Barnablaðið - 01.06.1958, Page 11
fínu afmælisgjöf, sem stóð á eldhús-
borðinu.
— Hákon hefur gert þetta. Hann
á ekki sinn líka, heyrði hann
mömmu segja.
Hann reis upp úr rúminu. Þetta
var nú verra en hann átti von á.
Nú höfðu þau auðvitað fundið
kassaómyndina á verkstæðinu og
gerðu nú svo mikið grín að henni.
Ó, hvað hann varð skömmustuleg-
ur. Hugsa sér að frænka fékk að
sjá þetta líka! Hákon gleymdi alveg
að hann var bara í náttfötunum.
Hann hljóp fram úr rúminu og
staðnæmdist í eldhúsdyrunum.
— Þið eigið ekki að vera að
horfa á þennan ljóta kassa, ég var
hættur við hann.. . .!
Lengra komst hann ekki því að
nú sá hann undurfagran sauma-
kassa úr fínasta efni. Hann stóð á
eldhúsborðinu, gljáandi og fínn svo
að maður gat speglað sig í honum.
— Þakka þér fyrir, sagði mamma.
Frænka vill gjarnan skipta við mig
en það fær liún ekki. Þessi er mik-
ið fínni en hennar.
Hákon heyrði þetta.ekki. Hann
varð að fara höndum um þennan
fína saumakassa. Hann lyfti lokinu,
en rak upp undrunaróp.
Inni í kassanum þekkti hann sitt
eigið verk. Pabbi hafði notað fjal-
irnar hans til að hólfa kassann
sundur. Það fór svo vel svoleiðis.
Misheppnaða verkið hans Hákons
var orðið virkilega fagurt.
Nú er Hákon orðinn stór og er
nú duglegur húsgagnasmiður eins
og pabbi hans. En aldrei gleymir
hann fyrsta saumakassanum sem
hann smíðaði. Hann varð honum
til mikils lærdóms. Þegar honum
finnst hann ætla að þreytast í starfi
sínu fyrir málefni Guðs, hugsar
hann um saumakassann.
Hann veit að Guð gerir eitthvað
þessu líkt fyrir börnin sín. Hann
hlær ekki að ófullkomleika okkar,
heldur helgar hann starf okkar. —
Það veika verk, sem er framkomið
vegna kærleika, gerir Guð stórt og
fagurt. Það mun mæta okkur seinna
í himninum. Þá hefur okkar
himneski meistari breytt því í feg-
urstu gjöf Guði til handa.
BARNABLAÐIÐ
kemur út fimm sinnum á ári, og verð-
ur 10 tölublöS. Árgangurinn kostar kr.
15.00, og greiðist 1. febrúar. I lausa-
sölu kostar blaðið 3 krónur eintakið.
RITSTJÓRN:
Ásm. Eiríksson, Eric Ericsson
og Tryggvi Eiríksson.
ÚTGEFANDl:
Fíladeljía, Hverfisgötu 44, Reykjavík.
Sími 16856.
Borgarprent. Reykjavik. — 1958
BARNABLAÐIÐ 43