19. júní - 19.06.1977, Blaðsíða 24
Þarf að ala
stráka betur upp
hagsmál og trúarbrögð önnur en
kristna trú.
Tveir piltanna eru á því að
nauðsynlegt sé að fá hrein-
ræktaða vinstri stjórn í landið,
hinir tveir efins um það sé Iausn
mála. — „Þjóðin glötuð ef við
náum ekki tökum á efnahags-
málunum, þau eru á köldum
klaka.“ — „Láta fólk vinna í
þágu þjóðarinnar og leggja að sér
á meðan við erum að ná okkur á
strik. Takmarka hæstu launin og
hækka lægstu launin.“ —
„Verkalýðsforingjar eiga að vera
verkalýðsforingjar.“ — „fs-
lendingum er sama um alla aðra,
ef þeir fá sjálfir nóg. Það verður
að berja þjóðmálaumræðu inn á
mann í skóla.“
Allir sem einn vonuðu þeir að
ekki kæmi til verkfalla í vor eða
sumar.
Hvers vegna? Þeim var það
kappsmál að komast strax í vinnu
þegar skólanum lyki. Einn hafði
von um að komast í fiskvinnslu,
annar að sendast í banka, þriðji
að vinna í sælgætisgerð og fjórði
við matjurtaræktun með afa
sínum.
Eitthvað sem þið viljið segja að
lokum? Þeim er e. t. v. efst í huga
hvað stelpurnar eru furðulegar,
þær móðgast hver við aðra og tala
kannski ekki saman í fleiri daga.
Strákar rífast sín á milli, en gera
málin upp á stundinni og eru
jafngóðir vinir á eftir. — „Stelpur
fá sama uppeldi, þær eru bara
öðru vísi af guði gerðar.“
ÞÆR SÖGÐU MEÐAL
ANNARS:
— „f Ármúlaskóla tók einn
kennarinn sig til og óskaði eftir
fræðslu um kynferðismál þegar
fram kom í almennu spjalli að
fæstir í bekknum höfðu fengið
upplýsingar um þau. Hjúkrunar-
kona skólans veitti mjög góða
fræðslu.“ — „Einnig í Haga-
skóla í 2. bekk. Það þyrfti að
fræða unglinga fyrr t.d. í 12 ára
bekk. Krakkar byrja oft ungir að
vera saman, stundum 12—13 ára
stelpa og 15 ára strákur, en fæst
áður en þau vita hvernig á að
nota getnaðarvarnir.11 —
„Slæmt þegar börn eignast
börn, á það þarf að leggja áherslu
í kynlífsfræðslu." — „Við sáum
kvikmynd frá Danmörku aðal-
lega viðtöl við unglinga, flesta 12
ára og þau sögðust öll hafa sofið
hjá. Augljós félagsleg þvingun
virtist vera innan hópsins að geta
talað með og til þess þurfti að
hafa prófað þetta. En það er mis-
jafnt hvað krakkar fara fljótt og
mikið út í kynlíf.“ — „Strákar
og stelpur byrja að umgangast
hvert annað afslappað frá 12 ára
bekk eða 1. bekk, en sam-
ræðurnar verða þó alltaf yfir-
borðslegri í blönduðum hópi.“
Skiptir kynlíf máli?
— „Alltaf einhverju, það
hlýtur að gera það. Fólk hér á
landi elur börn sín öðruvísi upp
en víða erlendis. Það er ekki eins
mikil pressa á börnum hér og
sennilega talar fólk opinskárra
við börn sín, bæði um kynferðis-
Steinunn, Hólmfríður, Brynja, Guðlaug og Ástríður.
22