Barnablaðið - 01.06.1958, Blaðsíða 2
oöt ou) gdttautí.
í síðasta tölublaði Barnablaðsins
voru birtar nokkrar tilvitnanir í
Biblíuna. — Spurningin var síðan
hver hefði sagt þessi orð og við
hvern eða hverja. .Réttar biblíutil-
vitnanir áttu að fylgja svörunum
og var svar því aðeins tekið gilt,
að réttar tilvitnanir fylgdu.
Við birtum nú svörin í réttri röð
ásamt tilvitnunum í Biblíuna.
1. Símon Pétur sagði þetta við
Jesúm. Jóh. 6;68.
2. Jósúa Núnsson sagði þetta við
ísraelslýð. Jósúa 24:15.
3. Stefán píslarvottur sagði þetta
við þá sem grýttu hann. Post.
7; 56
4. Akab konungur sagði þetta við
Elía. I. Kon. 18; 17
5. Jesús svarar Satan á þessa leið.
Matt. 4;4.
6. Agrippa konungur sagði þetta
við Pál postula. Post. 26;28.
7. Elísa sagði þetta við spámanna-
sveinanna. II. Kon. 2:3 og 5.
8. Jesús sagði þetta við fræðimenn-
ina og Faríseana. Jóh. 8;7.
9. Drottinn sagði þetta við Abra-
ham. I. Mós. 12; 1.
10. Móðir Jesús sagði þetta við
þiónana í brúðkaupinu í Kana.
Jóh. 2;5
Nokkrar ráðningar bárust og
kornu aðeins 7 þeirra til greina. —
Var síðan dregið um þessar 7 og
Ikomu upp þessi nöfn: Sússanna
Pálsdóttir, Tunguveg 20, Rvík,
Kornelíus Traustason, Vestmanna-
braut 69, Vestmannaeyjum og Guð-
ifinna Óskarsdóttir, Suðurgötu 68,
Siglufirði.
Þessi þrjú hafa þá unnið til
þeirra bókaverðlauna, sem heitið
var.
Að þessu sinni birtist engin get-
raun í blaðinu, en síðar munum
við koma með nokkrar eftir ástæð-
um.
Næsta blað verður afmælisblað
þar sem við minnumst 20 ára af-
mælis blaðsins.
Margir nýjir kaupendur hafa
bæzt við á þessu ári og viljum við
bjóða þá hjartanlega velkomna í
lesendahópinn.
34 BARNABLAÐIÐ