Barnablaðið - 01.04.1989, Side 7
BARNABLADID 7
Þegar Jesús var á leiðinni til Jerúsalem, kom hann við í
borg sem heitir Jeríkó. Þar bjó maður sem hét Sakkeus.
Sakkeus var háttsettur tollheimtumaður. Hann lét fólk
borga háa skatta og með því að svindla dálítið, og taka af
peningunum sjálfur, varð hann mjög rfkur. Allir fyrirlitu
hann, afþví að hann var svindlari.
Þegar Jesús var á ferð,
hópaðist fjöldi fólks í kringum
hann. Allir vildu sjá hann.
Það gerðist líka þegar Jesús
átti leið um Jeríkó.
Allir íbúar Jeríkóborgar
voru komnir út á aðalgötuna
og reyndu að sjá Jesú.
Sakkeus fór líka
út á götu. Hann lang-
aði svo óskaplega
mikið til að sjá Jesú.
En vegna þess hve
smávaxinn Sakkeus
var, gat hann ekki
séð Jesú fyrir mann-
fjöldanum. Þá fékk
hann góða hug-
mynd. Hann klifraði
uppíhátttré og sá þá
vel yfir allt. Þarna sat
hann og beið eftir að
Jesús kæmi. Loksins
kom hann gangandi.
Sakkeus gat vel
séð Jesú úr trénu.
Þegar Jesú gekk
framhjá trénu, sá
hann Sakkeus og
hrópaði til hans:
— Sakkeus, flýttu
þér! Komdu niður! Ég
ætla að borða hádegisverð
með þér í húsi þínu.
Sakkeus klifraði niður.
Glaður og undrandi bauð
hann Jesú heim með sér. En
fólkið sem sá þetta varð ekki
síður undrandi.
— Hvernig stendur á því
að Jesú vill heimsækja þenn-
an svindlara!
— Hvernig dettur honum í
hug að tala við hann!
Þegar Jesús og Sakkeus
komu heim töluðu þeir lengi
saman. Sakkeus
ákvað að bæta sig og
hætta að svindla á
fólkinu. Hann ákvað
meira að segja að
borga fólkinu helmingi
meiri peninga til baka
en hann hafði tekið af
því.
Þegar Jesús sá að
Sakkeus ætlaði að
bæta sig, fyrirgaf hann
Sakkeusi allar synd-
irnar.
Fræðimönnunum
og faríseunum fannst
Jesús hafa gert rangt
með því að heimsækja
Sakkeus. Jesús út-
skýrði þá fyrir þeim að
hann væri einmitt
kominn í heiminn til
þess að frelsa synd-
uga menn og fyrirgefa
þeim.
MAÐURINN TRÉNU