Barnablaðið - 01.02.1991, Síða 18

Barnablaðið - 01.02.1991, Síða 18
Framhaldssagan: STÓRVEIÐI VIÐ ÍSHAFIÐ eftir Tapani Sopanen Fjórir finnskir strákar fara með frænda sínum í frí tii Norður-Noregs. Þeir lenda í ýmsum ævintýrum. Meðal annars fara þeir í fjallgöngu. Einn félaganna, Saku, lendir óvænt í höndum fíkniefnasmyglara og verður fangi þeirra. Félagar hans hlaupa til byggða og tilkynna lögreglunni hvarf Saku. Einn smyglarinn drukkn- ar í straumhörðu fljóti, og bófaflokkurinn felur sig, með Saku, í afskekktum fjallakofa. 14. Reikningsskil Leitarmenn eru komnir fyrir ut- an felustaðinn og skipa smyglur- unum að koma út, einn smyglar- inn er vopnaður og búinn að skjóta á lögregluna... Allt varð hljótt fyrir utan. — Bíddu aðeins, kallaði Unski skelfdur. Litli maðurinn flissaði hæðnis- lega og svaraði digrum rómi: — Kastið frá ykkur vopnunum og komið með hendurnar á höfð- inu. Þá lofa ég því að skaða hvorki ykkur, né drenginn. Aftur lagðist þögnin yfir. Litli mað- urinn var orðinn taugaóstyrkur. — Heyrið þiðekkitil mín, spurði hann reiðilega. — Ég tel upp að þremur og þá... — Nei, nei... ekki gera neitt, hrópaði Hárski og kastaði sér á milli stjórans og Saku. Þetta kom litla manninum svo á óvart að hann áttaði sig ekki fyrr en Saku var stokkinn út úr kofan- um. Um leið stukku inn tveir lög- regluþjónar og miðuðu skamm- byssum sínum að litla manninum. Hann ætlaði að hleypa af, en áður en það tækist höfðu lögreglu- mennirnir yfirbugað hann og af- vopnað. Litli maðurinn sparkaði og gargaði, en hann hefði getað sparað sér þá áreynslu. Tryggvi og Unski komu líka inn. Fyrir utan kofann stóð Saku um- kringdur félögum sínum, sem klöppuðu honum á axlirnar og slógu í bakið á honum. — Nei, en hvað þú hefur staðið þig vel! Hvernig hefur þú haft það Saku. Hann fann að grátkökkurinn sat fastur í hálsinum. Þegar drengirnir fylgdu Saku inn í kofann aftur var búið að handjárna litla manninn. Hárski lá kylliflatur á gólfinu og 'Jl' ll 7 IJ^ snökti. Saku reyndi að hugga hann. Það var komið að reikningsskil- um og Hárski hafði ákeðið að snúa bakinu við sínu gamla líferni. Héðan í frá skyldi hann taka upp nýja háttu. Litli maðurinn sat á kassa og var eldrauður í framan. Það leit út fyrir að hann spryngi í loft upp þá og þegar. Saku rakti alla atburðarásina og sýndi felustaðinn, þar sem fíkni- efnin voru geymd. — Ég veit ekki hvaðan þau koma. En ég veit að þeir áttu að skila þeim á ákveðnum stað eftir nokkra daga.

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.