Barnablaðið - 01.02.1991, Qupperneq 10

Barnablaðið - 01.02.1991, Qupperneq 10
10 BARNABLAÐID HJÁLPSEMI Okkur finnst alltaf gott að geta fengið hjálp, þegar við þurfum á að halda. En erum við hjálpsöm við aðra? Er fólk almennt hjálpsamt? Hvað er hjálpsemi? Við hittum þessa hressu krakka á förnum vegi og ræddum við þau um hjálpsemina. Tinna Guðmundsdóttir, 9 ára, býr í Osló. Sá sem hjálpar öðrum, sem þurfa á hjálp að halda, er hjálpsamur. Ég er stundum hjálpsöm. Stundum helli ég upp á könnuna fyrir mömmu. Ef ég sé einhvern grátandi reyni ég að hugga hann. Mér finnst krakkar yfirleitt ekki hjálpsamir, en þeir hjálpa þó til ef þeir eru beðnir um það. Fólk sem er hjálpsamt er gott og skemmtilegt. Vinir mínir eru allir hjálpsamir, annars myndi ég ekki hafa valið þá sem vini. Kári Einarsson, 13 ára, nemandi í Hagaskóla. Ég þekki engan sem er mjög hjálpsamur. Fólk er yfirleitt ekkert mjög hjálpsamt. Ég hef oft lent í því að fólk nenni ekki að hjálpa til. Ég veit ekki hvort ég er hjálpsamur. Þegar ég er hjálpsamur, hjálpa ég oftast til við húsverkin, vaska upp og tek til. Arna Lisbet Þorgeirsdóttir, 11 ára, nemandi í Ölduselsskóla. Að hjálpa fólki og taka tillit til þess þegar það er í vandræðum er hjálpsemi. Ég er stundum hjálp- söm, hjálpa mömmu með heimilisstörfin. Ég hugsa að hún sé glöð og fegin þegar ég hjálpa henni. Margir eru líka hjálpsamir við mig þegar ég þarf á því að halda. Mér finnst fólk yfirleitt vera hjálpsamt. Ég ætla að vona að ég haldi áfram að vera hjálp- söm. Gústaf B. Einarsson, 12 ára, nemandi í Haga- skóla. Hjálpsemi er þegar maður hjálpar einhverjum sem þarf á hjálp að halda. Ég er stundum hjálp- samur. Þá hjálpa ég til við húsverkin. Fólk er mis- jafnlega hjálpsamt. Einn vinur minn er til dæmis ótrúlega hjálpsamur. Hann hjálpar til dæmis oft litlum krökkum sem stórir krakkar eru að hrekkja. Hverjum ert þú sammála? • Hverjum hjálpar þú? • Þekkir þú hjálpsamt fólk? • Hverjum hjálpar það?

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.