Barnablaðið - 01.06.1958, Blaðsíða 3
!?eg'ar litli bróðir t#ndli^t0
Ahl4+-rand ■ {T3
Eftir Gretu Otterdahl-Waern.
— Góða Lísa mín, sæktu mjólk-
ina fyrir mig sagði, mamma.
— Já, það skal ég gera, sagði Lísa,
sem alltaf var svo viljug. Hún var
einmitt núna að gæta litla bróður
síns, en henni fannst gott að mega
fara svolítið frá litla stund.
— Komdu þá fyrst með Svenna
inn í eldhús til mín, kallaði mamma
til hennar. Ég þori ekki að skilja
hann eftir einan úti í garði. Lísa
tók í hendina á litla bróður og
leiddi hann með sér inn í eldhús.
Hún sá ekki mömmu þar en líklega
hafði hún gengið inn í búr eða
stofu.
Lísa lokaði nú dyrunum og hljóp
sína leið með mjólkurflöskuna.
Hún heyrði litla bróður gráta inni
en mamma yrði að hugga hann,
þegar hún kæmi.
Litli bróðir sat á eldhúsgólfinu
og grét. Engin mamma var sjáan-
leg og Lísa var farin frá honum.
Samt fannst honum hann heyra
rödd mömmu úr fjarlægð. En hann
gat ekki heyrt hvaðan hún kom.
En sannleikurinn var sá að síminn
hafði hringt inni á skrifstofunni
hans pabba og þar sat mamma og
talaði og talaði.
Þegar mamma kom aftur út í
eldhúsið var Svenni farinn. Hún
hafði þó heyrt hann gráta þar en
nú var allt hljótt og dyrnar stóðu
opnar.
Hafði Lísa ef til vill tekið hann
með sér eða hafði hann farið eitt-
BARNABLAÐIÐ 35