Barnablaðið - 01.06.1958, Page 6

Barnablaðið - 01.06.1958, Page 6
Loks 'kom hann hlaupandi með rauðan vettling milli tannanna. Það var vettlingurinn hans Svenna. — Hvað er þetta? sagði pabbi. Ætli hann sé hérna einhvers stað- ar? Hann leit yfir akurinn, þar sem bylgjandi öxin blöktu fyrir andvaranum. Ef að Svenni hefði farið inn á akurinn mundi hann ekki geta ratað út af honum aftur. Langt í burtu sáu þau Andrés á ferð með sláttuvélina. Kannski Svenni litli hafi ætlað að fara til hans.. . . ? Það var eins og Lísu rynni kalt vatn milli skins og hör- unds. Ef Svenni hefði nú sofnað inni á akrinum og svo kæmi Andrés með sláttuvélina.. .. — Góði Guð, hjálpaðu okkur, bað hún og pabbi tók undir bæn hennar. Rolli tók viðbragð og hentist inn á milli axanna á akrinum og svo var hann hor^inn. — Sjáðu, pabbi, sjáðu, kallaði Lísa upp yfir sig. Langt burtu á akrinum sáu þau einhverja ein- kennilega hreyfingu. Litlu síðar sáu þau nokkuð enn skrítnara. Það voru þeir Rolli og Svenni. Rolli hélt föstu taki í jakkann hans Svenna og dró hann á fullri ferð út af akr- inum, en Svenni virtist skemmta sér konunglega. — Litli anginn þinn. Hvaða vandræði varstu nú kominn í, sagði pabbi um leið og hann lyfti Svenna upp í fang sér. Þá koin mamma og Jörgen líka, rólegur að venju. Hér s.jáið þið mynd af tveimur hestnm. I*eir eru auðsjáanlega á ferð um grýttar slóð- ir, en hafa nú komið að líek, þar sem þeir geta svalað þorstanum. Það er nauðsynlegt að sýna dýrunum nærgætni op fara vel með þau. l*au eru vinir okkar og okkur upphaflcga gefin af Guði til hjálpar í lífsbaráttunni. — Þarna sérðu að hann er fund- inn, sagði hann um leið og hann gekk framhjá Lísu. Hann var að flýta sér í vinnuna. Lísa svaraði engu. Hún var að þakka Guði fyrir að hann varðveitti litla bróður. Þau fylgdust öll að lieim. Pabbi bar litla bróður á handleggnum, en Rolli hoppaði kátur allt í kring um þau og lét í ljós gleði sína með því að reka upp gelt við og við. 38 BARNABLAÐIÐ

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.