19. júní - 19.06.1977, Síða 36
„Hér vinna
menn af
miklum
áhuga“
Spjallað við Bergþóru
Sigmundsdóttur, fram-
kvæmdastjóra jafnréttis-
ráðs
I lögum um jafnrétti kvenna
og karla er kveðið á um, að jafn-
réttisráð skuli annast fram-
kvæmd laganna. Þar stendur enn
fremur í 9. grein: Jafnréttisráð
skal skipað 5 mönnum til þriggja
ára í senn og skulu þeir ásamt
varamönnum skipaðir þannig:
Einn skipaður af Hæstarétti og er
hann formaður ráðsins og skal
hafa lokið embættisprófi í iögum,
einn skipaður af félagsmálaráð-
herra, einn skipaður af Banda-
lagi starfsmanna ríkis og bæja,
einn skipaður af Alþýðusam-
bandi íslands og einn skipaður af
Vinnuveitendasambandi
íslands. Jafnréttisráð hefur
skrifstofu og ræður fram-
kvæmdastjóra til að veita henni
forstöðu. Kostnaður greiðist úr
ríkissjóði.
Þar sem Jafnréttisráð hefur nú
starfað í tæpt eitt ár, þótti for-
vitnilegt að leita frétta um starf-
semina hjá Bergþóru Sigmunds-
dóttur framkvæmdastjóra ráðs-
ins. Skrifstofa Jafnréttisráðs er
að Skólavörðust. 12. Bergþóra
hefur viðtalstíma mánud. —
föstud. kl 10—12.
Hér fara á eftir svör hennar
við spurningum 19. júní.
Hvenœr var skrifstofan opnuð?
Við vorum fyrst með skrifstofu
að Laugavegi 29 og fengum það
húsnæði í byrjun september á s. 1.
34
ári. Ég var ráðin f. o. m. 1. sept-
ember. Við fluttum í núverandi
húsnæði 1. janúar s. 1.
Hverjir eiga sceli í Jafnréttisráði?
I ráðinu eiga sæti Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir frá Alþýðusam-
bandi íslands, Baldur Guðlaugs-
son frá Vinnuveitendasambandi
íslands, Áslaug Thorlacius frá
BSRB, Geirþrúður Hildur Bern-
höft, sem skipuð er af ráðherra og
formaður ráðsins Guðrún Er-
lendsdóttir, sem skipuð er af
Hæstarétti. Varamenn eru með
sama hætti.
Hve ofl erufundir haldnir?
Fyrsti fundurinn var haldinn
síðast í júlí. Núna heldur ráðið
fundi tvisvar í mánuði. Vara-
menn sitja fundina yfirleitt líka.
Hér vinna menn af miklum
áhuga.
Hvernig hefur fólkið samband við
ykkur og hvernig er störfum háttað?
Það er leitað hingað vegna
ýmissa atriða, sem Jafnréttisráð á
eftir að skera úr um hvort eru
brot á lögum. Nokkuð er spurt
um tryggingarnar. Við hugsum
okkur að fara nú fljótlega að
sinna tryggingarmálunum meira.
í tryggingarlöggjöfinni er hjú-
skaparstaða talsvert lögð til
grundvallar. Auk klögumála
varðandi brot á lögum, svörum
við fyrirspurnum frá innlendum
og erlendum aðilum. Við fáum
efni til umsagnar frá Sameinuðu
þjóðunum, Alþingi, Utanríkis-
ráðuneytinu og fleiri aðilum. Al-
þingi hefur sent okkur til um-
sagnar þrjú frumvörp skattalaga-
, barnalaga-, og ættleiðingalaga-
frumvarpið. Samstarfshópur um
jafnréttismál er starfandi á veg-
um Norðurlandaráðs með full-
trúa frá hverju landi. Okkar full-
trúi er Guðrún Erlendsdóttir.
Norðurlandaráð efnir til ráð-
stefnu um jafnréttismál i Finn-
landi dagana 9,—10. júni n. k.
Nokkrir aðilar úr Jafnréttisráði
fara þangað.
Afgreiðsla mála fer þannig
fram, að þegar mál kemur til