takishvili og Prokofiev í Menningar-
miðstöðinni í Gerðubergi kl. 12.15.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Jussanam da Silva heldur mót-
mælatónleika á Café Haiti kl. 21. Agnar
Már Magnússon leikur undir á píanó.
Aðgangseyrir er 1.000 kr.
22.00 Hljómsveitin Mystic Dragon
spilar á Sódómu kl. 22. Aðgangseyrir er
1000 kr. DJ Óli Dóri þeytir skífum að
tónleikum loknum.
22.00 Hjaltalín heldur tónleika á Café
Rósenberg kl. 22. Tónleikarnir eru upp-
hitun fyrir komandi Evrópuferð hljóm-
sveitarinnar. Miðar verða seldir við hurð.
23.00 Hjálmar spila á Faktorý kl. 23.
Miðasala hefst við hurð kl. 22. Aðgangs-
eyrir er kr. 1500.
➜ Tónlist
21.00 Tuttugasta og fjórða Grapevine
Grassroots kvöldið verður haldið í
kvöld á Hemma og Valda. Aðgangur er
ókeypis og hefst dagskrá kl. 21.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Fyrirtækjaþjónusta
HEITT & KALT | Kársnesbraut 112 | 200 Kópavogi | Sími: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður
matreiðslumeistari og er í dómnefnd
fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.
Hádegi
Heitt og Kalt býður fastan matseðil
sem birtur er viku í einu á netinu
á www.heittogkalt.is undir „Vikuseðill“.
Smurbrauð
Fundir, fyrirlestrar, kynningar o.fl.
Veislur
Árshátíðir, ráðstefnur, móttökur o.fl.
Allar upplýsingar á www.heittogkalt.is
Árlegur bókamarkaður Félags
íslenskra bókaútgefenda hefst í
Perlunni, Öskjuhlíð, í dag.
Bókaútgefendur hafa staðið
fyrir sams konar markaði frá
því á sjötta áratugnum, þar sem
eldri útgáfubækur eru boðnar á
afsláttarkjörum.
Á markaðnum má finna þús-
undir titla. Auk nýlegra bóka
má finna ýmsar gersemar.
Bækur sem taldar voru upp-
seldar fyrir löngu finnast innst
í geymslu eða að gamlir lagerar
horfinna forlaga eru dregnir
fram.
Markaðurinn stendur til 13.
mars 2011 og er opinn daglega
frá 10 til 18.
Bókamarkað-
ur í Perlunni
KÓMEDÍULEIKHÚS Í SLIPP Kómedíuleikhúsið á Ísafirði er væntanlegt til borgarinnar með nýjustu kómedíu sína í far-
teskinu. Um er að ræða kómískan gamanleik er nefnist Vestfirskur skáldskapur á 57. mín og vestfirsk tónlist á 27. mín. Gaman-
leikurinn verður sýndur í Slippsalnum í Reykjavík fimmtudaginn 3. mars og föstudaginn 4. mars. Báðar sýningarnar hefjast klukkan
20.00. Miðasala á sýningarnar er þegar hafin í síma 450-5565.