Barnablaðið - 01.02.1979, Blaðsíða 18
JESÚS HJÁLPAÐI
LITLA DRENGNUM
Biblían segir okkur frá litlum dreng, sem var mjög
veikur. Hann var með hita og honum var líka illt í
höfðinu. Mömmu hans og pabba þótti mjög vænt um
hann og þau gerðu allt sem þau gátu til þess að hann
yrði frískur aftur. En honum batnaði samt ekki.
Einn morguninn sagði pabbinn við litla drenginn
sinn:
— Nú ætla ég að fara til Jesú. Ég ætla að biðja hann
að koma og lækna litla drenginn okkar.
Pabbinn gekk eins hratt og hann gat.
Þegar hann kom í þorpið, þar sem Jesús var, spurði
hann:
— Hvar er Jesús? Ég verð að tala við hann núna
strax.
Svo leitaði hann þangað til hann fann Jesúm.
— Litli drengurinn minn er svo veikur, sagði pabb-
inn við Jesúm. —Viltu vera svo góður að koma fljótt
og lækna hann?
Jesús vildi gjarnan hjálpa. En hann fór ekki með
pabbanum.
— Drengurinn þinn er orðinn frískur! sagði Jesús.
— Honum líður vel núna!
Pabbinn trúði því sem Jesús sagði og lagði af stað
heim til sín. Þegar hann var alveg að koma heim,
komu tveir af þjónum hans hlaupandi á móti honum
og kölluðu:
— Drengurinn þinn er orðinn frískur! Honum er
alveg batnað!
Hugsaðu þér bara hvað pabbinn varð glaður! Hann
flýtti sér inn í húsið, þar sem drengurinn og mamma
biðu. Það var alveg satt, sem Jesús sagði. Drengurinn
var oröinn frískur.
Nú voru allir glaðir heima. Jesús hafði læknað
drenginn. Jesús hjálpaði þeim af því að hann elskaði
þau. Þau elskuðu öll Jesúm og trúðu að hann væri
sonurGuðs. þ. Gullý.