Barnablaðið - 01.02.1945, Síða 4
4
BARNABLAÐIÐ
Spyrjandi barnsaugu.
í dag var mér sögð svo aðlaðandi
og falleg saga, af litlum dreng, að
ég ákvað strax að skrifa hana niður
fyrir Barnablaðið.
Drengurinn er 6 ára og gengur í
Sunnudagaskólann í Betel í Vest-
mannaeyjum. J>ar er honum sagt
frá kærleika Krists til mannanna,
þýðingu þess að lesa Guðs Orð og
biðja. Fyrir löngu síðan hefir
drengurinn tekið upp þann sið,
ótilkvaddur af öðrum, að biðja fyr-
ir vissu fólki, sem hann, á barnsleg-
an hátt, heldur að líði ver en öðr-
um. Á kvöldin, þegar hann ætlar
að fara að hátta, tekur hann nafna-
listann fram, og talar um nöfn og
neyð þessa fólks við Drottinn, eins
og hann talaði við pabba sinn um
það.
Meðal annarra, sem hann hafði
á listanum, var gömul kona, sem
hann hafði heyrt talað um, að væri
mikið veik, og biði varla eftir öðru
en dauðanum. Um langan tíma var
Montgomery les og dáist að. Og
það er þessi bók, sem hefir hjálp-
að þúsundum manna til að halda
út, þar til ferðin þeirra hér í heimi
er á enda.
För pílagrímsins er til í íslenzkri
þýðingu eftir Eirík Magnússon í
Cambridge 1876. En því miður er
hún ófáanleg nú,
litli drengurinn búinn að biðja
Guð að miskunna sig yfir þessa
konu. Hann kallaði hana frænku
sína, enda var hann eitthvað skyld-
ur henni.
Eitt kvöld, þegar hann var að
biðja, lítur hann skyndilega spyrj-
andi augum á mömmu sína, upp
úr bæninni, og spyr rannsakandi:
Mamma, ætli ég þurfi nú að biðja
lengur fyrir frænku? Ætli Guð sé
ekki búinn að senda englana sína
að sækja hana?
Móðurinni þótti þetta einkenni-
leg spurning, og snortin af heilagri
alvöru, sem Iienni fannst lýsa frá
ásjónu barnsins, varð henni á, að
athuga hvað klukkan var og setti
það á sig. Daginn eftir fréttist að
gamla konan hefði dáið um það
bil, sem barnið leit upp frá bæn-
inni og varpaði spurningunni fram.
„En Jesús segir við þá: Já, hafið
þið aldrei lesið þetta: Af munni
barna og brjóstmylkinga hefir þú
tilbúið þér lof?“ Matt. 21, 16.
Á. E.
„Hvað sem þér biðjið um í mínu
nafni það mun ég gjöra, til þess að
Faðirinn verði vegsamlegur í Syn-
inum. Ef þér biðjið einhvers í
mínu nafni, mun ég gjöra það.“
(Jóh. 14 : 13-14).