19. júní - 19.06.1977, Qupperneq 10
Sigurbjörn Einarsson,
biskup:
Lög ganga
jafnt yfir alla
Þjóðkirkja íslands hefur tekið
af tvímæli um það, að konur eru
velkomnar til prestsstarfa á
hennar vegum. I því efni var tekið
af skarið, þegar kona vígðist fyrst
til prests 29. sept. 1974. Þess er að
geta, að fyrr hafði það ekki legið
fyrir, að kona tæki vigslu. Aðeins
tvær konur hafa lokiö háskóla-
prófi í guðfræöi til þessa en slíkt
próf er skilyrði til prestsskapar, þó
að það veiti ekki skilyrðislausan
rétt til vígslu. Önnur þessara
tveggja kvenkandidata hefur al-
drei leitað eftir vígslu. Hinn, frú
Auður Eir Vilhjálmsdóttir, hafði
nokkrum árum eftir próf sitt sótt
um prestakall en ekki náð kosn-
ingu. I kirkju Islands eru sóknar-
prestar ekki skipaðir nema að
undangenginni almennri kosn-
ingu safnaðar. En hafi sóknar-
8
Leitað
svara . ..
prestsembætti verið auglýst laust
og enginn um það sótt, getur
biskup sett mann i embættið, ef
einhver er í boði, sem vill taka
setningu. Slíkt er og hefur verið
mjög algengt, þegar prestaköll úti
á landi eiga í hlut, enda er biskupi
skylt að gera sitt til þess að útvega
söfnuðum presta, ef kostur er.
Þessa er getið hér til upplýsingar
almennt.
Frú Auður var sett samkvæmt
ósk sinni og með vitund og vilja
sóknarnefndar til þess að vera
sóknarprestur í Staðarprestakalli
í Súgandafirði 1. október 1974 og
vígð fyrrgreindan dag. Eins
og málavöxtum var háttað kom
jraö fyrst og fremst til kasta bisk-
ups, hvort |i>etta. skref yrði stigið
j)á eða ekki. Eg hafði gert þetta
mál upp við mig og var enginn
vandi á höndum persónulega. En
vegna þess, að það er enn
ágreiningsmál víða innan kristn-
innar, hvort vígja skuli konur til
prestsembættis, taldi ég skylt að
tryggja sem mesta samstöðu um
|)etta með ábyrgum aðiljum inn-
an íslenzku kirkjunnar, jrannig að
hún, að svo miklu leyti sem unnt
var, kæmi fram sem ein heild í
jtessu máli út á við og einnig
gagnvart framtíðinni, ef til jress
kæmi, að hér yrði einhver um-
ræöa um síöar. Þetta tókst og ég
hygg óhætt að segja, að fyrsta
kvenpresti hafi ekki verið tekið
betur í neinu landi eða kirkju en
íslenzka brautryðjandanum á
j)essu sviði.
Frú Auður var prestur i Súg-
andafirði í eitt ár en til skemmri
tima eru menn yfirleitt ekki settir
í prestakall. Með vígslu hennar
var i eitt skijDti fyrir öll lokið upp
fyrir konum, sem takast vilja á
hendur prestsskap í kirkju
Islands. Einkaástæður ollu því,
að hún hvarf úr starfi sem prestur
á Súgandafiröi, J)ar sem hún
hlaut hið besta orð. Hún hefur
þrívegis siðar sótt um prestakall.
Þær dyr, sem lokið var upp, þegar
hún hlaut vígslu, hafa reynzt
lokaöar, j)egar hún átti að mæta
gildandi lögum um veitingu
prestakalla. Við j)ví er að sjálf-
sögðu ekkert að segja út af fyrir
sig. Lög ganga jafnt yfir alla. Og
væri jraö eini gallinn á úreltum
lögum um |)ctta efni, að þau hafa
hindrað J)að, að kona fengi skip-
un í prestsembætti á íslandi, þá
mættu þau væntanlega j)ykja
viðunandi i karlaþjóðfélagi. En
j)vi er nú ekki að heilsa, |)ó að
karlmannasamkundan Alþingi
(með sínum kvenfulltrúum) fáist
ckki til að skilja j)að.