Barnablaðið - 01.02.1991, Blaðsíða 22

Barnablaðið - 01.02.1991, Blaðsíða 22
M atr eið sluþ áttur Lamba 22 BARNABLADIÐ Lummur Áhöld: Lítil skál Pönnukökupanna Mælibolli Stór skál Mæliskeiðar Sleif Þeytari Pönnukökuspaði Efni: 2 egg 2 1/4 bolli hveiti 1 teskeið salt 2 bollar mjólk 1 teskeið sykur 2 matskeiðar smjör 2 teskeiðar lyftiduft Aðferð: 1. Mældu hveitið. 2. Settu hveiti, lyftiduft, salt og sykur í stóra skál og blandaðu vel saman. 3. Brjóttu eggin í litla skál og þeyttu þau. settu mjólkina í eggjablönd- una og þeyttu saman. 4. Helltu nú eggjablöndunni í hveitiblönduna og hrærðu í um leið. Þetta má vera smákekkjótt. 5. Bræddu smjörið á pönnunni og helltu því út í deigið. 6. Settu eina matskeið af deigi á pönnuna. Úr einni matskeið verð- ur ein lumma. Þrjár til fjórar ættu að komast á pönnuna í einu. 7. Snúðu lummunni við á pönn- unni, þegar smá augu hafa opnast á óbökuðu hliðinni. 8. Borið fram með sírómi, smjöri, sykri eða sultu. Úr þessari uppskrift ættu að verða tólf lummur.

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.