Barnablaðið - 01.02.1991, Blaðsíða 5
Á einum stað er búið að tildra
upp nokkrum spýtum og refta yfir
með gömlu gólfteppi, plastyfir-
breiðslu og pappaspjaldi, það sér
víða í gegnum „kofann". Strákur, á
að giska átta ára, gægist út um eitt
gatið. Hér á hann heima — aleinn.
Fær hann að borða á morgun?
Verður honum kalt í nótt? Á hann
einhverja framtíð?
Norræna barnahjálpin heitir fé-
lagsskapur sem hefur helgað sig
hjálparstarfi við börn á Filippseyj-
um. Starfsmenn barnahjálparinn-
ar leggja áherslu á að hjálpa fjöl-
skyldunum í heild, svo börnin geti
verið hjá foreldrum sínum.
Ein eyjan í Filippseyjaklasanum
heitir Leyte. Á hverju ári koma þar
kröftugir fellibyljir og valda því að
margir missa heimili sín og sumir
farast. Á þessari eyju eru um 100
000 heimilislausir, en það eru ál-
íka margir og búa í Reykjavíkur-
borg og Kópavogsbæ samanlagt.
Norræna barnahjálpin hefur átt
samvinnu við yfirvöld á eynni um
nýja gerð íbúðarhúsa, sem eiga
að standast kröftuga fellibylji. í
hverju húsi er eitt svefnherbergi
og dagstofa, eldhús og vatnssal-
erni. Húsinu fylgir svolítill lands-
skiki, þar sem fá má fjórar upp-
skerur á ári af ýmsum matjurtum.
Hvert hús kostar 65 000 íslenskar
krónur.
Nú langar okkur að hvetja les-
endur Barnablaðis til að safna fyrir
einu húsi og gefa fátækri fjöl-
skyldu á Filippseyjum.
Við gerum að tillögu okkar að
þið safnið tómum drykkjarumbúð-
um og leggið andvirði þeirra í söfn-
unina. Við höfum opnað sérstak-
an bankareikning í þessu skyni
hann er númer 116326-898 í Spar-
isjóði Reykjavíkur og nágrennis,
Hátúni 2 a, 105 Reykjavík, reikn-
ingshafi er Barnablaðið/Fíladelfía
Forlag, kt. 490383-0198.
Húsið verður merkt og kallað
Barnablaðshúsið. Við fáum
senda mynd af því og getum birt
hana fljótlega þegar húsið verður
tilbúið.
BARNABLADID 5
Hús í byggingu.