19. júní - 19.06.1977, Blaðsíða 19
margar konur sem smíða skip
með pabba.“
Ragnheiði langar líka að feta í
fótspor föður síns. Hann er að
byggja hús handa þeim öllum og
mamma er stundum að byggja
líka.
Þessar stelpur langar ekkert til
að vera strákar. Það er miklu
meira gaman að vera stelpa. Af
hverju? — Bara! En smátt og
smátt koma skýringarnar.
„Strákar eru alltaf að stríða og
alltaf að uppnefna,“ segir Sigrún.
„Einu sinni þegar ég var að koma
út úr búð á hjólinu með mömmu
og pabba voru strákarnir komnir
upp á þak — þeir klifruðu fyrst
upp í staur og svo upp á þak — og
þeir voru að henda snjóboltum í
bílana. Það mega þeir ekki og það
verður að skamma þá. Ég hendi
ekki í bílana en ég stríði stundum
því þeir eru alltaf að stríða mér.“
Það er ekki gaman að vera strákur
og gera það sem maður er
skammaður fyrir. En strákar gera
stundum sniðuga hluti: „Einu
sinni héldu bræður mínir hluta-
veltu í bílskúrnum og ég dró bíl
fyrir 10 krónur. Einn strákurinn
fékk kjól á hlutaveltunni. Fyrst
varð hann glaður en svo henti
hann kjólnum út í horn. Skotar
ganga í pilsum!“
Það er miklu meira gaman að vera stelpa.
Hvað vilja þær helst leika sér
með? „Mér finnst mest gaman að
leika mér að dúkkum,“ segir
Ragnheiður, „mig langar í
dúkkuvagn og helling af dúkkum
í afmælisgjöf.“ Hún á hvorki bíl
né jarðýtu, segir hún. Sigrúnu
finnst mest gaman að sippa. „Eg
á bara einn dúkkuvagn og marg-
ar dúkkur. Herbergið mitt er fullt
af drasli þegar ég fer að sofa. Ein
lítil frænka mín setur allt dótið
mitt út um allt þegar hún kemur í
heimsókn. Eg verð að passa legó-
kubbana upp á hillu því hún gæti
borðað þá.“ Sippubandið er samt
best. Fær hún að hafa það í friði
fyrir bræðrum sínum?“ „Bræður
mínir fá sippubandið oft lánað.
Þeir leika sér líka stundum með
dúkkur og eru oft að fela hlut.“
Nú eru listaverkin af lóunum
fullgerð og þær stöllur skunda í
stofu sína aftur. í þeirra stað
koma Arnar Geirsson og Pétur
Haraldsson. Arnar teiknar
sjúkrabíl en Pétur lögreglubíl.
Báðir ætla þeir að verða lög-
reglumenn þegar þeir verða stór-
ir. „Maður lærir í lögguskóla og
stjórnar umferðinni og tekur
þjófa,“ segir Arnar. Og hvaða
menn eru þjófar? „Þeir taka pen-
inga, svo leggjast þeir upp í rúm
og telja peningana.“ En ef þeir
væru stelpur, hvað gerðu þeir þá
þegar þeir yrðu stórir? „Bara
eitthvað. Elda mat.“ Elda karlar
mat? „Nei,“ ansar Arnar, en Pét-
ur dregur úr og bætir við: „Bara
sumir.“
Vilja þeir ekki verða sjómenn?
„Nei, ég vil ekki vera á sjónum,“
segir Arnar, „skipið getur sokkið.
Flugvélarnar geta lika hrapað.“
En hvað með lögreglubílana
„Þeir klessa ekki — þeir eru með
sirenurnar á.“ Arnar á tvibura-
Löggubíllinn hans Péturs.
17