19. júní - 19.06.1958, Page 31
þæfð. Fínar voðir eins og þessi voru aldrei þæfðar
mjög mikið, 5—6 klukkustundir í mesta lagi.
Nú var voðin saumuð utan um fjöl, sem var
lengri en voðin var breið, og öll undin á fjölina.
Við höfðum fjölina á borði, en karlmaður togaði
á móti, og strekktum við á um leið. 1 hvert skipti,
sem undið var upp á fjölina, var henni skellt á
borðið, togað í og strekkt, en voðin síðan strokin
vandlega með höndunum og jaðarinn lagaður um
leið.
Þegar voðin var öll komin á fjölina, var hreint
stykki saumað utan um og f jölin síðan látin standa
úti í horni.
Þegar átti að lita voðina í hellulit, var byrjað á
að bleyta hana vandlega í volgu vatni.
Stór pottur, sem tók 50—100 lítra, var settur á
eldinn og soðið í honum vatn. Þegar sauð í pott-
inum, var hellan látin út í, ásamt blásteini og vitrí-
óli og það látið sjóða með litnum 2 til 3 klukku-
stundir. Hellulitur var seldur í stykkjum, sýni-
lega brotinn úr stærri hellum og dró af því nafn
sitt. Hellulitur var alltaf svartur. Mig minnir, að
í 50 lítra pott þyrfti 1 j/2—2 pund af hellulit, er.
100 kvint af hvoru um sig, blásteini og vitríóli á
móti honum.
Balinn með voðinni var nú borinn að eldavél-
inni, voðin tekin úr brotunum, lauslega undin eða
strokið úr henni mesta vatnið og látin ofan í lit-
inn. Einum hnefa af grófu salti var þá bætt í litinn.
Potturinn varð að vera svo rúmur, að öll voðin
kæmist vel í hann og liturinn flyti vel yfir. Voðin
var látin sjóða 2 klukkustundir og stöðugt hrært í
með priki og voðin lagfærð í pottinum. Þegar þessi
tími var liðinn, var balinn aftur færður að elda-
vélinni og voðin færð upp í kalda vatnslögg. Bal-
inn var síðan borinn út og voðin dregin upp úr
og breidd á steingarð. Þegar runnið var hið
mesta úr voðinni, var litunin vandlega athuguð,
síðan var hún lauslega lögð saman og látin aftur
ofan í litinn. Eftir að voðin fór í litinn, var hún
aldrei undin, bara látið renna úr henni. Nú var
hún soðin i eina klukkustund, þá aftur færð upp í
vatn, látin út á garð og athuguð á ný. Stundum
var voðin sett oftar en tvisvar í litinn, færð loks
upp í lítið vatn og skvett á hana köldu, farið með
hana út og breidd á garðinn. Þegar sigið hafði úr
henni mesti liturinn, var hún lögð saman og látin
samanbortin í trébalann, og því, sem eftir var af
litnum, hellt yfir hana.
Þannig var voðin látin liggja nokkra daga. Um
1 9. JÚNÍ
sólaruppkomu bárum við balann ofan að sjó. Þessa
voð fórum við með niður að Lækjarósi fyrir neðan
Ziemsen. Þar komum við okkur vel fyrir á milli
kletta, þar sem allaðdjúpt var og straumur í sjón-
um. Þar skoluðum við voðina, þar til sjórinn var
orðinn alveg tær aftur í kringum okkur. Nú var
voðin brotin saman upp úr sjónum og lögð í bal-
ann og hann borinn heim að brunni, sem stóð neð-
arlega í Ánanaustatúninu. Þar var hún margskoluð
úr brunnvatni til þess að ná úr henni sjónum og
seltunni og haldið áfram, þar til skolvatnið var
alveg tært. Enn var voðin brotin saman, lögð í bal-
ann og borin heim, þar sem breytt var úr henni á
steingarð til þerris. Oft þurfti að taka voðina inn
á kvöldin, og var hún þá brotin saman, en látin út
aftur í næsta þurrk, ef hún þótti ekki nógu þurr.
Þegar voðin var orðin nægilega þurr, var hún
brotin í rúmlega meters lengd, þannig að hver
lengd var lögð ofan á aðra, þannig að hún var allt-
af einföld í brotunum.
Loks var tekið stórt lak og látið utan um voðina,
þannig að það huldi hana alveg, og hún síðan lögð
í rúm ofan á fiðursæng. Rekkjuvoðin, sem oft var
úr þykku vaðmálsvendarlérefti, var breidd yfir.
Síðan svaf viðkomandi í rúminu, en sængurnar
hristar upp á hverjum morgni og innvöfðu voðinni
hagrætt án þess að losa nokkuð um pakkann.
Voðin var oft látin vera margar vikur í rúmi, en
auðvitað aldrei í barnarúmi.
Ef voðarinnar var vel gætt, var engin hrukka
til í henni, þegar hún var loks tekin úr rúminu
og farið var að sníða fötin.
Sumir létu „hattarann“ pressa voðir sínar, en
okkur þótti þá koma gljái á voðina og hún þyldi
ekki að rigna, því að undan regndropunum komu
mattir blettir.
Pils úr þessum voðum þóttu okkur liprari og létt-
ari en klæðispils, og auk þess entust þau oft í mörg
ár.
ValgerSur Pétursdóttir.
*
Falli snemma dögg á jörð að kvöldi, verður
þurrkur daginn eftir.
*
Þegar netaský eru á loftinu, er allra veðra von.
*
Sjaldan er langt laugardagsveður nema á föstu-
dag byrji.
29