Barnablaðið - 01.02.1991, Síða 15

Barnablaðið - 01.02.1991, Síða 15
BARNABLAÐIÐ 15 PENNAVINIR Kæra Barnablaö Ég óska eftir pennavinum á aldrinum 10 - 13 ára. Ég er sjálf 11 ára. Áhugamál: hestar og fleiri dýr. Margrét Júlíusdóttir Borgarlandi, Helgafellssveit 340 Stykkishólmur Kæra Barnablaö Ég óska eftir pennavinum á aldrinum 9 - 11 ára. Bæði stelpur og stráka. Ég er sjálf 10 ára. Áhugamál: Strákar, íþróttir, hestar, hundar, kettir og skólinn. Svara öllum bréfum. Ester Helga Sæmundsdóttir Faxastíg 8 B 900 Vestmannaeyjum Hæ, hæ Barnablaö Ég er aö óska eftir pennavinum á aldrin- um 13 -15 ára bæöi strákum og stelpum (aðalega strákum). Áhugamál mín eru Skynsamur pabbi! Sunnudagaskólakennarinn spuröi Óla hvers vegna hann kæmi of seint í sunnudagaskólann. — Mig langaði svo að fara að veiða, sagði Óli, — en pabbi leyfði mér það ekki. — Þú ert heppinn að eiga svona skynsaman pabba, sagði kennarinn. — Og sagði pabbi þinn, af hverju þú mættir ekki fara að veiða á sunnu- degi? — Já, hannsagðistekkieiganógu marga maðka handa okkur báðum, svaraði Óli. Ertil kál? Dag nokkurn skoppaði héri inn í grænmetisbúðina. — Eigið þið kál, spurði hérinn. — Nei, var svarað bak við búðar- borðið. Daginn eftir kom hérinn aftur. — Er til kál, spurði hann enn á ný. Þetta endurtók sig í heila viku. Loks varð afgreiðslumaðurinn svo ösku- reiður að hann hrópaði: — Komdu einu sinni enn og ég negli þig á vegginn! Daginn eftir kom hérinn hoppandi í búðina. hestar, skautar og aö skrifa bréf. Sendið mynd meö ef hægt er. Ef einhverjir vilja þá er ég aö safna servíettum og öllu með hljómsveitinni Stjórninni. Ég get skipt á plakötum meö Söndru, Sálinni hans Jóns míns, Stephen, A.J. Duffy, Hólmfríöi Karlsdóttur, Einari Þorvarðarsyni, Önnu Margréti og Hljómsveitinni Strax. (Ég á bara eitt plakat af hverju). Henný Rósa Aðalsteinsdóttir Klausturseli, Jökuldal 707 Egilsstaðir Kæra Henný Rósa, þakka þér kærlega fyrir bréfið og mynd- ina sem þú teiknaðir. Þarna er ég lítill og blaut bleia á gólfinu. Það er alveg sjálfsagt að hafa dálk í blaðinu fyrir þá sem eru að safna plaköt- um, servíettum og öllu mögulegu. Þinn vinur, Lambi. — Eigið þið nagla? — Nei, var kallað frá afgreiðslu- borðinu. — Þið eigið þá kannski kál, spurði hérinn. Flugumsjón Flugturninn: — Vinsamlegast gefið upp staðsetningu ykkar. Hafnfirski flugstjórinn: — Égerflug- stjórinn og sit fremst í flugvélinni, vinstra megin. Bara æfing Tveir fallhlífarstökkvarar úr ónefnd- um firði voru á æfingu. Fyrst stökk annar út, taldi upp að tíu og togaði í snúruna. Svo hoppaði hinn út, taldi upp að tíu og togaði í snúruna, en ekkert gerðist. Fallhlífin var biluð. Þegar fallhlífarstökkvarinn þeyttist framhjá félaga sínum á hraðri niður- leið kallaði hann: — Það er eins gott að þetta er bara æfing! Mörg fótbrot — Mér er sama hvort þú trúir því, en ég hef fótbrotnað á sex stöðum, sagði skíðakappinn. — Má ég sjá, hvar, sagði aðdá- andinn með stjörnur í augunum. — í Bláfjöllum, Hlíðarfjalli, Kerl- ingafjöllum, Jósefsdal, Hveradölum, Seljalandsdal og á Siglufirði. Háskalegur félagsskapur Auglýsing í sportveiðiblaði: Gangið í skotfélagið og hittið góða vini! Þreytandi innivera Kengúrumamma: — Úff, ég vona að það verði gott veður í dag. Það er svo þreytandi þegar ungarnir leika sér inni. Málaraneminn — Þú getur byrjað á því að mála þennan glugga, sagði málarameistar- inn við lærlinginn. Lærlingurinn lét ekki segja sér það tvisvar og byrjaði af kappi. Eftir svo- litla stund kallaði hann: — Meistari, ég er búinn með gluggann. Á ég líka að mála karminn? Gáfaður hundur Siggi: — Ég á sko aldeilis gáfaðan hund! Elli: — Hvernig þá? Siggi: — Ég spurði hann hvað tveir mínus tveir væri mikið, og hann sagði ekki neitt! Engan dónaskap Læknirinn: — Rektu út úr þér tung- una. Nonni: — Nei,éggerði þaðígærog fékk sko aldeilis á baukinn. Börn prófessorsins — Afsakið herra prófessor, en eig- ið þér nokkur börn? — Já, tvær dætur, hvort tveggja stúlkur... Símaraunir Síminn hringir: — Er þetta í Vesturbrún 96? — Nei, þetta er í Austurbrún 96. — Ó, afsakið, ég ernefnilegaalltaf áttavilltur í Reykjavík. Enn hringir síminn: — Get ég fengið að tala við son Sigurðar frá Hvoli? — Ja, við erum nú fjórir bræðurnir, hvern viltu? — Þennan, sem á systur á Akra- nesi.

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.