Barnablaðið - 01.02.1991, Síða 19

Barnablaðið - 01.02.1991, Síða 19
— Var ekki einum manni fleira, spuröi lögreglumaður. — Jú, þaö er rétt. Hann er úti í skýlinu. Hann datt í fossinn og drukknaði. Annar lögregluþjónninn tók upp talstööina og fékk samband viö lögreglustöðina. Hann gaf skýrslu um atburðina og baö um liðsauka. — Fyrirgeföu Saku, sagöi Unski, — en þaö er eins og þið tveir séuö góðir vinir. Hann benti á Hárski. Saku brosti ísmeygilega og blikkaði Hárski. — Vissulega, viö erum báðir ágætis náungar, sagöi Saku. Svo sagði hann alla söguna um flóttaáætlunina og iðrun Hárskis. Litli maöurinn afmyndaðist af bræöi, þegar hann heyrði þetta. — Jæja, er þaö svona sem þú ferð á bakvið mig, rumdi í honum. Svo skyrpti hann á Hárski, sem bara brosti. — Slappaðu nú af lilli minn! Ég hef hugsað mér að byrja nýtt líf! — Ha! Nýtt líf? Kálfurinn þinn! Reyndu ekki að verða neitt annað en þú ert. Nei, þú færð að sætta þig við fangelsi það sem þú átt ólifað, sagði litli maðurinn hæðnislega. — Það verður þá að hafa það, en ég vil að minnsta kosti gera grein fyrir verkum mínum, sagði Hárski varlega. Það var kominn tími til að yfir- gefa kofann. Annar lögreglu- þjónninn varð eftir til að gæta kof- ans og bíða eftir liðsstyrknum. Þeir urðu fyrst og fremst að koma líki Rollos og fíkniefnunum til byggða. Það var myrkur og lugtir lög- reglunnar og vasaljós Tryggva lýstu upp gangstíginn. Strákarnir spjölluðu og gerðu að gamni sínu á göngunni. Þeir glöddust allir yfir að hafa fundið Saku á lífi. Það var bara litli maðurinn sem gekk niðurlútur. Hann andvarpaði djúpt við og við. Næstu daga var sólskin og heiður himinn. Varangursfjörður blikaði í öllum regnbogans litum og blár himininn var bjartur. Strákarnir sváfu lengi. Full- orðna fólkið vildi ekki vekja þá því þeir voru þreyttir eftir ferðalagið ofan úr kofanum um nóttina. En sólargeislarnir létu þá ekki í friði. Pena vaknaði fyrstur og reyndi að vekja félaga sína. — Á fætur letibikkjurnar ykkar! Þú líka Saku. Við eigum frí og sólin skín. Strákarnir geispuðu og teygðu úr sér upp í sólarljósið. — Áin bíður strákar! Nú kom Unski inn í herbergið. — Jæja, svo fjallahetjurnar eru vaknaðar. Komið og fáið ykkur morgunmat. Svo förum við í bæinn. Yfirheyrslur hjá lög- reglunni og margt fleira. Þegar það er búið getum við farið úí á fjörðinn og út á haf. Yfirheyrslurnar yfir Saku gengu greiðlega. Hann greindi frá öllu sem hann vissi og svaraði öllum spurningum skilmerkilega. Tryggvi hafði næstum ekki við að snúa spurningunum á finnsku áður en Saku svaraði. Þegar yfirheyrslunni lauk vildi Saku fá að hitta Hárski. Lögreglu- þjónninn áttaði sig ekki á því um hvern var að ræða, en þegar Saku útskýrði málið rann upp Ijós fyrir þeim. — Já, já, hann er ekki langt undan. Við erum búnir að yfir- heyra hann og hann segist hafa byrjað nýtt líf, sagði lögregluþjónn- inn og brosti. — Þú hefur aldeilis haft áhrif á hann, ungi maður! Saku bukkaði sig og beygði í þakklætisskyni og fylgdi með inn í móttökuherbergi. Unski og Tryggvi biðu fyrir utan. Saku átti bágt með að þekkja Hárski aftur. Tjásulegur og illa til hafður gaurinn hafði breyst á einni nóttu í myndarlegan og nýklipptan herramann. Hárið var vandlega greitt og hann hafði yngst um mörg ár. — Halló Saku, gott að þú komst! — Hvernig líður þér, spurði Saku. BARNABLAÐIÐ 19 — Það var varla að ég þekkti þig aftur. — Þakka þér fyrir, mér líður ágætlega. Ég þarf ekki að kvarta yfir meðferðinni. — Finnst þér ekki skrýtið að þetta skuli allt vera yfirstaðið, spurði Saku. — Jú, svo sannarlega. Þú mátt vita að ég hef hugsað vandlega um allt sem gerðist, og það sem þú sagðir við mig. Ég er alveg ákeðinn. Jesús fær það sem er eftir af mér! — Frábært, sagði Saku. — Þú veist að Jesús elskar þig. Hárski leit rannsakandi á hann. — Ertu viss um það? — Alveg viss. — Já, en ég hef nú ekki verið nein fyrirmynd. — Það skiptir ekki máli, því Jesús er góður. — Ég vildi óska þess að ég fengi að verða aftur barn, eins og þegar mamma lifði og söng fyrir mig. Getur þú ekki sungið aftur fyrir mig? Saku gekk að dyrunum. — Komiðþiðstrákar. Hárskivill að við syngjum fyrir hann. Lögregluþjónarnir litu undrandi hver á annan þegar strákarnir gengu allir inn í litla herbergið. Tryggvi og Unski stóðu áfram í ganginum. Strákarnir stilltu sér upp og sungu fyrir Hárski. Hann sneri sér að glugganum og starði upp í bláan himininn. Tárin streymdu niður kinnarnar. Hvað eftir annað reyndi hann að taka undir sönginn, en röddin brást honum vegna gráts. Og þau sitja til borðs í Guðs himnesku höll, aldrei hungur þar finnst eða neyð. Þar hinn líknsami Frelsari fræðir þau öll, stjarna friðarins Ijómar þar heið. — Hvílík framtíð, sagði Hárski og brosti gegnum tárin. — Heyrið þið? Hárski fær að sitja til borðs í heimili Guðs! ENDIR

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.