Barnablaðið - 01.02.1945, Qupperneq 3
BARNABLAÐIÐ
3
Myndastytta og kirkja John Bunyan í Bradford.
ford í Englandi, borginni, þar sem
Bunyan, höfundur bókarinnar,
dvaldi lengst af.
Bunyan var af lítilsmetinni
Zigaunaætt. Faðir lians var málm-
smiður, sem gerði við katla og
potta, en sonur hans fékk samt gott
uppeldi. En allt það góða, sem
hann lærði í æsku, týndist er hann
gerðist hermaður í liði Cromwells,
er liann barðist við Englandskon-
ung á 17. öldinni.
Bunyan kom þó ungur til aftur-
hvarfs og tók skírn, þess vegna var
hann mjög ofsóttur og um síður
settur í fangelsi, þar sem farið var
mjög illa með hann. Honum vai'
boðin lausn úr fangelsinu með því
skilyrði, að liann afneitaði þessari
heitn trú sinni á Erelsara sinn og
Drottinn. En hann kaus heldur
fangelsisvistina, og þar sat hann í
12 löng og erfið ár. Mest þjáðist
hann af því, að kona hans og dóttir
áttu við svo mikla erfiðleika að
stríða, af því að hann var í fang-
elsinu. Lítið eitt gat hann unnið
sér inn í fangelsinu og það sendi
hann mæðgunum til bjargar.
Það var einmitt í fangelsisvist-
inni, sem hann samdi þetta fræga
ritverk sitt: „För pílagrímsins",
sem er önnur mest útbreiddasta
bók heimsins, næst sjálfri Biblí-
unni. Þar lýsir hann á átakanlegan
hátt reynslu þess manns, sem er
fast ákveðinn í að fylgja Drottni
sínum allt til dauða, hvað sem það
kostar.
Það er einmitt þessi bók, sem